Fótbolti

Bikar-Ísak skoraði í stór­sigri

Sindri Sverrisson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar fagna í bikarsigrinum stóra í kvöld.
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar fagna í bikarsigrinum stóra í kvöld. Getty/Federico Gambarini

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson heldur áfram að gera góða hluti í þýsku bikarkeppninni í fótbolta með liði Köln sem vann 5-0 stórsigur í úrvalsdeildarslag geng Union Berlín í Köln í kvöld.

Ísak skoraði bæði mörk Kölnar í bikarsigri gegn Würzburger Kicks í ágúst eftir að hafa einnig skorað eitt mark og lagt upp annað í bikarnum á síðustu leiktíð.

Í kvöld var Ísak þó á varamannabekknum þar til á 72. mínútu en sex mínútum síðar hafði hann komið Köln í 4-0.

Said El Mala skoraði tvö marka Kölnar, Linton Maina eitt og Sebastian Sebulonsen eitt.

Unin Berlín fær tækifæri til hefnda á sunnudaginn þegar liðin mætast í deildarleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×