Lífið

Spila þú með Babe Patrole
Stelpurnar í Babe Patrol, fá Digital Cuz í heimsókn í kvöld og ætla að bjóða áhorfendum að spila í kvöld. Hægt verður að stökkva í leik með þeim í Warzone.

Skrifaði undir draumasamninginn og hlakkar til að spila erlendis
„Mér líður best þegar að ég er að spila og það er flæði, þar sem ég er ekki að hugsa of mikið. Það fékk að njóta sín á þessari plötu,“ segir tónlistarmaðurinn Mikael Máni, sem var að skrifa undir plötusamning við útgáfufyrirtækið Act í Þýskandi.

Erfingjar Donnu Summer í mál við Kanye West
Erfingjar dánarbús söngkonunnar Donnu Summer hafa höfðað mál gegn tónlistarmönnunum Kanye West og Ty Dolla $ign vegna meints stuldar á lagi hennar I Feel Love.

Strætóáskorunin sem sumir þurfa að standast til að fá bílprófið
Formaður Ökukennarafélagsins telur að bæta ætti almenningssamgöngur á svæðinu við Ökuskóla 3. Fólk átti sig hreinlega ekki á því hvað þurfi að gera til að komast upp í húsnæðið, sem er í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Við spreyttum okkur á ferðalaginu í Íslandi í dag.

Baltasar og Sunneva Ása eiga von á barni
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eiga von á sínu fyrsta barni saman í byrjun ágúst. Um er að ræða fyrsta barn Sunnevu en Baltasar á fjögur börn fyrir.

Sonur Forrest Gump stjörnu látinn úr krabbameini
Bandaríski leikarinn Gary Sinise sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Forrest Gump hefur misst son sinn, hinn 33 ára gamla McCanna Anthony Sinise, úr krabbameini.

„Tækifæri til að pæla í fallegri veruleika eftir dauðann“
„Framtíðin kemur bara og við þurfum að díla við það,“ segir þrívíddarhönnuðurinn María Guðjohnsen, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Hún heillast að tæknilegri hliðum listarinnar og er óhrædd við viðfangsefni á borð við dauðann.

Lítill loðnubátur flutti 440 manns í einni ferð
„Fyrst hélt ég að það væri að gjósa fyrir utan eyjuna og ég var bara að dást að þessu sköpunarverki, hvað það var fallegt. Þetta var náttúrulega ógnarfallegt og tilkomumikið. En svo þegar ég áttaði mig á að þetta var á eyjunni sjálfri, þá fór ég að skelfast. En í raun hafði maður ekki mikinn tíma til að hugsa um þetta, atburðarásin var svo hröð,“ segir Ragnheiður Einarsdóttir.

Disney-söngleikur settur upp á Hvolsvelli
Það stendur mikið til á Hvolsvelli því þar eru fullorðnir söngnemendur Tónlistarskóla Rangæinga að setja upp söngleik með Disney lögum úr ýmsum teiknimyndum með ævintýrasögum í kringum lögin.

Reyndust vera með 26 greiðsludreifingar
Fjallað er um fjárhag hjónanna Nathaliu B. Tómasdóttur, kynningarfulltrúa, og Stefáns Þorvarðarsonar, gagnaverkfræðings, í þáttunum Viltu finna milljón en í fyrsta þættinum í síðustu viku kom í ljós að samanlagt eru hjónin með 1.028.405 krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði.

Handboltahjónin í Garðabæ selja húsið
Þau gerast varla meiri íþróttahjón en Tinna Jökulsdóttir og Vilhjálmur Halldórsson í Garðabænum sem hafa sett raðhúsið sitt í Brekkubyggð á sölu.

Mikil líkindi með lögum Heru og Demi Lovato
Ekki væri neitt Eurovision án þess að fram komi ásakanir um lagastuld. Nú er lagið Við förum hærra sem Hera Björk syngur í skotlínunni.

„Er þetta síðasta afmælið mitt með þeim?“
„Ég er í stelpuferð með vinkonum mínum í Edinborg. Fyrsta morguninn finn ég einhverja perlu í brjóstinu á mér. Ég tek mig til, fer í morgunmat með stelpunum og þar er vinkona mín sem er hjúkrunarfræðingur. Ég fæ hana til að fara með mér inn á klósett og skoða þetta. Hún nær að róa mig niður og sannfærir mig um að kíkja á þetta þegar ég kem heim,“ segir Linda Sæberg sem á ungan son og unglingsstúlku.

Troðfullt í Marshall-húsinu á opnun listrænna systra
Fullt var út úr dyrum í Þulu galleríi í Marshall-húsinu síðastliðinn laugardag við opnun á sýningu systranna og listakvennanna Lilju og Ingibjargar Birgisdætra.

Myndband með framlagi Bashars frumsýnt í gær
Flunkunýtt myndband við Wild West, lagið sem Bashar Murad flytur í Söngvakeppni Sjónvarpsins, var frumsýnt með viðhöfn á Kex Hostel í gærkvöldi.

VÆB bræður syngja einir á íslensku: Stílistinn sagði þeim að vera með sólgleraugu
Tvíeykið í VÆB, bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir ætla einir keppenda að flytja lag sitt á íslensku í úrslitum Söngvakeppninnar um helgina. Þeir segjast ekki geta beðið eftir keppninni þar sem þeir munu stíga fyrstir á svið.

Hamingjusamari í Síerra Leóne en á Íslandi
„Þetta er mjög líflegt land og það er mjög skemmtilegt að búa hérna,“ segir Henry Alexander Henrysson en þau Regína Bjarnadóttir búa ásamt börnum sínum tveimur í einu fátækasta ríki veraldar Síerra Leóne.

Tónlistarframleiðandi sakar Diddy um káf og önnur kynferðisbrot
Tónlistarframleiðandi hefur höfðað mál á hendur athafna- og tónlistarmanninum Sean Combs vegna meintra kynferðisbrota. Segir maðurinn Combs meðal annars hafa káfað á sér og neytt sig til að sænga hjá kynlífsstarfsmönnum.

Vill bæði geta verið skvísa og gæi
Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Binni Glee sló upphaflega í gegn á samfélagsmiðlinum Snapchat þar sem hann var að sýna frá förðun. Binni segist ekki hafa séð marga stráka mála sig á þeim tíma en segir fjölbreyttar fyrirmyndir skipta miklu máli.

Konurnar á bak við Bríeti
Íslenska stórstjarnan Bríet er þekkt fyrir öfluga sviðsframkomu sína og tjaldar öllu til þegar að það kemur að hári, förðun og fatnaði. Á bak við Bríeti eru þrjár öflugar listakonur sem þróa með henni þessi mjög svo einstöku lúkk en blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá samstarfinu.

Erfiðast þegar náið samstarfsfólk stal frá þeim
Það var einn kyrrlátan sunnudagsmorgun í miðbæ Reykjavíkur fyrir nokkrum árum sem þau hjónin Regína Bjarnadóttir og Henry Alexender Henrysson sátu og lásu blöðin.

GameTíví: Dreifa lýðræði og kíkja í hrylling
Strákarnir í GameTíví ætla að dreifa stýrðu lýðræði um Vetrarbrautinga í leiknum Helldivers 2 í kvöld. Þeir munu einnig dýfa tánum í smá hrylling.

Birgitta Líf með 450 þúsund króna skiptitösku
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, birti mynd af sér með son sinn í fanginu og 450 þúsund króna Blue Dior Oblique Canvas skiptitösku yfir öxlina.

Tóku saman höndum fyrir Hendi næst
Margt var um manninn í Ásmundarsafni í síðastliðinni viku á opnun sýningarinnar Hendi næst.

Guðni hoppaði í fyrsta Mottumarssokkaparinu
Guðni Th. Jóhannesson fékk fyrsta parið af Mottumarssokkunum sem seldir eru til styrktar Krabbameinsfélaginu í Mottumars. Guðni hefur árlega tekið við fyrsta pari sokkanna frá árinu 2018 þegar þeir voru fyrst framleiddir.

Leita að listaverkum Erró í einkaeigu fyrir listasýningu
Listasafn Reykjavíkur leitar nú að listaverkum eftir Erró til að sýna á sýningu sem á að opna í september á þessu ári.

Skandinavískt yfirbragð á heimili förðunardrottningar
Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, og knattspyrnukappinn Steven Lennon, hafa sett fallega hæð við Arnarhraun í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 89,9 milljónir.

Settist í öll sæti Eldborgar og tók 5000 sjálfsmyndir
Þýski listamaðurinn Martin Liebscher leggur mikið á sig fyrir verk sín. Hann heimsótti Hörpu, tónlistar-og ráðstefnuhús, haustið 2022 og tók heldur óhefðbundnar myndir í Eldborg.

Stjörnurnar fjölmenntu á endurkomu Hönsu á stóra sviðið
Líf og fjör var í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar rokksöngleikurinn Eitruð lítil pilla var frumsýndur fyrir fullu húsi. Verkið er í leikstjórn Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur og með aðalhlutverkin fara þær Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Aldís Amah Hamilton.

Glódís Rún og Breki frá Austurási sigruðu slaktaumatöltið
Fimmgangur á fimmtudaginn.