Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar 24. október 2026 11:30 … varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar. Áður en einhver hugsar með sér að þessi stelpa eigi nú bara að hætta að væla og hefði bara gott af því að hjóla í og úr vinnu tilkynnist það hér með að ég keyri 19 km í vinnu og 19 km heim aftur og nei, ég hef bara engan áhuga á að hjóla alla þessa leið í öllum veðrum allan ársins hring auk þess sem vegakerfið býður hreinlega ekki upp á það án þess að ég setji mig í stórhættu í leiðinni. Ráðherrarnir sem lofuðu að hækka ekki skatta á venjulegt fólk eru búnir að ná þeim magnaða árangri á innan við tveimur árum að: - Lækka vaxtabætur- Lækka barnabætur- Lækka virði persónuafsláttar- Taka út samnýtingu skattþrepa hjóna- Hækka sértæka skatta á eitt sveitarfélag- Leggja á kílómetragjald- Hækka kolefnisgjald- Hækka kílómetragjald- Hækka veiðigjöld- Setja á komugjöld í sjúkraþjálfun- Hækka komugjöld á heilsugæslu- Lækka framlög til Vegagerðarinnar- Lækka styrki til kaupa á rafbílum- Skerða loftbrú Drjúgur hluti af þessum skattahækkunum, sem eiga víst að vera eitthvað þolanlegri bara af því að ríkisstjórnin kallar þá leiðréttingu, breytingu eða óbreytta krónutölu, hafa alveg gríðarleg áhrif á starfsskilyrði á landsbyggðinni og geta jafnvel kæft arðbær verkefni í fæðingu, verkefni sem hefðu skapað ríkissjóði tekjur hefðu þau fengið að fæðast, vaxa og dafna. Á sama tíma sér ríkisstjórnin enga ástæðu til að taka til og spara í eigin ranni. Kílómetragjaldið, svo ég tiltaki það sérstaklega, hefur mun meiri áhrif á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu þar sem við sem hér búum höfum fæst aðra valmöguleika til ferðalaga en að nýta einkabílinn. Ekki hvað síst vegna þess að búið er að þjappa stærstum hluta sérfræðiþjónustu heilbrigðiskerfisins saman á suðvesturhorninu. Það vita það kannski ekki allir en fólk úti á landi veikist og slasast líka og þarf að sækja þjónustu til ýmissa sérfræðinga heilbrigðiskerfisins þess vegna. Stærstu liðir þessara skattahækkana, nei afsakið leiðréttinga, breytinga eða frystingu krónutölu, koma verst við landsbyggðina en skipta mögulega nærumhverfi hæstvirtra ráðherra minna máli. Er það ástæðan fyrir því að þeim reynist svona auðvelt að hækka landsbyggðaskatta? Það er mannlegt að hugsa þannig, það er mun auðveldara að taka eftir því sem gerist nær manni en fjær og því fer fjarri að ég ætli að fara að skamma hæstvirta ráðherra fyrir að vera mannlegir. Ég vil hins vegar benda þeim á að af því að þeir eru jafn mannlegir og ég þá eru þeir engan veginn betur til þess fallnir að eyða mínu sjálfsaflafé en ég. Kæru ráðherrar, hættið að taka af landsbyggðarfólki fé sem er aflað fjær ykkur til þess að eyða því í verkefni sem eru nær ykkur. Höfundur er bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húnaþing vestra Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
…
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar