Fjársjóðurinn í matarkistunni Óli Finnsson skrifar 19. apríl 2026 12:31 Matur er á vörum okkar daglega, enda grunnurinn að heilsu okkar og næringu. Þá væru viðburðir, samkomur og fjölskylduboð lítilfjörleg án hans. Matur er allt í kring um okkur og með auknum ferðamanna straumi hefur norræn og íslensk matarmenning fengið byr undir báða vængi og hróðurinn farinn að berast um allan heim. Landbúnaðurinn á Íslandi hefur tekið ferðamennskuna opnum örmum og matarupplifanir í formi býlisheimsókna orðnar algengar um allt land. Neysla á matvörum beint frá býli og matarminjagripir eru í mörgum tilfellum dýrmætari heldur en fjöldaframleiddir tuskubangsar eða ísskápa seglar. Uppsveitirnar eru ein mesta matarkista landsins, með meira en helming af öllu grænmeti landsins, ásamt miklum fjölda af nautgripa, sauðfjár, hrossabúum og öðrum blönduðum búskap. En hafandi alla þessa framleiðslu í bakgarðinum, af hverju er þá oft auðveldara að fá innlendar landbúnaðarafurðir á höfuðborgarsvæðinu en í heimasveit? Austur og vestur Allt á þetta sér eðlilegar skýringar, enda kerfi sem skapaðist á þeim tíma þegar Reykjavík og höfuðborgarsvæðið var langstærsti markaður landsins fyrir matvæli og landbúnaðarafurðir. Þar með hefur byggst upp miðlægt net af heildsölum, afurðastöðvum og dreifingarfyrirtækjum. Fyrirtækjum sem sækja afurðir til bænda, vinna úr þeim, pakka eða dreifa beint til sölu í stórmörkuðum og veitingastöðum. Slíkt kerfi hefur vissulega sannað gildi sitt til að ná niður kostnaði og auka framboð á innlendum vörum. En á undanförnum árum hefur margt breyst. Nú streyma meira en tvær milljónir ferðamanna, innlendra sem erlendra, um þær sömu sveitir sem framleiða matinn. Að sjá tækifærið Stærsta aðdráttaraflið er í Bláskógabyggð, hér er gullni hringurinn og meira en 3 af hverjum 4 ferðamönnum leggja leið sína í gegnum sveitir Bláskógabyggðar. Með aukinni dreifingu ferðamanna yfir árið hefur myndast grundvöllur fyrir rekstur veitingastaða og gistimöguleika allt árið um kring sem þótti ekki arðbært fyrir nokkrum árum síðan. Vissulega eru sumrin alltaf háanna tíminn, en þá er líka matvælaframleiðslan oft í hámarki. Fátt finnst ferðamönnum meira spennandi en matur beint frá býli, jafnvel selt af bóndanum beint á hlaðinu eða einhvern af afkomendunum. Veitingamenn vilja allir bjóða upp á þessa upplifun, en oft getur verið erfitt að hoppa yfir lækinn og vera í samskiptum við marga bændur til að athuga með úrval og skipuleggja flutning. Því enda pantanir í miðlægum heildsölum og dreifingarfyrirtækjum í borginni. Heildsalinn getur jú tryggt nokkuð stöðugt framboð, staðlaðar vörur og þægilegan greiðslufrest sem getur verið erfitt fyrir einn og sama bóndann að tryggja. Hér er tækifæri til breytinga, öllum til hagsbóta. Matvælaklasinn í uppsveitum Í dag getum við gert ótrúlega hluti með hugbúnaðarlausnum. Stærsta leigubílafyrirtæki heims, á engan bíl og stærsti íbúðaleigusali á engar íbúðir. Hér þurfum við að hugsa út fyrir kassann og nýta það sem er beint fyrir framan okkur. Matvælaklasi í uppsveitum væri því svæðisbundið matvælasamstarf sem myndi annast umsjón með framboði og útdeilingu á pöntunum frá veitingamönnum, verslunum og jafnvel einstaklingum. Útbúa þyrfti skynsamlegt dreifikerfi og hafa tiltæka rafmagnssendiferðabíla. Slíkt dreifikerfi gæti því annað uppsveitum, Árborg og Hveragerði. En í fyrstu væri hægt að gera prufu innan Bláskógabyggðar. Slíkt verkefni kemst ekki á laggirnar nema með réttu fjármagni. Hér getur sveitarfélagið komið sterkt inn með ráðningu á tímabundnum verkefnisstjóra. Í fyrstu þyrftu að kanna raunverulegan áhuga veitingamanna og verslana að vera þátttakendur í slíku verkefni, hönnun á hvernig pantanakerfi myndi virka í samvinnu við notendur, hönnun á dreifikerfi og að lokum kostnaðargreining á verkefninu. Í samvinnu við Byggðaþróunarfulltrúa og SASS má fjármagna tilraunina að hluta, tímabundin leiga á sendiferðabílum og húsnæði gerir startið auðveldara. Þá þyrfti að reikna út þá álagningu sem slíkt dreififyrirtæki þyrfti að leggja ofan á fyrir flutning og dreifingu. Slíkt dreifikerfi myndi tryggja rekstrargrundvöll fyrir frekari úrvinnslu afurða innan sveitar og auka arðsemi landbúnaðarframleiðenda í Bláskógabyggð. Þannig tryggjum við að þeir gestir sem heimsækja matarkistuna okkar geti notið þess að borða beint frá býli, innan sveitar. Höfundur skipar 3. sætið á Þ-listanum í Bláskógabyggð Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bláskógabyggð Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar