Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Þjónustu­mið­stöð 60+ í Hvera­gerði

Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum bæjarins, sem við erum einkar stolt af.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­fé­lag sem stendur með fólki

Þegar fólk glímir við geðrænan vanda skiptir sköpum að þjónustan sé til staðar í nærumhverfinu. Þar gegna sveitarfélög lykilhlutverki. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að fólk þurfi að leita langt eftir grunnstuðningi eða bíða mánuðum saman eftir viðeigandi úrræðum.

Skoðun
Fréttamynd

Borgarlínan og um­ferðin í Grafar­vogi

Gert er ráð fyrir að Borgarlínan fari að stórum hluta í sérrými, jafnt í Grafarvogi sem annars staðar. En slíkt rými verður ekki til úr engu. Á jafn mikilvægum samgönguæðum eins og Höfðabakka og Gullinbrú verður það ekki gert nema með einum hætti: að taka rými frá núverandi umferð og þrengja að henni.

Skoðun
Fréttamynd

Fossvogslaug – góð hug­mynd, engin fram­kvæmd

Það er fátt sem sameinar Íslendinga jafn mikið og sundlaugar. Þær eru vettvangur hreyfingar, heilbrigðis, menntunnar og daglegrar samveru. Því er athyglisvert og um leið áhyggjuefni hversu lengi hugmyndin um sundlaug í Fossvogi hefur verið til umræðu án þess að komast í framkvæmd.

Skoðun
Fréttamynd

Skil­virkni og gagn­sæi í mál­efnum flótta­fólks

Sveitarfélög vítt og breitt um landið hafa undirritað samninga um svokallaða samræmda móttöku flóttafólks. Samningarnir eru gerðir við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, ásamt Vinnumálastofnun. Sveitarfélög ákveða sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau taka á móti samkvæmt samningnum.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­sjóðurinn í matarkistunni

Matur er á vörum okkar daglega, enda grunnurinn að heilsu okkar og næringu. Þá væru viðburðir, samkomur og fjölskylduboð lítilfjörleg án hans. Matur er allt í kring um okkur og með auknum ferðamanna straumi hefur norræn og íslensk matarmenning fengið byr undir báða vængi og hróðurinn farinn að berast um allan heim.

Skoðun
Fréttamynd

Sterkari Há­skóli, sterkari Akur­eyri!

Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Hvera­gerði klippt í sundur

Núverandi sveitarstjórn í Hveragerði hefur látið vinna nýtt aðalskipulag og mun það að öllu óbreyttu taka gildi fljótlega eftir kosningar. Þar er margt ágætt en það er einkum eitt sem stingur í augu og það er að gert er ráð fyrir því að færa þjóðveginn lítillega til suðurs.

Skoðun
Fréttamynd

Sérðu tákn­málið?

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi er ástæða til að staldra við og spyrja: hverjir fá rödd – og hverjir sjást?

Skoðun
Fréttamynd

Kópavogsdalur er okkar Central Park

Skipulagsmál eru einhver mikilvægustu verkefni sem sveitarfélög hafa með höndum. Það er á forræði skipulagsyfirvalda að ráðstafa takmörkuðum gæðum þannig að lífsgæði verði betri. Þar skiptir öllu að fagleg og vönduð vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Regnbogagrýlan

Undanfarið hefur orðið til hávær umræða um regnbogafánann í skólum, knúin áfram af gagnrýni úr pólitík um að þar sé brotið gegn hlutleysi. En áður en við tökum undir slíkar áhyggjur er eðlilegt að spyrja: er hér raunverulegt vandamál, eða er verið að búa það til?

Skoðun
Fréttamynd

Kostnaður, kvíði og að­skilnaður

Það er eitthvað verulega skakkt við stöðuna í Vestmannaeyjum þegar verðandi foreldrar neyðast til að taka þá erfiðu ákvörðun að vera fjarri heimili sínu á einu mikilvægasta augnabliki lífsins.

Skoðun
Fréttamynd

Stað­festur kerfisbrestur! Hver ber á­byrgð?

Staðan í samgöngumálum Vestmannaeyja er ekki lengur bara áhyggjuefni heldur er hún orðin óásættanleg. Það er ekki lengur hægt að tala um þetta sem tímabundið ástand eða óheppni. Þetta er staðfestur kerfisbrestur.

Skoðun
Fréttamynd

Lýðheilsa og leiðin til Siglu­fjarðar

„Nú berast fréttir af einu fjalli enn til að bora og aka í gegnum til Siglufjarðar“, sagði góður vinur á árdögum Valkyrjustjórnarinnar. Við sammæltumst um að ábyrg stjórnsýsla og meðferð skattfjár tryggðu að fullrannsökuðum Fjarðarheiðargöngum yrði ekki frestað fyrir órannsökuð Fljótagöng.

Skoðun
Fréttamynd

Það sem skiptir raun­veru­lega máli

Miðvikudaginn 15. apríl ávarpaði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra þing Kennarasambands Íslands þar sem hún ræddi meðal annars stöðu skólakerfisins og þær áskoranir sem blasa við.

Skoðun
Fréttamynd

STRAX-D

Ég fæ sömu spurninguna aftur og aftur þegar ég tala við fólk í borginni, hvort sem það eru almennir borgarar eða forsvarsfólk félagasamtaka: „Af hverju gerist ekkert í Reykjavík?“ Mál þvælast frá fundi til fundar, frá einni nefnd tilannarrar. Það er rýnt, skipulagt og greint

Skoðun
Fréttamynd

Tón­listar­borgin eflist!

Samstarfsflokkarnir í borgarstjórn undir forystu Samfylkingarinnar leggja mikla áherslu á öflugt menningarlíf og undir okkar forystu hafa framlög til menningarmála aukist jafnt og þétt. Þannig hafa heildarstyrkir til sjálfstæðra listamanna og listhópa hækkað þrívegis á kjörtímabilinu eftir að hafa staðið í stað næstu 7 ár þar á undan.

Skoðun
Fréttamynd

Kominn tími til í Kópa­vogi

„Ég þarf bara einhvern þangað inn sem hlustar á bæjarbúa og gengur í verkin.“ Þetta heyri ég aftur og aftur í samtölum við Kópavogsbúa. Skilaboðin eru skýr: fólk vill bæjarfulltrúa sem hlusta - og ganga í verkin. Það er kjarninn í því sem Viðreisn í Kópavogi vill gera. Við viljum betra bæjarfélag þar sem almannahagsmunir ráða ferðinni, ekki sérhagsmunir.

Skoðun
Fréttamynd

Sögnin að banna

Að banna eitthvað þýðir að leyfa það ekki. Það er bannað að reykja á skólalóðum, að snerta boltann með höndunum í fótbolta og að keyra á göngugötum. Það að þessir hlutir séu bannaðir þýðir að ef þú reynir að gera þá þá mun einhver koma og reyna að hindra þig í þessu bannaða atferli eða refsa þér fyrir það.

Skoðun
Fréttamynd

Við stöndum á tíma­mótum

Árborg er og hefur undanfarin ár verið í örum vexti. Fólk hefur valið að setjast hér að, ala upp börnin sín og horfa til framtíðar. En með miklum vexti fylgja líka áskoranir og ábyrgð.

Skoðun