Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar 17. apríl 2026 12:02 Lífið í efri byggð Kópavogs er almennt gott. Þegar maður flytur í efri byggðir þarf maður að vera viðbúinn því að sækja sér vinnu og ýmsa þjónustu annars staðar. Það eru nefnilega ýmis lífsgæði sem fylgja því að búa í efri byggðum Kópavogs, svo sem nálægð við náttúru, rólegra umhverfi og gott aðgengi að útivistarsvæðum. Jafnframt eru tækifæri til að byggja upp þjónustu í takt við þessa þróun fjölmörg. Eitt þessara sóknarfæra er uppbygging menningarhúss eða bókasafns, sem efri byggðum hefur margoft verið lofað, nú síðast í 100 loforða lista í málefnasáttmála núverandi bæjarstjórnar. Þar stendur í loforði númer 87 að finna þurfti hentugri staðsetningu fyrir menningarmiðstöð í efri byggðum. Þetta loforð telur meirihlutinn sig hafa efnt. Raunin er þó önnur. Þetta var efnt þannig að almenningsbókasafni í Lindum verður lokað og það fært í Smáralind sem er enn fjær efri byggðum. Í staðinn fá íbúar efri byggðar Kópavogs menningarmiðstöð í 160 fermetra húsnæði inni í Kór, sem verður að teljast lítið rými miðað við þann fjölda íbúa sem þjónustan á að ná til og óviss hvort slíkt húsnæði muni nægja þeim fjölda íbúa sem býr í efri byggðum. Efri byggðir eiga einnig að vera án bókasafns til 2029 sem er sá tími sem bæjaryfirvöld ætla að gefa sér til að gera þessa 160 fermetra menningarmiðstöð tilbúna. Uppbygging slökkvistöðvar í efri byggðum hefur tafist um árabil vegna deilna um lóðir. Hver mínúta getur skipt sköpum þegar um alvarleg veikindi er að ræða og því geta þessar tafir á uppbyggingu verið dýrkeyptar fyrir fólk í efri byggðum. Sem betur fer hefur bærinn samþykkt að ný slökkvistöð rísi í Tónahvarfi. Þessar deilur um lóðamál og greiðslur fyrir þær hafa tafið fyrir uppbyggingu í þessu stóra hverfi. Það er fagnaðarefni að meirihlutinn hafi hlustað á gagnrýni okkar í Samfylkingunni og drifið í að samþykkja þessa beiðni frá slökkviliðinu. Uppbygging leikskólalóða í efri byggðum hefur setið á hakanum. Í verkefninu Skemmtilegri leikskólalóðir voru Baugur og Rjúpnahæð teknir fyrir síðastir í fyrsta fasa. Staðan er þung á leikskólalóðum Austurkórs, Aðalþings og Sólhvörfum varðandi uppbyggingu en samt sem áður hafa þær ekki hlotið náð fyrir augum bæjarins um uppbyggingu og verið færðar aftar í röðina vegna forgangs neðri byggða. Í skýrslu frá Umhverfissviði bæjarins má sjá að lóðir í efri byggðum eru litlar, leiktækin fá og leiktækifæri almennt minni en á lóðum í neðri byggðum. Þá er staðan sérstaklega slæm á einkareknu leikskólunum tveim, Aðalþingi og Kór, þar sem aðbúnaður og leiksvæði hafa ekki fengið nauðsynlega uppbyggingu. Efri byggðir Kópavogs eru góður staður til að búa á. Við þurfum hins vegar ekki að sætta okkur við að þjónusta sé verri en í öðrum hverfum og að neðri byggðir njóti ítrekað forgangs fram yfir okkur þegar kemur að uppbyggingarverkefnum. Samfylkingin í Kópavogi er óhrædd við að forgangsraða í þágu þjónustu; þar með talið uppbyggingu þjónustu í efri byggðum. Það er nefnilega ekki feimnismál að veita þjónustu og bæjarstjórn Samfylkingar mun kappkosta við að veita þjónustu í nærumhverfi íbúa. Samfylkingin boðar breytta forgangsröðun í rekstri bæjarins, ekki bara í þágu verkefna heldur líka að þjónusta sé veitt með sanngjarnari hætti fyrir alla Kópavogsbúa. Höfundur er kennari, íbúi í efri byggð Kópavogs og skipar 7. sæti á lista Samfylkingar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar