Fótbolti

Real Madrid biður alla Kín­verja af­sökunar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe var elskaður og dáður í Kína þar til að hann lét hin óheppilegu orð falla.
Kylian Mbappe var elskaður og dáður í Kína þar til að hann lét hin óheppilegu orð falla. Getty/Alberto Gardin

Spænska stórliðið Real Madrid hefur beðið alla kínversku þjóðina afsökunar eftir umdeild ummæli ofurstjörnunnar Kylians Mbappé um einræðisherra Kínverja. Á sama tíma heldur fjaðrafokið í kringum framherjann áfram.

Mbappé vakti mikla reiði og hefur lent í storminum miðjum vegna ummæla sem hann lét falla í myndbandsviðtali við franska þáttinn „The Bridge“. Kínverskt sjónvarp hefur í kjölfarið hætt útsendingum frá spænska fótboltanum.

Nú blandar vinnuveitandi Frakkans sér einnig í málið.

„Real Madrid vill biðja kínversku þjóðina afsökunar á hvers kyns óþægindum sem kunna að hafa hlotist af nýlegum ummælum leikmanns okkar, Kylians Mbappé,“ skrifar Real Madrid á vefsíðu sína á miðvikudag.

„Félagið okkar ber djúpa virðingu fyrir Kína, sögu landsins, menningu og íbúum, sem og fyrir þeim milljónum kínverskra stuðningsmanna sem bera hlýjar tilfinningar og aðdáun í garð Real Madrid,“ segir enn fremur.

Kínverskir ríkisfjölmiðlar hafa áður lofað Mbappé sem „fótboltaundri“ og „hæfileikamanni“. Andlit hans hefur prýtt auglýsingaspjöld, gosflöskur og samfélagsmiðla. Nú hefur staðan breyst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×