Ofbeldi barna

Þörf á fleiri lögreglumönnum á djammið í Reykjavík
Agnes Hlynsdóttir í Samtökum reykvískra skemmtistaðaeigenda og rekstrarstjóri skemmtistaðarins Lemmy segist verða vör við meira ofbeldi og vopnaburð á djamminu. Þá sé einnig töluvert um ungt fólk sem sé að reyna að smygla sér ölvað inn á skemmtistaði. Hún segir þurfa átak og meiri viðveru lögreglu í miðbænum.

Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna.

Miðbærinn orðinn hættulegri
Bareigandi í Reykjavík segir miðbæ Reykjavíkur vera töluvert hættulegri en þegar hann kom hingað til lands frá Brasilíu fyrir um þrjátíu árum. Hann segist vera áhyggjufullur vegna stöðunnar og að reynsla hans af því að alast upp í Brasilíu sé orsökin á því.

Þungar áhyggjur af vopnaburði ungmenna
Yfirlögregluþjónar um allt land lýsa yfir áhyggjum af auknum vopnaburði ungmenna og ofbeldishegðun. Þeir segja mikla vinnu fyrir höndum og ekki síst hjá foreldrum til að snúa við þróuninni. Drengur á sextánda ári situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa stungið tvær stúlkur og dreng á sama reki. Sautján ára stúlka er í lífshættu.

Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum
Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig.

Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn
Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins.

Átti leið hjá fyrir tilviljun og tókst að endurlífga stúlkuna
Ryan Cocuera, 32 ára hjúkrunarfræðingur á taugadeild Landspítalans, var á leiðinni heim með fjölskyldunni sinni á Menningarnótt í gær þegar hann kom að stúlku sem lá í blóði sínu á Skúlagötu eftir hnífstunguárás.

Þrjú ungmenni með áverka og eitt í alvarlegu ástandi eftir stunguárásina
Þrír eru með stunguáverka og þar af einn í alvarlegu ástandi eftir líkamsárás í miðborginni í gær þar sem hnífi var beitt. Allir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar og gekkst hinn alvarlega slasaði undir aðgerð í nótt. Brotaþolar og hinn grunaði eru öll sögð vera ungt fólk.

Hafa áhyggjur af auknu ofbeldi, áhættuhegðun og vopnaburði barna
Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði umtalsvert fyrstu mánuði þessa árs samanborið við í fyrra. Neikvæð áhrif kórónuveirufaraldursins, aukin vanlíðan meðal barna og samfélagsmiðlar er meðal þess sem kann að skýra þróunina að sögn forstjóra forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Þróunin sé mikið áhyggjuefni sem tilefni sé til að rannsaka betur.

Fjórtán aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna á blaðamannafundi í Hannesarholti í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Börn hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi
Lögregla greinir mikla aukningu þegar kemur að stórfelldum líkamsárásum sem framin eru af ungmennum á aldrinum 10 til 17 ára. Þá benda gögn til þess að börn séu hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi.

Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna
Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum.

Dæmi um börn í öðrum bekk með hnífa í grunnskólum
Dæmi er um að börn í öðrum og þriðja bekk hafi mætt með hnífa í skólann hér á landi. Sérfræðingur í öryggisgæslu hefur verulegar áhyggjur af þróuninni.