Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Jón Þór Stefánsson skrifar 3. maí 2026 17:01 Lögreglan fann árásarmanninn við Stjörnugróf eftir árásina. Vísir/Anton Brink Kólumbískur karlmaður var á dögunum dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að brjótast inn á heimili föður barnsmóður sinnar, koma að honum sofandi, og svo stinga hann ítrekað. Það mun hann hafa gert vegna sannfæringar sinnar um að tengdafaðirinn hafi brotið kynferðislega á barni hans.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í lok marsmánaðar, en atvikið sem málið varðar átti sér stað þann aðfaranótt 19. október í fyrra. Maðurinn var ákærður og sakfelldur fyrir tilraun til manndráps, en honum var gefið að sök að leggja ítrekað til föður barnsmóður sinnar (sem verður hér eftir kallaður tengdafaðirinn, til einföldunar) með hnífi í höfuð og líkama. Svo virðist sem hnífsblaðið hafi dottið af hnífsskaftinu í átökum mannanna, en tengdafaðirinn fann það á gólfi íbúðar sinnar þegar hann var útskrifaður af bráðamóttökunni. Taldi ókunnugan árásarmann hafa farið húsavillt Lögreglu barst tilkynning um málið rétt áður en klukkan sló eitt þessa nótt, en þá hringdi tengdafaðirinn og sagði að maður hefði brotist inn til hans og ráðist á hann meðan hann svaf. Hann sagði árásarmanninn þá farinn af vettvangi. Þegar lögreglu bar að garði lá tengdafaðirinn alblóðugur og var hann með áverka víðs vegar um líkamann. Hann sagðist hafa vaknað við að sængin hafi verið rifin af honum og ráðist verið á hann, en honum hafi tekist að sparka árásarmanninum frá sér sem hafi hlaupið úr íbúðinni. Árásarmaðurinn var að hans sögn svartklæddur með grímu fyrir andlitinu. Hann sagðist ekki vita hver það væri, og taldi að hann hafi farið húsavillt. Síðar var tengdafaðirinn spurður út í grunaðan árásarmann, sem þá hafði verið handtekinn, og var hann grunlaus um að hann gæti verið árásarmaðurinn. Svartir sokkar yfir skónum og hnífskaftinu Á leiðinni á vettvang komu lögreglumenn eins lögreglubílsins auga á einstakling á gangi með rafhlaupahjól meðferðis. Sá var með svarta lambhúshettu á höfði, í svartri úlpu, svörtum buxum og í svörtum sokkum utan yfir skóna. Hélt hann á skafti af hníf sem var vafið inn í svartan sokk og á endanum var blóðugur pappír. Síðar fannst einnig á honum svört eftirlíking af skotvopni sem hann geymdi í buxnastreng sínum. Í fyrstu neitaði hann að segja á sér deili eða á hvaða ferðalagi hann væri, og var hann í kjölfarið handtekinn. Ekki ósakhæfur Geðlæknir var fenginn til að vinna matsgerð á árásarmanninum. Sá taldi að hann sýndi merki vægrar aðsóknarkenndar, en ekki að því marki að um aðsóknarranghugmyndir væri að ræða. Niðurstaða geðlæknisins var að hann glími ekki við alvarlega geðröskun og að ekkert bendi til þess að hann hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Slíkt ástand þarf til svo að menn séu dæmdir ósakhæfir, og átti það því ekki við. Taldi manninn hafa brotið á syni hans Fyrir dómi sagðist árásarmaðurinn að hann hafi farið út þetta kvöld til að fá sér frískt loft. Hann hafi allt í einu verið kominn heim til föður barnsmóður sinnar. Aðspurður um hvers vegna svo væri sagðist árásarmaðurinn telja að tengdafaðirinn, og afi sonar hans, hefði misnotað son hans kynferðislega. Árásarmaðurinn vildi meina að hann hafi ekkert hugsað út í að framkvæma umrædda árás, en að hann hafi framið hana til að gæta hagsmuna sonar síns. Hann hafi einungis ætlað að hóta tengdaföðurnum og viljað að hann myndi gefa sig fram við lögregluna. Þegar hann hafi verið kominn að heimili tengdaföðurins hafi hann fylgst með honum inn um glugga þar til að ljósin slokknuðu og tengdafaðirinn farið að sofa. Síðan hafi hann farið inn í íbúðina. Um atvikin sjálf inni í íbúðinni sagðist hann muna lítið. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Telur árásarmanninn ekki slæman mann Fyrir dómi sagði tengdafaðirinn að um fjölskylduharmleik væri að ræða. Hann sagðist ekki telja árásarmanninn vera slæman mann, þrátt fyrir að hann ætti forsögu um að beita dóttur sína andlegu og líkamlegu ofbeldi. Önnur vitni, líkt og vinir og fjölskyldumeðlimir mannsins, sögðu sum hver að hann hefði glímt við ranghugmyndir í aðdraganda árásarinnar. Til að mynda sagði barnsmóðir hans, og dóttir brotaþolans, að hann hefði verið í ójafnvægi. Þau hefðu hist skömmu fyrir umrætt kvöld og hann viljað giftast henni svo hann gæti verið lengur á landinu, en þau höfðu hætt saman nokkrum árum áður. Á endanum hafi hann tekið hana hálstaki og þvingað hana til að kyssa sig. Svo virðist sem sonur þeirra hafi verið í bílnum og honum verið brugðið. Ætti að vera ljóst að bani gæti hlotist af Að mati dómsins er ljóst að árásarmaðurinn hélt til tengdaföðurins umrætt kvöld til að valda honum líkamlegum skaða. Honum hafi til dæmis ekki tekist að skýra sérstakan klæðaburð sinn og þá staðreynd að hann var vopnaður þessa nótt. Þó segir í dómnum að ósannað sé að maðurinn hafi verið búinn að gera upp við sig hvort hann ætlaði að bana tengdaföðurnum eða ekki. Hann hafi þrátt fyrir það ráðist að honum með slíkum hætti að honum hefði átt að vera ljóst að bani gæti hlotist af. Hins vegar hafi hann látið afleiðingarnar sér í léttu rúmi liggja. Líkt og áður segir hlaut maðurinn fimm ára fangelsisdóm, en gæsluvarðhald verður dregið frá refsingunni. Þá voru fíkniefni og vopn mannsins gerð upptæk. Honum er gert að greiða tengdaföðurnum 2,5 milljónir króna og rúmar sjö milljónir í sakarkostnað.
Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Fleiri fréttir Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ „Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“