
Bandaríkin

Tónlistarframleiðandi sakar Diddy um káf og önnur kynferðisbrot
Tónlistarframleiðandi hefur höfðað mál á hendur athafna- og tónlistarmanninum Sean Combs vegna meintra kynferðisbrota. Segir maðurinn Combs meðal annars hafa káfað á sér og neytt sig til að sænga hjá kynlífsstarfsmönnum.

Viðræður um fangaskipti og vopnahlé mjakast áfram
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að samkomulag um vopnahlé og lausn gísla í haldi Hamas myndi mögulega liggja fyrir eftir um það bil viku. „Við erum nálægt því. Við erum ekki búin ennþá. Ég vona að á mánudag verði vopnahlé í höfn,“ sagði forsetinn.

Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka
Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá þorpi í austurhluta Úkraínu, skammt vestur af borginni Avdívka, sem féll nýverið í hendur Rússa eftir gífurlega harða bardaga frá því í október. Þaðan hörfuðu hermenn til þorpsins Lastochkyne og hafa þeir nú hörfað lengra til vesturs.

Kveikti í sér fyrir utan sendiráð Ísrael í Washington D.C.
Maður var fluttur á sjúkrahús í gær eftir að hafa kveikt í sér fyrir utan sendiráð Ísraels í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Hann er sagður hafa kallað „Frjáls Palestína“ áður en hann hellti yfir sig olíu og bar eld að sér.

Raunveruleikinn hvarf
Færni gervigreindar til sjálfvirkrar sköpunar á texta, hljóði og mynd (s.k. sköpunargreind, e. generative artificial intelligence) hefur fengið þó nokkra athygli undanfarið. Í slíkri sjálfvirkri sköpun lærir gervigreindin undirliggjandi uppbyggingu og notar lærdóminn til að skapa eitthvað nýtt, en svipað. Alls ekki ólíkt því ef ég myndi ætla að læra að mála með olíu í stíl kúbisma.

Nýfrjálshyggjunni er ekki illa við einokun
Mont Pelerin-klúbburinn, sem átti eftir að verða eins konar akademía nýfrjálshyggjufólks (neoliberals), tók á stofnfundi sínum 1947 eindregna afstöðu gegn einokun og með samkeppni á frjálsum markaði.

Léku bakarí grátt og Musk lofar bót og betrun
Auðjöfurinn Elon Musk hefur lofað að ná sáttum við bakarí í Kaliforníuríki Bandaríkjanna, eftir að fyrirtæki hans hætti við umfangsmikla pöntun á síðustu stundu.

Umfangsmiklar loftskeytaárásir á Húta
Bandaríkjamenn og Bretar gerðu með stuðningi fleiri ríkja loftárás á átján skotmörk Húta í Jemen í dag. Er þetta fjórða árásin á Hútana frá því að flugskeytaárásir þeirra hófust í Rauðahafinu í nóvember.

Tók morðið upp á símann: „Í myndunum mínum deyja alltaf allir“
Karlmaður frá Suður-Afríku, Brian Steven Smith, var nýlega fundinn sekur um að hafa myrt tvær konur og fjölmörg kynferðisbrot gegn konunum báðum sem báðar voru frumbyggjar frá Alaska. Lögregla komst á snoðir um brot mannsins eftir að kona stal símanum hans og afhenti lögreglu í kjölfarið minnislykil með myndböndum og myndum úr honum.

Forsetahjónin miður sín vegna hundsins sem bítur ítrekað
Commander Biden, fjölskylduhundur Joe Biden Bandaríkjaforseta, er til sífelldra vandræða en 24 atvik hafa verið tilkynnt þar sem hann hefur bitið starfsfólk bandarísku leyniþjónustunnar.

Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar.

Djúpfölsuð sjálfsfróun hlaðvarpsstjörnu afhjúpar brotalamir á Twitter
Hlaðvarpsstjörnunni Bobbi Althoff brá í brún þegar hún sá hvers vegna nafn sitt hafði verið að trend-a á samfélagsmiðlinum X. Djúpfalsað myndband (e. deep fake) af Althoff að fróa sér var þá búið að vera í dreifingu á miðlinum og fengið margar milljónir áhorfs.

Wendy Williams með málstol og framheilabilun
Wendy Williams, þáttastjórnandi, hefur greinst með málstol og framheilabilun. Greiningin er nákvæmlega sú sama og leikarin Bruce Willis hlaut árið 2022.

Baltasar og Eliza á hátíðarsýningu Natatorium
Hátíðarsýning var á íslensku kvikmyndinni Natatorium í Smárabíói síðastliðinn miðvikudag fyrir fullum sal. Myndin hlaut góðar viðtökur gesta að sýningu lokinni.

Krefst einnig friðhelgi í skjalamálinu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á að dómsmál vegna opinberra gagna og leynilegra skjala sem hann tók með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og til Flórída, verði fellt niður. Lögmenn hans segja hann hafa svipt skjölin leynd sem forseti og þau hafi verið hans einkaeign, því hafi í raun aldrei átt að ákæra hann á grundvelli friðhelgi forseta.

Lentu á tunglinu í fyrsta sinn í hálfa öld
Bandaríkjamenn lentu í gærkvöldi fyrsta farinu á tunglinu í rúma hálfa öld. Lendingarfarið Ódysseifur, sem þróað var af starfsmönnum fyrirtækisins Intuitive Machines, með stuðningi Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) lenti við suðurpól tunglsins en óljóst er hversu vel lendingin heppnaðist.

Vopnavörðurinn sögð hafa verið óvandvirk
Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed er sögð hafa verið óvandvirk á setti kvikmyndarinnar Rust. Hún sá um að hlaða byssu fyrir leikarann Alec Baldwin við tökur sem svo hleypti af henni með þeim afleiðingum að kvikmyndagerðarkonan Halyna Hutchins lést þann 21. október 2021. Bæði eru þau ákærð fyrir manndráp af gáleysi.

Ný tilraun til vopnahlésviðræðna um helgina
Sendinefnd frá Ísrael mun taka þátt í vopnahlésviðræðum í París um helgina ásamt fulltrúum Bandaríkjanna, Katar og Egyptalands. Viðræðuefni verði ásamt vopnahlé frelsun ísraelskra gísla á Gasasvæðinu.

Reyndi að selja efni í kjarnorkuvopn til Írans
Japanskur glæpaforingi reyndi að selja bandarískum flugumanni geislavirk efni sem hægt er að nota til að smíða kjarnorkusprengju. Glæpaforinginn vildi einnig kaupa vopn handa uppreisnarmönnum í Mjanmar og selja fíkniefni í New York.

Stúlka lést þegar hola í sandi féll saman
Sjö ára stúlka lét lífið og níu ára bróðir hennar slasaðist þegar hola sem þau voru að grafa á strönd í Flórída féll saman í gær. Fjöldi fólks reyndi að grafa stúlkuna upp með höndunum en holan féll sífellt aftur saman.

Biden kallar Pútín „tíkarson“ og furðar sig á ummælum Trump
Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði Vladimir Pútín Rússlandsforseta „brjálaðan tíkarson“ á fjáröflunarviðburði í San Francisco í gær, auk þess sem hann skaut á forvera sinn Donald Trump fyrir að bera sig saman við rússneska andófsmanninn Alexei Navalní.

Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“
Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega.

Lyginn uppljóstrari í samskiptum við rússneska embættismenn
Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) sem sakaður er um að hafa logið um það að Joe Biden, forseti, og sonur hans Hunter hafi tekið við mútum segist hafa átt í samskiptum við útsendara frá rússneskri leyniþjónustu. Saksóknarar lýsa honum sem raðlygara sem geti ekki sagt satt um grunnatriði um eigið líf.

Stökkpallur fyrir íslenskar lausnir
Tvíhliða samstarf Bandaríkjanna og Íslands á sviði orku- og loftslagsmála markar nýjan kafla í útflutningi íslenskra loftslagslausna og áframhaldandi nýsköpun hér á landi. Það eru tíðindi þegar orkumálaráðherra Bandaríkjanna lýsir því yfir að þær loftslagslausnir, þekking og reynsla sem Íslendingar búa yfir sé mikilvæg fyrir orkuskipti Bandaríkjanna og þá gríðarstóru grænu umbreytingu sem þörf er á í heiminum.

Segja Bandaríkin gefa grænt ljós á slátrun á Gasa
Kínverjar gagnrýna Bandaríkin harðlega fyrir að hafa beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar tillaga um vopnahlé á Gasa var lögð fyrir ráðið.

Vinsæll áhrifavaldur dæmdur fyrir að beita eigin börn ofbeldi
Sex barna móðir, sem öðlaðist vinsældir og frægð fyrir að deila uppeldisráðum á YouTube-rás sinni, hefur verið dæmd í fjögurra til 60 ára fangelsi fyrir illa meðferð á börnum.

Tveir ákærðir fyrir morð í sigurgöngu Kansas City Chiefs
Tveir karlmenn eru ákærðir fyrir morð eftir að kona lét lífið og 22 særðust í skotárás í lestarstöð nærri sigurgöngu ameríska fótboltaliðsins Kansas City Chiefs síðasta miðvikudag, fjórum dögum eftir að ofurskálin fór fram.

Ögurstund í máli Julian Assange
Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins.

Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum
Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga.

Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur
Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá.