Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 30. maí 2026 12:00 Umræða um Evrópusambandið snýst oft um hvað Ísland gæti misst. Miklu sjaldnar er spurt: Hvað gæti Ísland áunnið? Þegar horft er til komandi kynslóða snýst málið ekki aðeins um samninga eða regluverk, heldur um líðan okkar í óvissu eða meira öryggi. Lang flestir eru sammála um að hér þarf að skapa; meiri stöðugleika, ungt fólk njóti sömu kjara við íbúðakaup og samkeppnishæfni Íslands verði sambærileg við ESB ríkin sem við viljum bera okkur saman við, sbr. Danmörk (Færeyjar), Finnaland og Svíþjóð. Íslendingar hafa þegar byggt upp sérstöðu á mörgum sviðum. Við stöndum framarlega í greinum eins og endurnýjanlegri orku, sjávarútvegi, fiskvinnslutækni, hugbúnaði og nýsköpun. En við búum núna líka við veikleika sem draga úr samkeppnishæfni þjóðarinnar, eins og allt of háir vextir, sveiflukenndur gjaldmiðill og takmarkaðs traust á íslensku hagkerfi. Þetta hefur bein áhrif á lífskjör fólks Þegar fjármagnið er svona dýrt og ósamkeppnishæft hefur það bein áhrif á ungt fólk sem þarf að kaupa húsnæði, færri atvinnutækifæri bjóðast og Ísland er ekki samkeppnishæft þegar kemur að fjármögnun í nýsköpun. Alþjóðleg fyrirtæki stofna ekki útibú á Íslandi við þennan óstöðugleika og sérreglur Íslands. Það leiðir til þess að of fá störf bjóðast á Íslandi fyrir okkar langskólagengna unga fólk. Sjálfstraust hefur raunverulegt virði Ef Ísland byggi við sambærilegt rekstrarumhverfi og önnur þróuð Evrópuríki gæti það haft víðtæk áhrif, eins og að styrkja trú ungs fólks á framtíðina, aukið sjálfstraust þeirra og möguleika til nýsköpunar á Íslandi þegar við getum laða að alþjóðlegt fjármagn og fyrirtæki. Sjálfstraust samfélags hefur efnahagslegt virði. Þjóð sem trúir á eigin möguleika tekur meiri frumkvæði og hugsar lengra fram í tímann. Sjávarútvegurinn fær ný tækifæri Sjávarútvegur Íslands er ekki aðeins fiskur. Það eru mörg tækifæri til að nýta enn betur; þekkingu, ýmsar hugbúnaðarlausnir, tækni og sérfræðiþjónusta. Með sterkari tengingu við Evrópu gætu íslensk fyrirtæki selt enn meira að þessari þjónustu um alla Evrópu, ásamt sterkari samningsstöðu við önnur ríki. Við færumst úr frumframleiðslu yfir í öflugri nýsköpun og verðmæt þekkingarstörf. Við fáum sterkari stöðu til að vera leiðandi þekkingarsamfélag á okkar sérsviðum. Hvernig sjáum við framtíð komandi kynslóða? Ísland er auðugt af auðlindum og þekkingu. Við þurfum að fá bestu tækifæri til að nýta okkar þjóðarauð, styrkja þekkingu og sjálfstraust. Þá hefur Ísland alla burði til að vera; öflug nýsköpunarþjóð, leiðandi í grænni orku, sterkt þekkingarsamfélag í sjávarútvegi og fleiri greinum. Íslenska hagkerfið verður miklu samkeppnishæfara fyrir komandi kynslóðir. Spurningin er hvort við séum tilbúin að skapa þær aðstæður sem gera þjóðinni kleift að nýta styrkleikana til fulls? Framtíð Íslands ræðst ekki aðeins af auðlindunum sem við eigum, heldur af því hvaða tækifæri og getu við höfum til að nýta þær. Þannig styrkjum við samkeppnisstöðu Íslands með samstarfi við önnur frjáls lýðræðisríki Evrópu. Tryggjum sem best möguleika komandi kynslóða. Ég trúi því að Íslendingar geti notið sín enn betur í sterkara samstarfi innan ESB. Byggjum upp sjálfstraust og bjartsýni sem styrkir framtíðarmöguleika allra á Íslandi um langa framtíð. Fyrir unga fólkið þá er lágmark að við fáum að sjá samninginn. Höfundur er með MS í stjórnun og stefnumótun og er stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar