„Þetta er bara sanngirnismál“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. maí 2026 06:31 Haraldur Jónsson oddviti L-lista í Skeiða- og Gnúpverjahreppi segir það sanngirnismál að nærsamfélagið njóti ávinnings vegna Hvammsvirkjunar. Vísir/Lýður Valberg/Anton Brink Þó sveitarfélögin á Suðurlandi séu mörg hver stór þá eru þau ekki endilega fjölmenn. Málefnin þar geta þó snert marga og þannig er staðan í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en það er eitt af sveitarfélögunum á svæðinu sem hefur ákvarðanarétt varðandi Hvammsvirkjun. Í sveitastjórn hefur oft á tíðum verið hart tekist á um málið.
Rúmlega 600 manns eru með lögheimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en þar er á döfinni mikil uppbygging, ekki síst í kringum Árnes þar sem búist er við að íbúafjöldi tvöfaldist á næstu árum. Sveitarfélagið er eitt þeirra sem hefur haft ákvörðunarrétt í tengslum við uppbyggingu Hvammsvirkjunar og í bókun sveitarstjórnar frá því í mars má sjá að ekki hafa allir verið sammála um þá ákvörðun að virkja í Þjórsá. „Ég er bjartsýnn á það að virkjanamálin verði minna í umræðunni og við séum að horfa til framtíðar og við séum að horfa á uppbyggingu samfélagsins,“ segir Haraldur Jónsson oddviti L-lista í kosningunum þann 16. maí. Viðtal við Harald birtist í Íslandi í dag þar sem nokkur sveitarfélög á Suðurlandi voru heimsótt í tilefni af sveitastjórnarkosningum í vor. Haraldur Jónsson er oddviti L-lista í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.Vísir/Lýður Valberg „Maður finnur fyrir þvi að það er bjartsýni í samfélaginu. Við erum í miklum framkvæmdum að byggja upp innviði og ég er bjartsýnn á það á komandi árum að íbúum hér muni fjölga mikið og lífsgæði batna.“ Hafa málefni Hvammsvirkjunar verið erfitt mál í sveitarstjórninni? „Virkjanamálin hafa verið þung og erfið og umræðan í sveitarstjórn hefur oft verið erfið og tekist á þar. Mér sýnist svona miðað við hvernig framboðin eru núna að það stefni bara í tvö framboð og þau framboð hafa talað fyrir uppbyggingu. Ég held það verði ekki sömu átök á næstu árum í virkjanamálum, ég vona það allavega,“ bætir Haraldur við. Segir að ferðaþjónustan muni gjörbreytast Mikil uppbygging á sér stað í kringum Árnes og víðar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Haraldur nefnir meðal annars framkvæmdir á vegum Bláa lónsins sem skapi tvö hundruð heilsársstörf á næstu árum og þá munu virkjanaframkvæmdir á komandi árum og áratugum einnig skapa atvinnu. Gert er ráð fyrir að íbúafjöldi á svæðinu muni tvöfaldast. „Við erum að horfa fram á það að hér á svæðinu hefur ferðaþjónnustan haft aðeins minna vægi og það mun breytast mjög mikið með opnun fjallabaðanna og gestastofunnar eftir tvö ár. Þannig að ég held að það séu miklar áskoranir gagnvart samfélaginu og hlúa vel að nýjum íbúum, að það séu stóru málin.“ „Það þarf að skipta þessu á sanngjarnan hátt“ Nýlega bókaði sveitarstjórn að ekki verði unnið frekar að skipulagningu orkumannvirkja á svæðinu fyrr en undanþága slíkra mannvirkja frá fasteignamati hefur verið felld úr gildi. Það sé nauðsynlegt til að nærsamfélaginu sé tryggður sanngjarn ávinningur af uppbyggingunni. Framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar við Þjórsá,Vísir/Anton Brink „Þetta er bara sanngirnismál. Það er búið að berjast fyrir þessu í á annan áratug. Það eru eiginlega allir orðnir sammála um þetta, á þingi, orkufyrirtækin, nærsamfélagið. Það þarf að vera meiri ávinningur í nærsamfélaginu,“ segir Haraldur. „Málið er nýbúið að fara í gegnum samráðsgátt þar sem yfir fjörtíu umsagnir komu, bæði frá sveitarfélögum og orkufyrirtækjum, og þar voru allir sammála því að nærsamfélagið á að njóta meiri ávinnings. Það þarf að skipta þessu á sanngjarnan hátt.“ Hann telur formsatriði að málið klárist. „Frumvarpið liggur fyrir, það á eftir að mæla fyrir því hvort sem það verður núna í vor eða í haust. Ég held að það sé orðið formsatriði að þetta mál klárist og þannig geri okkur kleift að byggja upp sterkara samfélag úti á landi.“
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Deilur um Hvammsvirkjun Byggðamál Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira