Innlent

Sýknaður vegna mann­dráps á Skjól­braut

Smári Jökull Jónsson skrifar
Georgios Ntentes var sýknaður.
Georgios Ntentes var sýknaður. Vísir/Anton Brink

Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana að Skjólbraut í Kópavogi í nóvember 2025. Dómurinn klofnaði í málinu. 

Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 8:40 í morgun en ákæruvaldið hafði farið fram á sextán ára fangelsi. Dómurinn hefur enn ekki verið birtur.

Aðalmeðferð lauk þann 2. október síðastliðinn en Ntentes var gefið að sök að hafa stungið Zingara með þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan hálsinn. 

Neitaði Ntentes sök við aðalmeðferð, sagði þá Zingara hafa verið góða vini og meðal annars neytt kókaíns saman tveimur dögum áður en Zingara fannst látinn. Fyrrverandi kærasta og systir Zingara greindu frá því fyrir dómara þegar þær komu að heimili hans að Skjólbraut á Kársnesinu í Kópavogi sunnudaginn 30. nóvember 2025. Þar hafi hann legið á gólfinu, látinn.

Lögreglumenn sem komu á vettvang lýstu skelfilegri aðkomu, meðal annars að garnirnar hefðu verið komnar út úr líkama Zingara og mikið blóð hafi verið á efri hluta líkama hans auk stungusárs á höfði, á bringu og neðarlega á maga. Þá fundust blóðslettur víða um íbúðina sem reyndust vera bæði úr Ntentes og Zingara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×