Bláskógabyggð

Bláskógabyggð

Mannfjöldi: 1.362 (2025). Flatarmál: 3.300 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Laugarvatn, Reykholt í Biskupstungum, Aratunga, Laugarás.


Fréttamynd

Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“

Pétur Már Mortensen Birgisson, einn ákærðra í Reykholtsmálinu og jafnframt sá yngsti, viðurkennir að hafa beðið brotaþola afsökunar á meðan umrætt mál stóð yfir. Hann segist ekki hafa þorað að fara af vettvangi vegna ótta við eldri bróður sinn. Skýrslutökunni lauk skyndilega eftir að símtöl, þar sem heyrðist í bróður hans, voru spiluð.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Innlent
Fréttamynd

Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát

„Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Myndir: Heimilis­fólk komst út heilt á húfi

Eldur kviknaði í sumarhúsi í Miðfellslandi við Þingvallavatn og varð húsið alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. Fjöldi fólks fylgdist með slökkvistarfinu en útkallið barst á tíunda tímanum.

Innlent
Fréttamynd

Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist

Íbúi á Laugarvatni brýnir fyrir eigendum hunda að tilkynna þá þegar þeir týnast í sveit sem borg. Þeir beri ábyrgð á að koma dýrum sínum ekki í aðstæður eins og sköpuðust á Lyngdalsheiði. Að minnsta kosti ein kind er illa særð og óttast að fleiri hafi orðið illa úti.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast lög­banns við lax­veiðum Iðufólks í Stóru-Laxá

Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.

Innlent
Fréttamynd

Kærir Iðufólk fyrir líkams­árásir, þjófnað og hótanir

Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra.

Innlent
Fréttamynd

Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi

Um klukkan fimm í morgun voru björgunarsveitir ræstar út vegna ungs manns sem skilaði sér ekki til baka úr ferð um uppsveitir Suðurlands. Maðurinn hafði haldið af stað í gærkvöldi einsamall og meðal annars ætlað sér að klífa fjöll.

Innlent
Fréttamynd

„Gekk kannski ekkert endi­lega hratt alltaf“

„Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Veggur af fólki mætti svöngum tón­leika­gestum

Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. 

Innlent
Fréttamynd

Svona er stemningin á Þing­völlum í dag

Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna.

Lífið
Fréttamynd

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending frá Berg­máli á Þing­völlum

Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni.

Tónlist
Fréttamynd

Ásta endurráðin í Bláskógabyggð

Ásta Stefánsdóttir hefur verið endurráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Ásta hefur gegnt stöðunni síðastliðin átta ár. Ný sveitarstjórn kom í vikunni saman á sínum fyrsta fundi.

Innlent