

Félagið Secret Local Adventurers fær aðgang að fjallakofa Hrunamannahrepps og heimild til að merkja gönguleið að Búðarárfossi. Ætla að gera kofann upp og kynna ferðamönnum. Stefna á leynda staði sem aðrir aka ekki á með sína gesti.
Ný markaðsherferð Íslandsstofu miðar að því að kenna ferðamönnum ábyrga hegðun.
Báran stéttarfélag skoðar hátt í tuttugu mál innan ferðaþjónustunnar á Suðurlandi er varða svarta starfsemi eða misneytingu starfsfólks. Eitt vinnumansalsmál er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Ofan í umræðu um öryggi erlendra ferðamanna staðfestir Ferðamálastofa að fjölgun ferðamanna á milli ára var þrjátíu prósent. Sérfræðingur segir að treysta verði og byggja upp flesta innviði í landinu til að mæta fjölguninni.
Ferðamenn sem hingað koma hafa margir hug á því að sjá íslensku handritin, en grípa í tómt því þau eru hvergi til sýnis. Forstöðumaður Árnastofnunnar segir að Íslendingum beri skylda til að miðla þessum heimsminjum, en ekkert bólar á Húsi íslenskra fræða.
Tæplega 1,3 milljónir ferðamanna komu hingað til lands í gegnum Keflavíkurflugvöll á síðasta ári sem er um þrjátíu prósenta fjölgun frá árinu áður. Stefnt er að því að kynna fyrstu hugmyndir nýstofnaðrar Stjórnstöðvar ferðamála í vor.
Meðan Ragnar á í vök að verjast með AdaM hótel er Hafþór sakaður um að dreifa löngu útrunnu nammi sem börn á Seyðisfirði hámuðu í sig á Öskudag.
Formaður Samfylkingarinnar spurði forsætisráðherra út í innviðauppbyggingu vegna fjölgunar ferðamanna á þingi í dag.
Til viðbótar komu 100 þúsund ferðamenn til Reykjavíkur með 108 skipum.
"Ég kem nú ekki oft hingað með ferðamenn, kannski einu sinni í mánuði en nánast í hvert einasta skipti sé ég fólk þarna úti á jökunum og jafnvel með börn með sér,“ segir Gylfi Blöndal, verkefnastjóri hjá IceLimo Luxury Travel.
Tveir ferðamenn voru á hjólinu, annar meiddist lítillega.
Kórfélagar karlakórsins Esju komu erlendum ferðamönnum tvisvar til aðstoðar á fimm mínútum í morgun þar sem þeir voru á leið í æfingabúðir inn í Húsadal í Þórsmörk.
„Eins og staðan er núna þá er ekki boðlegt að fara með fólk þangað,“ segir Jakob Guðjohnsen hjá Superjeep.is.
Vakt Lögreglunnar á Suðurlandi í Reynisfjörðu hefur gengið vel að mati yfirlögregluþjóns sem segir þó alltaf einhverja hunsa tilmæli lögreglu. Gera þurfi mun betur til að hafa öryggismálin í lagi.
Formaður Íslenskrar málnefndar gagnrýnir nálgun Isavia sem segjast vera að bæta þjónustuna við meirihluta þeirra farþega sem fara um Leifsstöð.
Ástandið við Jökulsárlón er skelfilegt; sár skortur á klósettaðstöðu en ástæðuna má finna í ágreiningi milli rekstraraðila og landeigenda.
Bráðabirgðaniðurstöður benda einnig til að vatnið sem hótelið selur á flösku sé óhætt til neyslu.
Ljóst er að bæta þarf verulega úr öryggismálum ferðamanna en fjórir erlendir ferðamenn hafa látist af slysförum hér á landi á síðustu tveimur mánuðum.
Rússneskur ferðamaður féll í gegnum ís á bólakaf í jökulsprungu í dag. Leiðsögumaður sem kom honum til bjargar segir að illa hefði geta farið.
Hæstaréttur segir að landeigendum í Reykjahlíð sé óheimilt að rukka inn gjald við náttúruperlur í Mývatnssveit.
Hæstiréttur hefur staðfest lögbann sýslumannsins á Húsavík um lögbann á gjaldtöku við náttúruperlur í Mývatnssveit.
Meirihluta herbergja var lokað í morgun þar sem rekstraraðili hefur aðeins leyfi til að leigja út níu herbergi.
Jónas Guðmundsson hjá Slysvarnafélaginu Landsbjörg segir að bæta þurfi forvarnir og fræðslu til erlendra ferðamanna, byggja þurfi upp innviði og stórefla löggæslu og eftirlit en ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega hér á landi síðustu ár.
Aldrei hafa fleiri ferðamenn sótt landið heim á fyrsta mánuði ársins en nú í ár.
Lögregluvakt verður komið á við Reynisfjöru eftir banaslys í fjörunni í gær. Í fjörunni eru viðvörunarskilti og kastlína með björgunarhring líkt og þekkist í fjörum víða um landið.
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir ekki koma til greina að loka Reynisfjöru fyrir ferðamönnum en vill að fjaran verði vöktuð allan sólarhringinn.
Kínverskur ferðamaður lést í fjörunni í morgun eftir að alda reif hann á haf út.
Símaskrá frá 2012, latexhanski á reykskynjara, ólystugur morgunverður og kalt kaffi koma við sögu í heimsókn blaðamanns Vísis í gær.
Tekjur sem framreiðslufólk á veitingastöðum fær af þjórfé hafa aukist nokkuð undanfarið. Starfsmenn deila peningnum í starfsmannasjóði. Tekjur veitingafólks eru hærri hér en annars staðar. Misjafnar reglur eru um þjórfé eftir löndum.
Ferðamenn hafa undanfarið ítrekað komist í stórhættu í Reynisfjöru og varð banaslys þar í morgun.