Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2026 23:02 Takeshi Okada með Arsene Wenger á góðri stundu. Getty/ Jun Sato Takeshi Okada lætur af embætti varaforseta Knattspyrnusambands Japans í kjölfar ákvörðunar knattspyrnusambanda Asíu um að styðja Gianni Infantino í forsetakjöri FIFA á næsta ári.
Okada, sem er sjötugur og var landsliðsþjálfari Japans á heimsmeistaramótunum 1998 og 2010, segist vera mjög vonsvikinn eftir að Knattspyrnusamband Asíu (AFC) sneri nýlega við blaðinu í afstöðu sinni til Infantinos. Sambandið var snemma í hópi gagnrýnenda Infantinos eftir misheppnuðu HM-áformin, en á þinginu í Japan í síðustu viku var ákveðið að styðja hann í forsetakjöri Alþjóðaknattspyrnusambandsins árið 2027. Það var mikill sigur fyrir Infantino og nánast gulltryggir hann áfram sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Okada segir að „íþróttir eigi að byggjast á heilindum“. „Hins vegar víkja þær aðgerðir sem tengjast heimsmeistaramóti FIFA í ár verulega frá persónulegri sannfæringu minni,“ sagði Okada í yfirlýsingunni. „Sem íþróttamaður get ég ekki sætt mig við þetta,“ sagði Okada í yfirlýsingu samkvæmt AP-fréttastofunni. Okada viðurkenndi að staða Japans í stjórnmálum innan FIFA, alþjóðlegs stjórnvalds knattspyrnunnar, og innan Asíu væri flókin og bætti við að hann skildi að „það eru hagnýtar ástæður fyrir því að fylgja afstöðu AFC“. Japan vill halda heimsmeistaramót karla fyrir árið 2050, sagði Tsuneyasu Miyamoto, forseti japanska knattspyrnusambandsins, á fjarfundi AFC í október 2023 þar sem lýst var stuðningi við umsókn Sádi-Arabíu um að halda mótið árið 2034. Sheikh Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti AFC, hafði í ágúst slegist í hóp með öðrum varaforsetum FIFA, þeim Aleksander Ceferin frá UEFA og Victor Montagliani frá CONCACAF, og gagnrýnt Infantino fyrir „blekkingar“ og „grundvallartrúnaðarbrest“ vegna þrýstings hans á að selja varanlegan hlut í hagnaði af heimsmeistaramótinu til einkafjárfesta undir forystu Joshua Kushner, yngri bróður Jared Kushner, sem er kvæntur Ivönku, dóttur Trumps.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira