Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Árni Sæberg skrifar 23. október 2026 12:14 Þorsteinn Már Baldvinsson telur Jóhannes Rúnar Jóhannsson vanhæfan. Vísir/Vilhelm Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar að láta reyna á hæfi héraðsdómarans Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, sem sýknaði Seðlabankann í gær af öllum kröfum Þorsteins Más. Hann telur dómarann vanhæfan vegna tengsla við lögmann Seðlabankans en þeir sátu saman í slitastjórn Kaupþings á sínum tíma. Þetta segir í yfirlýsingu sem Þorsteinn Már sendi Vísi vegna sýknudóms Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hans á hendur Seðlabankanum. Niðurstaða dómsins er reifuð í fréttinni hér að neðan: Í stuttu máli taldi dómurinn ósannað að starfsmenn Seðlabankans hefðu bakað Þorsteini Má miska, hvort sem væri af ásetningi eða fyrir stórfellt gáleysi, eða að háttsemi þeirra hafi verið ólögmæt. Þá hefðu hvorki verið efni til að dæma honum miskabætur á grundvelli persónuverndarlaga né almennrar persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins. Óboðlegt Í yfirlýsingu Þorsteins Más segir að Persónuvernd hafi úrskurðað árið 2022 að varðveisla persónuupplýsinga hans hjá Seðlabankanum hefði verið ólögmæt eftir 8. nóvember 2018. Bankinn hafi engan reka gert að því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á sínum tíma. „Hann lét úrskurðinn standa athugasemdalaust, en árum síðar, þegar ég leita miskabóta vegna brotsins, ber hann því við að niðurstaða Persónuverndar hafi verið röng. Það er óboðlegt að stjórnvald sætti sig við úrskurð eftirlitsstjórnvalds þegar hann fellur, en ráðist síðan gegn honum í bótamáli þess einstaklings sem úrskurðurinn verndar. Með enn meiri ólíkindum er að Héraðsdómur tekur nú í reynd undir málatilbúnað bankans og hefur tómlæti hans að engu.“ Jafnframt liggi fyrir sú afstaða þjóðskjalavarðar að varðveisluskyldan tæki til gagna málsins, ekki sjálfkrafa alls þess gagnasafns sem Seðlabankinn hefði lagt hald á. Það sé grundvallarmunur þar á. Bankinn hafi haldlagt gríðarlegt magn gagna árið 2012, þar á meðal sjúkraskýrslur, bankayfirlit og persónuleg samskipti, án þess að afmarka hvað tengdist rannsókninni. Aðeins brotabrot gagnanna hafi orðið að gögnum málsins. Samt hafi bankinn varðveitt allt heildarsafnið og afhent það síðar öðrum. „Í stað þess að vanræksla hafi afleiðingar fyrir Seðlabankann verður hún honum til varnar. Af dómnum má jafnvel ráða að bankinn hafi gætt meðalhófs. Hvernig getur stjórnvald gætt meðalhófs með því að fara í veiðiferð, haldleggja allt og varðveita, án þess einu sinni að vita hvað var tekið og geymt? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Seðlabanka Íslands af kröfu minni um miskabætur vegna óréttmætrar varðveislu bankans á persónuupplýsingum um mig. Niðurstaða Jóhannesar Rúnars héraðsdómara er vonbrigði, en kemur ekki á óvart í ljósi tengsla hans við lögmann Seðlabankans.“ Þurfi ekki nema meðalgreindan mann til að sjá að gögnin voru persónuleg Þá segir að dómurinn hafi niðurstöðu Persónuverndar, sem aldrei hafi verið hnekkt, að engu, líti fram hjá afstöðu þjóðskjalavarðar til þess hvaða gögn beri að varðveita og geri vanrækslu Seðlabankans að málsvörn hans. Slík málsvörn sé ekki til neinna málsbóta. Hún staðfesti þvert á móti sjálfan kjarnann í því sem hann hafi gagnrýnt og bent á frá upphafi, að gríðarlegt magn gagna hafi verið tekið án þess að bankinn vissi hvað í þeim fólst eða hvort þau tengdust rannsóknarefninu. „Slík veiðiferð samrýmist ekki þeim grundvallarreglum sem gilda um leit og haldlagningu gagna, hvorki hér á landi né í nágrannaríkjum okkar. Ábyrgðin á því að afmarka rannsóknargögn í kjölfar haldlagningar gagna hvílir á stjórnvaldinu sjálfu, ekki þeim sem sætir haldlagningunni. Það þarf ekki annað en meðalgreindan mann til að átta sig á því að þegar haldlögð eru og afrituð öll rafræn gögn einstaklings af heimasvæði hans hjá fyrirtækinu sem hann á og stýrir, tölvupósta hans alla og síma, að meðal þeirra gagna sem þar eru að finna eru persónuleg gögn.“ Dómurinn leggi einnig áherslu á að hann hafi ekki vitað af áframhaldandi varðveislu gagnanna á tilteknum tíma við mat á miska. Friðhelgi einkalífs sé ekki háð því hvort borgarinn viti hvenær stjórnvald heldur upplýsingum hans í trássi við lög. Rétturinn sé fyrir hendi til þess að stjórnvöld virði mörkin, ekki aðeins til þess að borgararnir séu lausir við áhyggjur af því hvort þau geri það. Breyti þar engu þótt starfsmaður Seðlabankans hafi sagt í sinni vitnaskýrslu að persónugögn hans hafi verið geymd í einhvers konar læstri geymslu þar sem fáir höfðu aðgang. Brotið sé framið þó að aðgangstakmarkanir hafi hugsanlega verið á gögnunum. „Vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans“ Loks segir í yfirlýsingu Þorsteins Más að hann telji jafnframt að niðurstaðan kalli á sérstaka skoðun á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, héraðsdómara og dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, vegna „umfangsmikilla“ fyrri tengsla hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans. Þeir hafi starfað saman um árabil í skilanefnd Kaupþings, þar sem Steinar Þór hafi verið formaður og Jóhannes Rúnar nefndarmaður. Þeir hafi einnig setið saman í stjórn Kaupskila ehf., þar sem Steinar hafi verið formaður, og samtímis í bráðabirgðastjórn Arion banka. Hér sé ekki um að ræða lausleg starfskynni, heldur náið samstarf tveggja manna sem gegndu sameiginlega umfangsmiklum ábyrgðarstöðum í fjármálalífinu yfir langan tíma. Störf skilanefndanna og þær háu greiðslur sem þeim fylgdu hafi á sínum tíma sætt harðri gagnrýni, meðal annars frá þáverandi viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni. Ráðherrann sérstaklega gagnrýnt að fyrirkomulagið skapaði eilífðarvél og mönnum tækifæri til að skammta sér laun og aðstöðu árum saman, án þess að fullnægjandi eftirlit væri með störfum þeirra. Nú sitji annar þessara fyrrverandi samstarfsmanna í dómarasæti og dæmir mál þar sem hinn fer með hagsmunagæslu fyrir Seðlabanka Íslands. „Fyrri samstarfstengsl leiði ekki sjálfkrafa til vanhæfis. En þegar tengslin eru jafn náin, hagsmunatengd og umfangsmikil og hér um ræðir vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans. Ásýndin er vægast sagt óheppileg. Ég mun því láta reyna á þetta álitaefni fyrir dómstólum eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum. Traust til dómstóla byggist ekki aðeins á því að dómarar séu óhlutdrægir, heldur einnig að enginn réttmætur vafi leiki á óhlutdrægni þeirra. Grundvallarspurningin stendur eftir: Getur stjórnvald hunsað niðurstöðu Persónuverndar, virt afstöðu Þjóðskjalasafns að vettugi, vanrækt eigin skyldur og síðan notið þess fyrir dómi? Að mínu mati á svarið í réttarríki að vera afdráttarlaust nei.