

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fékk í dag síðari sprautu bóluefnis AstraZeneca í dag. Þessu greinir hann frá á Facebook og skrifar að hann sé nú í hópi ríflega 65 prósenta Íslendinga sem eru orðnir fullbólusettir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var á meðal þeirra sem bólusettir voru með bóluefni AstraZeneca í dag. Um var að ræða bólusetningu með seinni skammti.
Sóttvarnalæknir var bólusettur með seinni skammti af bóluefni AstraZeneca í Laugardalshöll í dag. Hann kveðst ekki kvíðinn því að fá mögulega hausverk eða hita eftir sprautuna. Hann segir stefnt á að hefja bólusetningu barna 12 til 15 ára í haust.
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir og prófessor í ónæmisfræði, segir góðar líkur vera á því að þeir sem hafi fengið bóluefni Janssen muni þurfa á annarri sprautu að halda til að fá næga vörn gegn kórónuveirunni. Rannsóknir bendi til að „allar líkur“ séu á að þurfi að endurbólusetja þennan hóp.
Löng röð hefur myndast eftir bólusetningum í Laugardalshöll og nær hún langt upp á Suðurlandsbraut. Í dag er bólusett með seinni skammti af bóluefni AstraZeneca.
Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir gríðarlegan áhuga meðal foreldra á að láta bólusetja börnin sín við kórónuveirunni. Börn fædd síðar en 2005 verða ekki bólusett fyrr en í fyrsta lagi eftir að skólahald hefst í haust.
Rússnesk stjórnvöld segja íbúum landsins frjálst að ákveða hvort þeir þiggja bólusetningu eður ei en margir eiga á hættu að missa vinnuna ef þeir segja nei.
Ástralir eru nú sagðir óþreyjufullir gagnvart stjórnvöldum sem hafa komið á útgöngubanni í fjórum stórborgum í kjölfar fjölgunar Covid-smita síðustu daga. Bólusetningar ganga hægt og misvísandi skilaboð berast frá yfirvöldum.
Ferðamönnum sem koma til landsins í gegn um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað um frá um þúsund til tvö þúsund ferðamönnum á dag upp í fimm þúsund síðastliðnar tvær vikur. Í dag hafa lent 21 flugvél á Keflavíkurflugvelli og von er á fimm til viðbótar í kvöld.
Bóluefni Pfizer og Moderna eru líkleg til þess að veita langvarandi vörn gegn Covid-19. Ný rannsókn gefur til kynna að ekki verði þörf á viðbótarsprautu um nokkurra ára skeið eftir að maður hefur verið fullbólusettur.
Um 36 þúsund manns munu fá seinni skammt af bóluefnum gegn Covid-19 í vikunni, ef áætlanir ganga eftir. Þá verða yfir 200 þúsund manns fullbólusettir í vikulok.
Bresk-sænski lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur nú hafið prófanir á bóluefni gegn nýju afbrigði Covid-19, svokölluðu Beta-afbrigði veirunnar sem kennt er við Suður-Afríku.
Allar takmarkanir vegna farsóttar eru að falla úr gildi hér á landi. Þetta tekur gildi á morgun, 26. júní, en það þýðir raunar að þetta taki gildi strax á miðnætti í kvöld.
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan ellefu í dag um afléttingu sóttvarna og aðgerða á landamærunum.
Hægt er að komast hjá nærri öllum dauðsföllum af völdum Covid-19 með bólusetningu. Þetta segir framkvæmdastjóri Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna en aðeins 0,1 prósent þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús í Bandaríkjunum af völdum sjúkdómsins eru bólusettir.
Ekki þarf að koma á óvart að konur geti fengið óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu við Covid-19. Slíkt þekkist af öðrum bóluefnum og sjúkdómum og gæti skýrst af hita og bólgum, að sögn Jóns Magnúsar Jóhannessonar, sérnámslæknis í lyflækningum á Landspítalanum.
Allir sem ekki hafa verið bólusettir geta nú bókað bólusetningu með Janssen bóluefninu inni á netspjalli heilsuveru.is.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fella úr gildi ákvæði reglugerðar sem kveður á um forgangshópa. Samkvæmt áætlun eiga allir þeir sem skilgreindir eru í forgangshópum að vera búnir að fá boð í bólusetningu í lok þessarar viku.
Bólusetningum í Laugardalshöll er lokið í dag. Engir skammtar fóru þar til spillis.
Ennþá er opið í bólusetningu gegn Covid-19 og segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að enn séu um 500 skammtar eftir í Laugardalshöllinni. Líklega verði opið þar til klukkan 20:00 að minnsta kosti.
Bólusetningum í Laugardalshöll í dag fer senn að ljúka og styttist í að þeir ríflega ellefu þúsund skammtar af bóluefni Pfizer sem til stóð að gefa í dag klárist.
Auglýsing fyrir kjúklingastað er nú meðal þess sem birtist á stjórum skjá inni í stóra sal Laugardalshallar og tekur á móti höfuðborgarbúum sem hyggjast láta bólusetja sig við kórónuveirunni. Framkvæmdastjóri hallarinnar segir kjúklingastaðinn hafa átt hugmyndina að birtingu auglýsingarinnar, sem vel hafi verið tekið í.
Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segist ekki hafa orðið var við það að ungt fólk mæti í bólusetningu í Laugardalshöll, láti skanna strikamerkið sitt og yfirgefi svo svæðið án þess að fá sprautu. Með því væri hægt að fá bólusetningarvottorð án þess að hljóta fulla bólusetningu.
Bóluefni Moderna hefur nú fengið nýtt nafn og heitir því Spikevax það sem eftir er. Bóluefnið hefur verið í notkun hér á landi frá því í janúar og hefur hingað til verið vísað til þess bara sem „Moderna“ en nú hlýtur að verða breyting þar á.
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út bólusetningardagatal fram að „sumarfríi“. Enn stendur til boða að skrá sig í bólusetningu með efninu frá Janssen, í gegnum netspjallið á heilsuvera.is.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir miður að fólk sé farið að haga sér líkt og faraldri kórónuveirunnar sé lokið.
Bólusetningum verður fram haldið í Laugardalshöll í Reykjavík í dag, en bólusett verður með bóluefni Pfizer. Um er að ræða seinni bólusetningu og þá verður haldið áfram með aldurshópa sem dregnir voru af handahófi.
Aðeins 8.500 af 14.000 skömmtum af bóluefni Janssen gegn Covid-19 gengu út í Reykjavík í dag. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslunni segir að búist hefði verið við fleiri eftirlegukindum í dag. Ungt fólk á aldrinum 24 til 33 ára mætir síst af öllum í bólusetningu hér á landi.
Mæting í bólusetningu með bóluefni Janssen var heldur dræm í dag. Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að dyrunum hafi verið lokað klukkan fjögur
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að allir sem vilja geti mætt í bólusetningu með bóluefni Janssen fyrir kórónuveirunni nú eftir hádegi í dag. Fólk sem hefur fengið staðfesta kórónuveirusýkingu er sérstaklega hvatt til þess að mæta.