Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson og Hjálmar Trausti Kristjánsson skrifa 19. apríl 2026 10:33 Núverandi sveitarstjórn í Hveragerði hefur látið vinna nýtt aðalskipulag og mun það að öllu óbreyttu taka gildi fljótlega eftir kosningar. Þar er margt ágætt en það er einkum eitt sem stingur í augu og það er að gert er ráð fyrir því að færa þjóðveginn lítillega til suðurs. Þá verður hægt að byggja íbúðir á núverandi vegstæði hans auk þess sem skipulögð er íbúðabyggð sunnan við hann. Með þessu móti verður íbúðabyggð báðum megin við nýjan þjóðveg, sem mun liggja þvert í gegnum bæinn. Erfitt er að koma auga á það hvernig hagsmunum Hveragerðis er best borgið með því að leggja þjóðveg 1 ásamt háspennulínum í gegnum bæinn. Sú íbúðabyggð sem gert er ráð fyrir sunnan við þjóðveginn mun varla ná að verða hluti af Hveragerði. Til þess verður samgangur og nánd milli þessara bæjarhluta of lítill. Gert er ráð fyrir þrennum undirgöngum til að tengja bæjarhlutana saman. Það er óásættanlegt með öllu. Með þessu lagi munu margar íbúðir verða staðsettar mjög nærri nýjum þjóðvegi, beggja vegna hans. Það er alls ekki í samræmi við þau lífsgæði og gildi sem S-listinn leggur áherslu á og sér fyrir sér. Bæjaryfirvöldum hefur ítrekað verið bent á þetta og ýmsar tillögur að betri lausnum lagðar fram. Þær hafa því miður ekki fengið hljómgrunn. Stækkun bæjarins á ekki að vera forgangsverkefni Það liggur ekkert á að stækka Hveragerði. Skuldastaða bæjarins er erfið og fyrirliggjandi er m.a. að klára íþróttamannvirki og dýra framkvæmd við skólphreinsistöð. Það á alls ekki að fara í að stækka bæinn á meðan þau mál eru ekki komin í höfn. Þá þarf að koma ýmsum innviðum í betra horf fyrir núverandi íbúafjölda. Ástand þeirra batnar síður en svo með stækkandi bæ. Óseldar íbúðir í Hveragerði eru nú um 160. Ef þær seljast má búast við að um 400 manns flytji inn í þær. Íbúafjöldi bæjarins í dag er um 3500 þannig að hér er um rúmlega 11% fjölgun íbúa að ræða. Þessu til viðbótar er gert ráð fyrir þéttingu byggðar og í deiglunni eru byggingaráform fjölda smærri íbúða á reitum sem að okkar mati verða margir hverjir ofsetnir við það. S-listinn hefur engan áhuga á að vinna samkvæmt nýju aðalskipulagi, vill heldur ráðast strax í breytingar eftir kosningar með hagsmuni bæjarins að leiðarljósi. Við viljum láta færa þjóðveginn til suðurs, en mun lengra en aðalskipulagið gerir ráð fyrir. Þannig væri hægt í framtíðinni að koma fyrir samfelldri byggð í bænum, án þess að þjóðvegur og háspennulínur kljúfi byggðina í tvennt. S-listinn vill leggja sitt af mörkum í því að þrýsta á ríkisvaldið um færslu þjóðvegarins. Nýrri hugmyndir benda til að vegurinn geti legið við eða utan við bæjarmörkin sem hefði jákvæð áhrif á skipulag bæjarins, landnýtingu, staðsetningu íbúða- og atvinnusvæða og hljóðvist. Höfundar eru frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði Arnar H. Halldórsson, byggingarverkfræðingur, er í 6. sæti. Hjálmar Trausti Kristjánsson, bílstjóri, er í 12. sæti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar