Fótbolti

Reyna að sannfæra Xavi um að vera áfram
Forráðamenn spænska knattspyrnurisans Barcelona gera nú hvað þeir geta til að sannfæra þjálfara liðsins, Xavi, um að vera áfram við stjórnvölin. Xavi stendur þó fast á sínu og mun hætta í sumar.

Hallgrímur Mar ekki með í upphafi tímabils
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður ekki með KA þegar leikar hefjast í Bestu deild karla í knattspyrnu nú um helgina. Hann hefur verið að glíma við veikindi og verður ekki klár í fyrsta leik.

Þröng á þingi í Bayern: „Auðvitað hugsar maður um þetta“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir verður væntanlega í stóru hlutverki með íslenska landsliðinu í komandi leikjum við Pólland á föstudag og Þýskaland næsta þriðjudag, í undankeppni EM í fótbolta.

Gylfi dýrastur í nýjum fantasy-leik
ÍTF, hagsmunasamtök félaganna í efstu deildum Íslands í fótbolta, hafa opnað fyrir skráningu í draumadeildarleik sem tengist Bestu deild karla í fótbolta.

Tvöfaldur meistari frá Finnlandi í Garðabæ
Stjarnan hefur fengið til sín bandarískan varnarmann fyrir komandi leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta. Hún heitir Hannah Sharts og er 24 ára gömul.

Ingibjörg hreinskilin eftir erfiða mánuði: „Búið að vera mjög strembið“
„Þetta er búið að vera mjög strembið, ég viðurkenni það alveg. Það er gott að koma heim,“ segir Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í fótbolta, sem hefur átt afar erfiða tíma eftir að hún flutti frá Noregi til Þýskalands í vetur.

Réðu nýjan landsliðsþjálfara án vitundar knattspyrnusambandsins
Kamerúnska knattspyrnusambandið hefur lýst yfir mikilli undrun eftir að íþróttamálaráðuneyti landsins réði Marc Brys sem nýjan þjálfara karlalandsliðsins.

Ronaldo hlóð í þrennu annan leikinn í röð
Cristiano Ronaldo hlóð í enn eina þrennuna er Al Nassr vann 8-0 risasigur gegn Abha í sádiarabísku deildinni í knattspyrnu í gær. Þetta var annar leikurinn í röð sem Ronaldo skorar þrennu.

Rubiales handtekinn í tengslum við spillingarmálið
Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, var í morgun handtekinn á flugvellinum í Madríd.

FH berst liðsstyrkur
FH hefur gengið frá samningum við Ísak Óla Ólafsson út leiktíðina 2027. Hann kemur frá Esbjerg í Danmörku.

„Ég er rosalega á báðum áttum með FH“
Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, veit ekki alveg hvar hann hefur FH skömmu áður en keppni í Bestu deild karla hefst.

Besta-spáin 2024: Í traustum Heimishöndum
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 7. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Stærsta ógnin við Ísland gæti farið til Man. Utd fyrir metfé
Það velkist enginn í vafa um það á hvaða leikmanni Póllands þarf að hafa mestar gætur, þegar stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta mæta Pólverjum á Kópavogsvelli á föstudaginn. Hún heitir Ewa Pajor og er nú orðuð við Manchester United.

De Zerbi ekki lengur meðal þeirra sem eru líklegir til að taka við Liverpool
Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, er ekki lengur talinn meðal þeirra þjálfara sem eru taldir líklegastir til að taka við stjórnartaumunum hjá Liverpool þegar Jürgen Klopp lætur af störfum í sumar.

„Með Rúnar Má erum við ekki að gera kröfu á að þeir verði í Evrópubaráttu?“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, finnst teikn á lofti um að ÍA falli ekki í sama pytt og áður, þegar liðið hefur komið upp úr næstefstu deild.

Besta-spáin 2024: Verða að læra af mistökum fortíðarinnar
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍA 8. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Ótrúlegt öskubuskuævintýri Saarbrucken á enda
Ótrúlegt öskubuskuævintýri þýska C-deildarliðsins FC Saarbrucken er á enda eftir tap gegn FC Kaiserslautern í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í gær.

Meiðslavandræði Man United ætla engan endi að taka
Það á ekki af Manchester United að ganga á þessari leiktíð en nú er ljóst að Victor Lindelöf og Lisandro Martínez verða frá næsta mánuðinn vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í leik gegn Brentford á dögunum.

Vill að fjölmiðlar hætti að taka sig upp ræða við leikmenn sína
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, er þekktur fyrir miklar tilfinningar á hliðarlínunni. Þá á hann það til að ræða við, og jafnvel gagnrýna, leikmenn beint eftir leik á meðan allar myndavélar heimsins eru á honum.

Segist hafa skaðað líkama sinn
Raphaël Varane, miðvörður Manchester United, segist hafa skaðað líkama sinn með því að spila stuttu eftir að hafa fengið heilahristing. Þá segist hann ekki leyfa börnum sínum að skalla boltann þegar þau eru að leika sér í fótbolta.

Juventus í góðri stöðu fyrir seinni leikinn
Juventus lagði Lazio 2-0 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Coppa Italia eða ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Tottenham og West Ham urðu af mikilvægum stigum
West Ham United gerði 1-1 jafntefli við nágranna sína í Tottenham Hotspur í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Stigið gerir ekki mikið fyrir liðin sem eru bæði í harðri Evrópubaráttu.

Everton bjargaði stigi í norðrinu | Fulham gerði þrefalda skiptingu í fyrri hálfleik
Newcastle United og Everton gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Þá vann Nottingham Forest 3-1 sigur á Fulham.

Gagnrýnin í garð Haaland hafi verið „ósanngjörn og algjört bull“
Sperkspekingurinn Chris Sutton, fyrrverandi leikmaður liða á borð við Blackburn Rovers og Chelsea, segir að gagnrýni Roy Keane í garð norska framherjans Erling Braut Haaland hafi verið „ósanngjörn og algjört bull.“

Í beinni: Burnley - Wolves | Burnley er í vandræðum og þarf stig
Vísir er með beina textalýsingu frá leik Burnley og Wolves í ensku úrvalsdeildinni. Burnley er í næstneðsta sæti deildarinnar á meðan Wolves situr í tíunda sæti.

Markmaðurinn tryggði liðinu stig með marki frá eigin vallarhelmingi
Gabriel Kobylak, markvörður pólska liðsins Radomiak Radom, reyndist hetja liðsins er hann skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi gegn Puszcza í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

De Zerbi og Nagelsmann líklegastir til að taka við Bayern
Reberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, og Julian Nagelsmann, þjálfari þýska landsliðsins, eru þeir tveir kandídatar sem telja líklegastir til að taka við stjórastöðu þýska stórveldisins Bayern München í sumar.

Stúkan hitar upp í kvöld | Gylfa-myndavél á sunnudag
Fótboltasumarið er handan við hornið og Stúkan er í loftinu í kvöld með sinn árlega upphitunarþátt.

„Hvar sé ég mig eftir tíu ár? Ég verð sköllóttur“
Spænska ungstirnið Pedri hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir stórkostlegt ár hans árið 2021. Meiðsli hafa strítt unga manninum sem er þess þó viss að hann verði enn að eftir áratug. Hann virðist þá ekki hræðast hármissi.

Valsmönnum spáð titlinum í Bestu-deild karla
Kynningarfundur Bestu-deildar karla stendur nú yfir og á fundinum var opinberuð spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna um það hvernig deildin færi.