Skoðun

Af hverju er ríkis­stjórninni svona illa við lands­byggðina…

Sigríður Ólafsdóttir skrifar

… varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar.

Áður en einhver hugsar með sér að þessi stelpa eigi nú bara að hætta að væla og hefði bara gott af því að hjóla í og úr vinnu tilkynnist það hér með að ég keyri 19 km í vinnu og 19 km heim aftur og nei, ég hef bara engan áhuga á að hjóla alla þessa leið í öllum veðrum allan ársins hring auk þess sem vegakerfið býður hreinlega ekki upp á það án þess að ég setji mig í stórhættu í leiðinni.

Ráðherrarnir sem lofuðu að hækka ekki skatta á venjulegt fólk eru búnir að ná þeim magnaða árangri á innan við tveimur árum að:

- Lækka vaxtabætur

- Lækka barnabætur

- Lækka virði persónuafsláttar

- Taka út samnýtingu skattþrepa hjóna

- Hækka sértæka skatta á eitt sveitarfélag

- Leggja á kílómetragjald

- Hækka kolefnisgjald

- Hækka kílómetragjald

- Hækka veiðigjöld

- Setja á komugjöld í sjúkraþjálfun

- Hækka komugjöld á heilsugæslu

- Lækka framlög til Vegagerðarinnar

- Lækka styrki til kaupa á rafbílum

- Skerða loftbrú

Drjúgur hluti af þessum skattahækkunum, sem eiga víst að vera eitthvað þolanlegri bara af því að ríkisstjórnin kallar þá leiðréttingu, breytingu eða óbreytta krónutölu, hafa alveg gríðarleg áhrif á starfsskilyrði á landsbyggðinni og geta jafnvel kæft arðbær verkefni í fæðingu, verkefni sem hefðu skapað ríkissjóði tekjur hefðu þau fengið að fæðast, vaxa og dafna. Á sama tíma sér ríkisstjórnin enga ástæðu til að taka til og spara í eigin ranni.

Kílómetragjaldið, svo ég tiltaki það sérstaklega, hefur mun meiri áhrif á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu þar sem við sem hér búum höfum fæst aðra valmöguleika til ferðalaga en að nýta einkabílinn. Ekki hvað síst vegna þess að búið er að þjappa stærstum hluta sérfræðiþjónustu heilbrigðiskerfisins saman á suðvesturhorninu. Það vita það kannski ekki allir en fólk úti á landi veikist og slasast líka og þarf að sækja þjónustu til ýmissa sérfræðinga heilbrigðiskerfisins þess vegna.

Stærstu liðir þessara skattahækkana, nei afsakið leiðréttinga, breytinga eða frystingu krónutölu, koma verst við landsbyggðina en skipta mögulega nærumhverfi hæstvirtra ráðherra minna máli. Er það ástæðan fyrir því að þeim reynist svona auðvelt að hækka landsbyggðaskatta? Það er mannlegt að hugsa þannig, það er mun auðveldara að taka eftir því sem gerist nær manni en fjær og því fer fjarri að ég ætli að fara að skamma hæstvirta ráðherra fyrir að vera mannlegir. Ég vil hins vegar benda þeim á að af því að þeir eru jafn mannlegir og ég þá eru þeir engan veginn betur til þess fallnir að eyða mínu sjálfsaflafé en ég.

Kæru ráðherrar, hættið að taka af landsbyggðarfólki fé sem er aflað fjær ykkur til þess að eyða því í verkefni sem eru nær ykkur.

Höfundur er bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×