Samgöngur

„Hræddar brúður í kerfinu“ hafi komið í veg fyrir Vestmannaeyjagöng
Árni Johnsen vill að Vestmannaeyjagöng verði að veruleika.

Landeyjahöfn opnuð í dag
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag, í fyrsta sinn á þessu ári.

Stýrihópur um samgöngumál
Settur hefur verið á fót stýrihópur til að hefja viðræður til að móta tillögur um næstu skref í uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Vegagerðin hafi neyðst til að innkalla bankaábyrgð til að tryggja fjárfestingu
Vegagerðin segist hafa neyðst til að innkalla bankaábyrgð vegna nýsmíði Herjólfs til að tryggja fjárfestingu ríkisins í verkefninu. Skipasmíðastöðin hafi áður í smíðaferlinu framlengt bankaábyrgðir á allra síðustu stundu.

Stefnt að opnun Landeyjahafnar á fimmtudag
Stefnt er að því að Herjólfur sigli um Landeyjahöfn á fimmtudagsmorgun. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir að ákvörðunin sé tekin með fyrirvara um mælingar sem gerðar verða í höfninni á morgun, miðvikudag.

Vegagerðin innkallaði bankaábyrgðir vegna nýs Herjólfs
Íslenska ríkið hefur krafist þess að skipasmíðastöðin Crist í Póllandi sem smíðar nýjan Herjólf endurgreiði þann kostnað sem greiddur hefur verið vegna smíði skipsins. Björgvin Ólafsson, umboðsmaður skipasmíðastöðvarinnar hér á landi, segir þetta ígildi riftunar samnings um nýsmíðina.

Skipasmíðastöðin kynnir nýjan Herjólf til leiks í dramatísku myndbandi
Hinn nýji Herjólfur er hinn glæsilegasti ef marka má myndband sem pólska skipasmíðastöðin Crist S.A sendi frá sér fyrr í mánuðinum.

Pólski sendiherrann vonar að nýr Herjólfur verði afhentur í næsta mánuði
Pólski sendiherrann á Íslandi vonar að nýr Herjólfur verði afhentur Vegagerðinni í næsta mánuði. Hann hafði milligöngu um fund fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar hjá samgönguráðherra fyrir helgi. Ráðherra segist hafa hvatt til þess að skipasmíðastöðin og Vegagerðin næðu saman sem fyrst svo afhenda megi skipið.

Eimskip grípur aftur til uppsagna
Breytingarnar munu taka gildi frá og með 2. maí.

Ökumaður á rauðu ljósi ók á barn rétt hjá hinum slysstaðnum á Hringbraut
Lækkun hámarkshraða hefur þegar tekið gildi á Hringbraut en ekki verður hægt að framfylgja lækkuninni fyrr en merkingar verða settar upp í maí.

Ný akleið opnast milli Mývatns og Húsavíkur
Landsvirkjun er að hefja lagningu heilsársvegar sem tengja mun Þeistareyki og Mývatnssveit. Þetta verður ein stærsta vegagerð ársins og mun opna áhugaverða hringleið fyrir ferðamenn.

Segir langvarandi lokun Landeyjahafnar vera fíaskó
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur haft samband við tvö erlend fyrirtæki vegna dýpkunar Landeyjahafnar. Ráðið krefst þess að Vegagerðin leiti út fyrir landsteinanna eftir hjálp til að opna höfnina. Formaður bæjarráðs segir langvarandi lokun Landeyjahafnar vera fíaskó af hálfu eiganda hennar.

Aðstæður oft verri en spáin
Framkvæmdastjóri Björgunar segir áætlunina hafa verið þannig að Vegagerðin ætlaði að mæla núna fyrri partinn í dag. Því var flýtt um einn sólarhring. Núna séu þeirra menn og búnaður sé kominn á staðinn og fara á fullt í það að vinna sín verk.

Björgun á leið í Landeyjahöfn til að dýpka
Vegagerðin óhress með viðbrögð forsvarsmanna fyrirtæksins.

Mikið rennsli í ám landsins
Vegna mikils vatnselgs og leysingar varð að loka við Dettifoss í morgun um óákveðinn tíma og er því Dettifossvegur lokaður þar til talið verður óhætt að hleypa fólki inn á svæðið. Þá er mjög mikið rennsli í flestum ám á landinu vegna hlýinda og leysinga. Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir mikilvægt að ferðamenn sýni aðgát í nágrenni við þær.

Lögreglan þarf 500 milljónir í auka fjárframlög ef frumvarp til nýrra umferðarlaga verður að lögum
Aðallögfræðingur hjá lögreglunni segir breytingar um að lækka leyfileg mörk vínandamagns í blóði ökumanns leiða til töluvert fleiri verkefna hjá lögreglu, sem muni kalla á aukin útgjöld

Hvalfjarðargöng loka í skamman tíma fari mengun yfir viðmiðunarmörk
Páskarnir eru tími ferðalaga fyrir fjölmarga Íslendinga, umferð um þjóðvegi landsins getur því aukist mikið yfir næstu helgi með tilheyrandi útblæstri, veðri mengun of mikil í Hvalfjarðargöngum, er þeim sjálfvirkt lokað á meðan að ræst er út.

Hátíð í heilum fjórðungi þegar langþráð draumsýn rætist
Flaggað var víða á Vestfjörðum í tilefni þess að síðasta haftið í Dýrafjarðagöngum var rofið í dag. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð gengið jafnvel hérlendis.

Stefnt að því að vígja brúna yfir Eldvatn í sumarlok
Vegagerðin stefnir á það að vígja nýju brúna yfir Eldvatn í sumarlok en góður gangur er í brúarsmíðinni að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Viðhafnarsprenging í Dýrafirði á morgun
Boðað hefur verið til mannfagnaðar í Dýrafirði á morgun í tilefni þess að þá verður slegið í gegn í Dýrafjarðargöngum. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð á Íslandi gengið jafn vel og þessi.

Tókust á um göngugötur í borgarstjórn: „Hatrið á fjölskyldubílnum“
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagði að göngugatnavæðing meirihlutans í borginni einkenndist af hatri á fjölskyldubílnum.

Veðrið hefur áhrif á Strætóferðir
Slæmt veður á Suður- og Vesturlandi hefur áhrif á leiðir Strætó á landsbyggðinni í dag.

Út um borg og bí
Við sem myndum sveitarstjórnir höfuðborgarsvæðisins spönnum breitt pólitískt litróf. Við höfum ólíka sýn og áherslur en við sameinumst um lífsgæði íbúanna og uppbyggingu samgangna til framtíðar.

Verkhönnun 2+1 vegar um Kjalarnes boðin út
Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun vegna breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Vonast er til að nýr tveir plús einn vegur með aðskildum akreinum verði tilbúinn eftir þrjú ár.

Ekkert banaslys orðið í umferðinni á árinu það sem af er
Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er ári og fara þarf tæplega áttatíu ár aftur í tímann til þess að finna tímabil þar sem ekkert banaslys hafði orðið þegar svo langt er liðið inn á árið eins og nú.

Allt á floti og lífshættulegar aðstæður við Dettifoss
Lífshættulegar aðstæður hafa skapast við Dettifoss eftir miklar leysingar undanfarna daga. Dettifossvegi hefur verið lokað vegna ástandsins og óvíst er hversu lengi lokunin varir.

Þrenn jarðgöng grafin samtímis í Færeyjum
Færeyingar eru að hefjast handa við enn ein jarðgöngin, Hvalbiargöngin. Þessi jarðgangagerð bætist við tvær aðrar risaframkvæmdir; gerð tveggja neðansjávarganga.

Stefnt að fundi með pólsku skipasmíðastöðinni í næstu viku
Fulltrúar Vegagerðarinnar stefna að fundi með forsvarsmönnum pólsku skipasmíðastöðvarinnar í næstu viku þar sem reynt verður að ná samningum um afhendingu nýs Herjólfs.

Fulltrúar Vegagerðarinnar halda til viðræðna í Póllandi
Fulltrúar Vegagerðarinnar eru á leið til viðræðna um lokauppgjör vegna smíði á nýjum Herjólfi. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar greindi frá þessu á bæjarstjórnarfundi í kvöld.

Þingvallavegi verður lokað fram á haust
Seinni hluti framkvæmda við endurbætur á Þingvallavegi hefjast 24. apríl næstkomandi.