Halla Tómasdóttir

Forseti Íslands leggur áherslu á friðsæl samfélög á Norðurlöndum
Forseti Íslands leggur áherslu á að Norðurlöndin séu friðsæl samfélög, sem láta sig varða frið á heimsvísu því stærri þjóðir eiga í vaxandi mæli erfitt með að láta til sín taka þegar friður er annars vegar.

Þiggja boð konungs um sögulega heimsókn
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar hafa þegið boð Friðriks tíunda Danakonugs um heimsókn til Danmerkur dagana 8. til 9. október.

Halla á Hellisheiði með viðskiptakonum
Metþátttaka var á opnunarviðburði FKA sem fór fram hjá Carbfix á Hellisheiði á dögunum. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands var heiðursgestur viðburðarins. Líkt og alþjóð veit hefur forsetinn verið öflug í atvinnulífinu og þekkir hún vel til starfa FKA. Hún stofnaði meðal annars LeiðtogaAuði, deild innan FKA á sínum tíma.

Hvatti þingmenn til málamiðlana og samninga
Forseti Íslands segir skipta miklu að stjórnmálaflokkar geti þrátt fyrir ólík sjónarmið og kapp um hylli kjósenda gefið eftir og náð sameiginlegri lendingu í þágu þjóðarinnar. Lýðræðið krefðist málamiðlana.

„Litla þjóð sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast“
Setning þingsins var að þessu sinni söguleg. Guðrún Karls Helgudóttir tók við embætti biskups Íslands nýverið og kom að hinni kirkjulegu athöfn. Og Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti landsins, ávarpaði þingið fyrsta sinni og kom hún víða við í ræðu sinni.

Halla valdi drapplitað fyrir þingsetninguna
Halla Tómasdóttir forseti Íslands setti Alþingi í fyrsta sinn í dag. Mikil tilhlökkun ríkir gjarnan yfir klæðaburði embættismanna á þessum degi og valdi Halla að versla við Frú Hrafnhildi fyrir tilefnið.

Svona var setning Alþingis með nýjum forseta og biskup
Setningarathöfn Alþingis hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin minningarstund var haldin í Lindakirkju í dag þar sem fólk gat heiðrað minningu Bryndísar Klöru og veitt sorg sinni útrás.

„Við erum öll harmi slegin“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir nauðsynlegt að ráðast að rótum vandans vegna þeirra sorglegu atburða sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarið. Íslendingar þurfi að gerast „riddarar kærleikans“ og gera kærleikann að eina vopninu í samfélaginu.

Framboð Höllu kostaði 26 milljónir
Halla Tómasdóttir varði 26 milljónum króna í framboð sitt til forseta Íslands. Þetta kemur fram í skýrslu hennar til Ríkisendurskoðunar.

Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila
Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum.

Halla og Björn hittu Macron-hjónin í París
Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hittu frönsku forsetahjónin Emmanuel og Brigitte Macron í Elysee-höll í París í gær.

Halla fann efnið í New York
Halla Tómasdóttir kom að máli við Björgu Ingadóttur fatahönnuð í byrjun júní í því skyni að fá Björgu til að hanna kjóla fyrir innsetningarathöfn sína. Svo fór að Björg hannaði tvo kjóla fyrir daginn, en Halla fann efnið í annan þeirra í New York.

Hópsöngur og TikTok-dans á Bessastöðum
Halla Tómasdóttir tók við embætti í gær sem sjöundi forseti lýðveldisins. Öllu var til tjaldað. Að lokinni athöfn í Dómkirkjunni og Alþingissalnum tók við eftirpartí í Smiðju, nýrri viðbyggingu Alþingis, áður en leiðin lá á Bessastaði þar sem sungið var um ferðalok og stiginn TikTok-dans.

„Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“
„Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða sem öðrum býðst og allt svoleiðis,“ sagði Halla Tómasdóttir er hún var aftur spurð út í bílakaup þeirra hjóna á dögunum. Hún segir málið dæmi um að stundum sé mikið rætt um eitthvað sem skiptir ekki meginmáli. Hjónin hafi lært af þessu mikilvæga lexíu.

Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði
Halla Tómasdóttir segir að tilfinningin að mæta á Bessastaði sem húsráðandi sé hlý og góð, en hún hafi auðvitað svolítil fiðrildi í maganum. Hún kveðst vilja verða forseti sem leiðir fólk saman til samtals og samstarfs, og reynir að virkja kraftinn í þjóðinni til að finna hvert við ætlum að stefna.

Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu
Landsmenn sem fréttastofa ræddi við segja Guðna Th. Jóhannesson hafa staðið sig einkar vel í embætti undanfarin átta ár. Þá eru þau spennt fyrir verðandi forseta, Höllu Tómasdóttur.

Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins
Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Dagskráin hófst með helgistund í Dómkirkjunni klukkan 15:30 en embættistakan var í beinu streymi á Vísi frá klukkan 15:00.

Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins
Halla Tómasdóttir verður sett í embætti sem sjöundi forseti Íslenska lýðveldisins í dag, önnur kvenna til að gegna embættinu. Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni verða þrír fyrrverandi forsetar viðstaddir athöfnina.

Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar
Eliza Reid segist ekki fagna miklum breytingum en þakkar fyrir árin sem forsetafrú og óskar Höllu Tómasdóttur, sem svarin verður í embætti forseta á morgun, og eiginmanni hennar Birni velfarnaðar.

Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn
Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir.

„Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi með meiru rekur Islandus Bíla og hann segir mottó sitt og sinna manna vera það að vera ávallt með ódýrustu bílana. Hann býður ódýrari Volvó, ódýrari en sem nemur því sem Halla Tómasdóttir þurfti að borga fyrir sinn, afslátt sem nemur tveimur milljónum.

Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin
Tilvonandi forsetahjón fengu um fimmhundruð og fimmtíu þúsund króna afslátt af bílakaupum hjá Brimborg. Halla Tómasdóttir gaf sér helgina til að gefa upp afsláttinn og birti á samfélagsmiðlum. Forstjóri Brimborgar segir kjörin í samræmi við reglur fyrirtækisins en afsláttarkjörin séu fjórþætt.

Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum
Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands og eiginmaður hennar fengu 549.127 króna afslátt af Volvo-bifreið sem þau keyptu hjá Brimborg á dögunum. Afsláttinn fengu þau vegna staðgreiðslu og „endurtekinna kaupa“.

Halla verði að upplýsa um bílakaupin
Sérfræðingar í siðfræði og almannatengslum segja nauðsynlegt fyrir traust og gagnsæi að tilvonandi forsetahjón upplýsi um hvaða afslátt þau fengu þegar þau keypu nýjan bíl hjá Brimborg. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir fréttastofu hafa svör ekki borist um það.

Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi
Hvorki Halla Tómadóttir né forstjóri Brimborgar hafa gefið upp hversu mikinn afslátt tilvonandi forsetahjón fengu þegar þau keyptu bíl af umboðinu. Sölumaður umboðsins kallar hins vegar afsláttinn skyldmennakjör. Sérfræðingur í siðfræði segir mikilvægt að fullkomið gagnsæi ríki í málinu. Greiði fyrir greiða sé ekki við hæfi hjá tilvonandi forseta Íslands.

Biðst velvirðingar á myndbirtingunni
Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar, biðst velvirðingar fyrir hönd Brimborgar á myndbirtingu frá afhendingu bílsins, sem verðandi forsetahjónin festu kaup á á dögunum. Hann segir að misskilningur hafi orðið um að heimild til myndatöku gilti sem heimild til birtingar. Það sé ekki óalgengt að myndir frá afhendingu nýrra bíla séu birtar með þessum hætti.

Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu
Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum.

Halla heimsótti Guðna
Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag.

Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn
Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, segir skotárás sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hryggja sig.