“ Vegna niðurstöðu héraðsdóms um sýknu Seðlabankans Persónuvernd úrskurðaði árið 2022 að varðveisla persónuupplýsinga minna hjá Seðlabankanum hefði verið ólögmæt eftir 8. nóvember 2018. Bankinn gerði engan reka að því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á sínum tíma. Hann lét úrskurðinn standa athugasemdalaust, en árum síðar, þegar ég leita miskabóta vegna brotsins, ber hann því við að niðurstaða Persónuverndar hafi verið röng. Það er óboðlegt að stjórnvald sætti sig við úrskurð eftirlitsstjórnvalds þegar hann fellur, en ráðist síðan gegn honum í bótamáli þess einstaklings sem úrskurðurinn verndar. Með enn meiri ólíkindum er að Héraðsdómur tekur nú í reynd undir málatilbúnað bankans og hefur tómlæti hans að engu. Jafnframt liggur fyrir sú afstaða þjóðskjalavarðar að varðveisluskyldan tæki til gagna málsins, ekki sjálfkrafa alls þess gagnasafns sem Seðlabankinn hafði lagt hald á. Það er grundvallarmunur þar á. Bankinn haldlagði gríðarlegt magn gagna árið 2012, þar á meðal sjúkraskýrslur, bankayfirlit og persónuleg samskipti, án þess að afmarka hvað tengdist rannsókninni. Aðeins brotabrot gagnanna varð að gögnum málsins. Samt varðveitti bankinn allt heildarsafnið og afhenti það síðar öðrum. Í stað þess að vanræksla hafi afleiðingar fyrir Seðlabankann verður hún honum til varnar. Af dómnum má jafnvel ráða að bankinn hafi gætt meðalhófs. Hvernig getur stjórnvald gætt meðalhófs með því að fara í veiðiferð, haldleggja allt og varðveita, án þess einu sinni að vita hvað var tekið og geymt? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Seðlabanka Íslands af kröfu minni um miskabætur vegna óréttmætrar varðveislu bankans á persónuupplýsingum um mig. Niðurstaða Jóhannesar Rúnars héraðsdómara er vonbrigði, en kemur ekki á óvart í ljósi tengsla hans við lögmann Seðlabankans. Dómurinn hefur niðurstöðu Persónuverndar, sem aldrei var hnekkt, að engu, lítur fram hjá afstöðu Þjóðskjalavarðar til þess hvaða gögn beri að varðveita og gerir vanrækslu Seðlabankans að málsvörn hans. Slík málsvörn er ekki til neinna málsbóta. Hún staðfestir þvert á móti sjálfan kjarnann í því sem ég hef gagnrýnt og bent á frá upphafi: Að gríðarlegt magn gagna var tekið án þess að bankinn vissi hvað í þeim fólst eða hvort þau tengdust rannsóknarefninu. Slík veiðiferð samrýmist ekki þeim grundvallarreglum sem gilda um leit og haldlagningu gagna, hvorki hér á landi né í nágrannaríkjum okkar. Ábyrgðin á því að afmarka rannsóknargögn í kjölfar haldlagningar gagna hvílir á stjórnvaldinu sjálfu, ekki þeim sem sætir haldlagningunni. Það þarf ekki annað en meðalgreindan mann til að átta sig á því að þegar haldlögð eru og afrituð öll rafræn gögn einstaklings af heimasvæði hans hjá fyrirtækinu sem hann á og stýrir, tölvupósta hans alla og síma, að meðal þeirra gagna sem þar eru að finna eru persónuleg gögn. Dómurinn leggur einnig áherslu á að ég hafi ekki vitað af áframhaldandi varðveislu gagnanna á tilteknum tíma við mat á miska. Friðhelgi einkalífs er ekki háð því hvort borgarinn viti hvenær stjórnvald heldur upplýsingum hans í trássi við lög. Rétturinn er fyrir hendi til þess að stjórnvöld virði mörkin, ekki aðeins til þess að við séum laus við áhyggjur af því hvort þau geri það. Breytir þar engu Þó Rannveig Júníusdóttir, starfsmaður Seðlabankans, hafi sagt í sinni vitnaskýrslu að persónugögn mín verið geymd í einhvers konar læstri geymslu þar sem fáir höfðu aðgang. Brotið er framið þó aðgangstakmarkanir hafi hugsanlega verið á gögnunum. Ég tel jafnframt að niðurstaðan kalli á sérstaka skoðun á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar héraðsdómara vegna umfangsmikilla fyrri tengsla hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans. Þeir störfuðu saman um árabil í skilanefnd Kaupþings, þar sem Steinar Þór var formaður og Jóhannes Rúnar nefndarmaður. Þeir sátu einnig saman í stjórn Kaupskila ehf., þar sem Steinar var formaður, og samtímis í bráðabirgðastjórn Arion banka. Hér er ekki um að ræða lausleg starfskynni, heldur náið samstarf tveggja manna sem gegndu sameiginlega umfangsmiklum ábyrgðarstöðum í fjármálalífinu yfir langan tíma. Störf skilanefndanna og þær háu greiðslur sem þeim fylgdu sættu á sínum tíma harðri gagnrýni, m.a. frá þáverandi viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni. Ráðherrann gagnrýndi sérstaklega að fyrirkomulagið skapaði eilífðarvél og mönnum tækifæri til að skammta sér laun og aðstöðu árum saman, án þess að fullnægjandi eftirlit væri með störfum þeirra. Nú situr annar þessara fyrrverandi samstarfsmanna í dómarasæti og dæmir mál þar sem hinn fer með hagsmunagæslu fyrir Seðlabanka Íslands. Fyrri samstarfstengsl leiða ekki sjálfkrafa til vanhæfis. En þegar tengslin eru jafn náin, hagsmunatengd og umfangsmikil og hér um ræðir vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans. Ásýndin er vægast sagt óheppileg. Ég mun því láta reyna á þetta álitaefni fyrir dómstólum eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum. Traust til dómstóla byggist ekki aðeins á því að dómarar séu óhlutdrægir, heldur einnig að enginn réttmætur vafi leiki á óhlutdrægni þeirra. Grundvallarspurningin stendur eftir: Getur stjórnvald hunsað niðurstöðu Persónuverndar, virt afstöðu Þjóðskjalasafns að vettugi, vanrækt eigin skyldur og síðan notið þess fyrir dómi? Að mínu mati á svarið í réttarríki að vera afdráttarlaust nei. Þorsteinn Már Baldvinsson Seðlabankinn Samherji og Seðlabankinn Dómsmál Dómstólar Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira
Vegna niðurstöðu héraðsdóms um sýknu Seðlabankans Persónuvernd úrskurðaði árið 2022 að varðveisla persónuupplýsinga minna hjá Seðlabankanum hefði verið ólögmæt eftir 8. nóvember 2018. Bankinn gerði engan reka að því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á sínum tíma. Hann lét úrskurðinn standa athugasemdalaust, en árum síðar, þegar ég leita miskabóta vegna brotsins, ber hann því við að niðurstaða Persónuverndar hafi verið röng. Það er óboðlegt að stjórnvald sætti sig við úrskurð eftirlitsstjórnvalds þegar hann fellur, en ráðist síðan gegn honum í bótamáli þess einstaklings sem úrskurðurinn verndar. Með enn meiri ólíkindum er að Héraðsdómur tekur nú í reynd undir málatilbúnað bankans og hefur tómlæti hans að engu. Jafnframt liggur fyrir sú afstaða þjóðskjalavarðar að varðveisluskyldan tæki til gagna málsins, ekki sjálfkrafa alls þess gagnasafns sem Seðlabankinn hafði lagt hald á. Það er grundvallarmunur þar á. Bankinn haldlagði gríðarlegt magn gagna árið 2012, þar á meðal sjúkraskýrslur, bankayfirlit og persónuleg samskipti, án þess að afmarka hvað tengdist rannsókninni. Aðeins brotabrot gagnanna varð að gögnum málsins. Samt varðveitti bankinn allt heildarsafnið og afhenti það síðar öðrum. Í stað þess að vanræksla hafi afleiðingar fyrir Seðlabankann verður hún honum til varnar. Af dómnum má jafnvel ráða að bankinn hafi gætt meðalhófs. Hvernig getur stjórnvald gætt meðalhófs með því að fara í veiðiferð, haldleggja allt og varðveita, án þess einu sinni að vita hvað var tekið og geymt? Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Seðlabanka Íslands af kröfu minni um miskabætur vegna óréttmætrar varðveislu bankans á persónuupplýsingum um mig. Niðurstaða Jóhannesar Rúnars héraðsdómara er vonbrigði, en kemur ekki á óvart í ljósi tengsla hans við lögmann Seðlabankans. Dómurinn hefur niðurstöðu Persónuverndar, sem aldrei var hnekkt, að engu, lítur fram hjá afstöðu Þjóðskjalavarðar til þess hvaða gögn beri að varðveita og gerir vanrækslu Seðlabankans að málsvörn hans. Slík málsvörn er ekki til neinna málsbóta. Hún staðfestir þvert á móti sjálfan kjarnann í því sem ég hef gagnrýnt og bent á frá upphafi: Að gríðarlegt magn gagna var tekið án þess að bankinn vissi hvað í þeim fólst eða hvort þau tengdust rannsóknarefninu. Slík veiðiferð samrýmist ekki þeim grundvallarreglum sem gilda um leit og haldlagningu gagna, hvorki hér á landi né í nágrannaríkjum okkar. Ábyrgðin á því að afmarka rannsóknargögn í kjölfar haldlagningar gagna hvílir á stjórnvaldinu sjálfu, ekki þeim sem sætir haldlagningunni. Það þarf ekki annað en meðalgreindan mann til að átta sig á því að þegar haldlögð eru og afrituð öll rafræn gögn einstaklings af heimasvæði hans hjá fyrirtækinu sem hann á og stýrir, tölvupósta hans alla og síma, að meðal þeirra gagna sem þar eru að finna eru persónuleg gögn. Dómurinn leggur einnig áherslu á að ég hafi ekki vitað af áframhaldandi varðveislu gagnanna á tilteknum tíma við mat á miska. Friðhelgi einkalífs er ekki háð því hvort borgarinn viti hvenær stjórnvald heldur upplýsingum hans í trássi við lög. Rétturinn er fyrir hendi til þess að stjórnvöld virði mörkin, ekki aðeins til þess að við séum laus við áhyggjur af því hvort þau geri það. Breytir þar engu Þó Rannveig Júníusdóttir, starfsmaður Seðlabankans, hafi sagt í sinni vitnaskýrslu að persónugögn mín verið geymd í einhvers konar læstri geymslu þar sem fáir höfðu aðgang. Brotið er framið þó aðgangstakmarkanir hafi hugsanlega verið á gögnunum. Ég tel jafnframt að niðurstaðan kalli á sérstaka skoðun á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar héraðsdómara vegna umfangsmikilla fyrri tengsla hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans. Þeir störfuðu saman um árabil í skilanefnd Kaupþings, þar sem Steinar Þór var formaður og Jóhannes Rúnar nefndarmaður. Þeir sátu einnig saman í stjórn Kaupskila ehf., þar sem Steinar var formaður, og samtímis í bráðabirgðastjórn Arion banka. Hér er ekki um að ræða lausleg starfskynni, heldur náið samstarf tveggja manna sem gegndu sameiginlega umfangsmiklum ábyrgðarstöðum í fjármálalífinu yfir langan tíma. Störf skilanefndanna og þær háu greiðslur sem þeim fylgdu sættu á sínum tíma harðri gagnrýni, m.a. frá þáverandi viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni. Ráðherrann gagnrýndi sérstaklega að fyrirkomulagið skapaði eilífðarvél og mönnum tækifæri til að skammta sér laun og aðstöðu árum saman, án þess að fullnægjandi eftirlit væri með störfum þeirra. Nú situr annar þessara fyrrverandi samstarfsmanna í dómarasæti og dæmir mál þar sem hinn fer með hagsmunagæslu fyrir Seðlabanka Íslands. Fyrri samstarfstengsl leiða ekki sjálfkrafa til vanhæfis. En þegar tengslin eru jafn náin, hagsmunatengd og umfangsmikil og hér um ræðir vakna óhjákvæmilega spurningar um hæfi dómarans. Ásýndin er vægast sagt óheppileg. Ég mun því láta reyna á þetta álitaefni fyrir dómstólum eða öðrum þar til bærum stjórnvöldum. Traust til dómstóla byggist ekki aðeins á því að dómarar séu óhlutdrægir, heldur einnig að enginn réttmætur vafi leiki á óhlutdrægni þeirra. Grundvallarspurningin stendur eftir: Getur stjórnvald hunsað niðurstöðu Persónuverndar, virt afstöðu Þjóðskjalasafns að vettugi, vanrækt eigin skyldur og síðan notið þess fyrir dómi? Að mínu mati á svarið í réttarríki að vera afdráttarlaust nei. Þorsteinn Már Baldvinsson
Seðlabankinn Samherji og Seðlabankinn Dómsmál Dómstólar Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira