Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar 17. apríl 2026 08:46 Vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins áttu upphaflega að styðja við þróun byggðar, bæta landnýtingu og styrkja innviði. Óhætt er að segja þær fyrirætlanir hafi að orðið að engu heldur hafa vaxtarmörkin þróast í staðnað kerfi sem heldur aftur af eðlilegri og nauðsynlegri uppbyggingu, með alvarlegum afleiðingum. Í Hafnarfirði er nú unnið af krafti að uppbyggingu. Íbúðum fjölgar, þéttingarsvæði eru nýtt og ný hverfi rísa með blandaðri byggð. Þrátt fyrir það blasir við að núverandi kerfi mun ekki ná að mæta raunverulegri þörf. Vandinn liggur ekki í skorti á vilja til uppbyggingar í Hafnarfirði, heldur í þeim skorðum sem settar hafa verið. Þær skorður skrifast á vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins og andstöðu vinstri flokkanna í sveitarstjórnum, sér í lagi í borgarstjórn Reykjavíkur, til að gera nauðsynlegar breytingar. Brostnar forsendur fyrir fólk og fyrirtæki Forsendurnar sem vaxtarmörkin byggja á ríma ekki við raunveruleikann. Raunveruleg íbúðaþörf hefur verið vanmetin árum saman. Horft hefur verið fram hjá lýðþróun, uppsafnaðri íbúðaskuld og breyttu fjölskyldumunstri. Áætlanir hafa gert ráð fyrir of háu hlutfalli íbúa á hverja íbúð og þar með of lítilli uppbyggingu. Niðurstaðan er sú staða sem við þekkjum: viðvarandi skortur á húsnæði. Það er ekki nóg að benda á lóðir innan núverandi marka ef þær eru ekki byggingarhæfar þegar þörfin er til staðar. Í mörgum tilvikum eru þessar lóðir bundnar flóknum skipulagsferlum, innviðaskorti eða öðrum hindrunum. Dæmin sýna að skipulagsferlið á höfuðborgarsvæðinu er alltof langt og flókið. Sem dæmi má nefna að skiplagsferli og uppbygging Hlíðarenda stefnir í að taka 35 ár, Ártúnshöfðans 40 ár og Blikastaðalandsins 50 ár. Það sér það hver maður að slíkt kerfi gengur ekki upp.Vaxtarmörkin hafa einnig áhrif á aðra mikilvæga þætti. Horft hefur verið fram hjá þörf fyrir atvinnuhúsnæði innan svæðisins. Gert er ráð fyrir að fyrirtæki víki af svæðum sem á að nýta undir íbúðir, en á sama tíma vantar skýra sýn um hvar ný atvinnustarfsemi eigi að byggjast upp. Það er ekki sjálfbær nálgun því atvinnulíf, uppbygging íbúðarhverfa og samgöngur þurfa að haldast í hendur. Neitunarvald borgarstjórnar Reykjavíkur Þá verður ekki horft fram hjá því valdaójafnvægi sem hefur myndast milli sveitarfélaga á vettvangi Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur nýtt krafta sína í ljósi þess að borgin fjármagnar 60% af kostnaði við rekstur samtakanna. Þannig hafa borgarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjavík ekki hikað við að beita fullri hörku þegar umræða berst að breytingum á vaxtarmörkunum, ýmist kæft þá umræðu í fæðingu eða beitt nágrannasveitarfélögin bolabrögðum. Þá hefur það sýnt sig að breytingar sem Reykjavík styður komast frekar í gegn, á meðan sambærilegar óskir annarra sveitarfélaga sitja fastar eða dragast á langinn. Slíkt grefur undan trausti og samvinnu sem átti að vera hornsteinn svæðisskipulagsins. Núverandi fyrirkomulag með neitunarvaldi eins sveitarfélags leiðir til þess að borgarstjórn Reykjavíkur stýrir íbúða- og atvinnuþróun Hafnarfjarðar, sem er óásættanlegt. Vaxtarmörkin standa í vegi fyrir uppbyggingu Sem bæjarfulltrúi og leiðtogi meirihlutans í Hafnarfirði er ábyrgð mín skýr. Sveitarfélög bera frumskyldu til að stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði til að stuðla að hagkvæmri húsnæðisuppbyggingu og tryggja íbúum sínum aðgang að húsnæði og þjónustu. Þá ber mér líka skylda til að tryggja fyrirtækjum lóðir til atvinnuuppbyggingar og atvinnuþróunar. Í þessum efnum hefur núverandi kerfi algjörlega brugðist og afleiðingarnar eru augljósar: hærra húsnæðisverð, aukin verðbólga og sífellt erfiðari staða fyrir allan almenning og sérstaklega ungt fólk sem vill eignast sitt eigið heimili. Afnám vaxtarmarka þjónar hagsmunum Hafnfirðinga Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að vaxtarmörkin, eins og þau eru útfærð í dag, styðja ekki lengur við markmið sín. Við þurfum að endurskoða kerfið í heild, færa ákvarðanir nær einstaka sveitarfélögum, stytta skipulagsferla og tryggja raunverulegt jafnræði og valdajafnvægi sveitarfélaganna. Þegar kerfi og skipulag fer að vinna gegn tilgangi sínum er aðeins tvennt í stöðunni: Að umturna því eða leggja það af. Af fenginni reynslu tel ég að hagsmunum Hafnarfjarðar sé betur borgið með því að velja seinni kostinn og afnema vaxtarmörkin á höfuðborgarsvæðinu. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orri Björnsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar