„Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Rafn Ágúst Ragnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa 2. ágúst 2026 18:12 Heimilisfólkið komst allt heilu og höldnu undan eldinum en gátu ekkert gert til að bjarga bústaðnum. Aðsend Eigandi bústaðarins sem brann til kaldra kola við Þingvallavatn segir það hafa verið mikið áfall að ekki geta gert neitt til að sporna við logunum nema horft á. Logarnir voru það fljótir að breiða úr sér að ekki gafst tími nema til að hlaupa og sækja börnin.
Eigandi sumarbústaðarins í Miðfellslandi sem óskaði nafnleyndar dvaldi þar yfir verslunarmannahelgina ásamt hópi vina og barna þeirra. Alls voru fimm fullorðnir og fimm börn inni þegar eldurinn kviknaði. Hann hafði nýlokið við að elda kvöldmat og fólkið sest að snæðingi. Þetta er annar eldsvoðinn sem gjöreyðileggur hús á skömmum tíma. Í gær ræddi fréttastofa við Sigrúnu Jóhannsdóttur sem missti heimili sitt á Stykkishólmi á dögunum. Í umfjöllun Ríkisútvarpsins er haft eftir sjónarvotti að snörp vindhviða hefði fellt kolagrill sem hefði svo kviknað út frá en eigandinn segir það ekki satt. „Ég var með nóg pláss á milli þess og hússins og það var ekki vindur þegar ég var að grilla. Ég var búinn að pæla vel í því hvernig er best að gera þetta á öruggan hátt. Þegar ég var búinn að grilla var heldur ekki hiti í grillinu,“ segir hann en veit annars ekki hvernig eldurinn spratt upp. „Ég labba með grillmatinn inn í bústað og eftir þrjátíu sekúndur sé ég allt í einu reyk út um gluggann. Ég fór út að kanna málið og þá sé ég að eldurinn er kominn undir bústaðinn og ég gat ekki slökkt með slökkvitæki eða vatnsslöngu. Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna. Maður gat bara hlaupið og passað börnin,“ segir hann. Hann segir líklegast að aska og glóðir hafi borist undir pall bústaðarins þegar grillað var. Eigandinn og fjölskylda hans leituðu sér skjóls í bústað vina þeirra eftir brunann og halda svo aftur til borgarinnar þar sem þau eru búsett.
Bláskógabyggð Þingvellir Slökkvilið Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira