Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar 31. maí 2026 12:00 Það eru blikur á lofti hjá Icelandair. Olíuverð hefur hækkað, samkeppnin á alþjóðlegum flugmarkaði harðnar og óleystar kjaradeilur við bæði flugmenn og flugvirkja eru nú komnar inn á borð ríkissáttasemjara. Á sama tíma hafa aflýsingar og tafir vegna áhafnaskorts sýnt hversu viðkvæmt rekstrarumhverfið er orðið þegar sumarvertíðin er að hefjast. Þetta er ekki ný staða fyrir flugfélag. Saga alþjóðaflugsins er í raun saga endalausra sveiflna, áfalla og endurreisnar. En akkúrat þess vegna reynir nú á það sem mestu máli skiptir: forystu. Þegar fyrirtæki standa frammi fyrir þrýstingi er freistandi að horfa fyrst og fremst á excel-skjöl, niðurskurð og kostnaðarlínur. Slík vinna er nauðsynleg. En hún dugir ekki ein og sér. Fyrirtæki komast ekki í gegnum erfið tímabil nema starfsfólkið skilji þá vegferð sem er í gangi og þá sýn sem stefnt er að, trúi verkefninu, finni tilgang og upplifi að byrðunum sé skipt af sanngirni. Sveigjanleiki og einkalíf starfsfólks Deilan snýst ekki einungis um prósentur í launatöflu. Hún snýst líka um nýtingu, vaktir, hvíld, frí, sveigjanleika og það hversu langt starfsfólk eigi að ganga til að halda rekstrinum gangandi þegar álagið eykst. Þar mætast tvenn sjónarhorn: þörf fyrirtækisins fyrir svigrúm annars vegar og þörf starfsfólks hins vegar fyrir fyrirsjáanleika, öryggi og virðingu fyrir mörkum vinnu og einkalífs. Starfsfólk er tilbúið að leggja mikið á sig þegar það finnur að leiðtogarnir standa með því. Fólk sættir sig frekar við erfiðar aðgerðir ef það sér að stjórnendur ganga sjálfir fram með fordæmi, sýna hófsemi og taka þátt í fórnunum. Það sem brýtur hins vegar niður samstöðu er þegar skilaboðin til gólfsins eru um að „allir verði að herða sultarólina“ á meðan fjarlægðin milli efstu hæða og starfsfólksins virðist aukast. Trúverðugleiki skiptir máli Þetta er ekki spurning um stjórnendur gegn starfsfólki, heldur hvort öllum takist að skapa trúverðugt sameiginlegt verkefni. Saga Gordon Bethune hjá Continental Airlines er oft nefnd sem dæmi um hvernig sterk forysta getur hjálpað fyrirtæki í gegnum erfiða tíma. Þegar Bethune tók við félaginu hafði það átt erfitt uppdráttar um árabil og glímt við mikinn rekstrarvanda. Þar skipti ekki aðeins máli að ná tökum á rekstrinum heldur einnig að byggja upp samstöðu, stolt og trúverðugleika innan fyrirtækisins. Þótt staða Icelandair sé vitaskuld ekki sú sama og staða Continental var þá, er lærdómurinn um forystu engu að síður gagnlegur. Bethune lagði áherslu á skýr markmið, virðingu fyrir starfsfólki og sameiginlega ábyrgð. Hann skildi að fólk fylgir ekki excel-skjölum heldur leiðtogum sem eru tilbúnir að bera byrðarnar með því. Smám saman tókst að byggja upp menningu þar sem starfsfólk fór aftur að trúa því að félagið gæti náð árangri. Stjórnendur öðluðust trúverðugleika. Ábyrgðin byrjar efst Icelandair er ekki bara venjulegt fyrirtæki. Félagið gegnir lykilhlutverki í tengingu landsins við umheiminn, styður við ferðaþjónustu og skiptir miklu máli fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélagið allt. Þess vegna þurfa bæði stjórnendur og starfsfólk að nálgast stöðuna af ábyrgð. Ef stjórn og stjórnendur vilja kalla eftir samstöðu þurfa þau að skapa hana. Ef þeir vilja að starfsfólk sýni þrautseigju þurfa þeir sjálfir að vera sýnilegir í þeirri baráttu. Ef þeir vilja hófsemi þurfa þeir sjálfir að sýna hana fyrst. Baráttuandi verður til þegar fólk finnur að það sé hluti af sameiginlegu verkefni. Á næstu vikum og mánuðum mun reyna á Icelandair. Þar mun ekki aðeins skipta máli hvernig þróun olíuverðs verður, hvort tekst að manna flugáætlunina með sjálfbærum hætti eða hvernig samningar nást við flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja. Það gerir stöðuna enn viðkvæmari að deilurnar koma upp þegar félagið er á leið inn í mikilvægasta og álagsmesta tímabil ársins. Það sem mun skipta mestu máli er hvort fyrirtækinu tekst að byggja upp þá samstöðu og trú sem sterk fyrirtæki þurfa á að halda þegar móti blæs. Saga flugsins sýnir að fyrirtæki lifa af erfiða tíma ef fólk stendur saman. En þá verða leiðtogarnir að ganga fremstir í röðinni. Höfundur er flugstjóri og með diploma í flugrekstrarfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Icelandair Flug Kjaramál Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun