Kjaraviðræður 2023-25

Lögreglustjórar og dómarar mótmæla launafrumvarpi Bjarna
Lögreglustjórafélag Íslands og Dómstólasýslan mótmæla harðlega frumvarpi forsætisráðherra um laun æðstu embættismanna landsins og segja ótækt að sömu reglur gildi um lögreglustjóra og dómara og gilda um kjörna fulltrúa.

Kjarasamningar Eflingar við Reykjavíkurborg undirritaðir
Samninganefnd Eflingar stéttarfélags hefur náð samningum við viðsemjendur sína hjá Reykjavíkurborg. Kjarasamningar voru undirritaður um miðjan dag í dag, 20. júní.

Launaþróun æðstu embættismanna eigi að fylgja öðrum launum
Forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, segir það forgangsmál ríkisstjórnarinnar að vinna bug á verðbólgu og skapa Seðlabankanum skilyrði til að lækka vexti. Til að það gangi eftir verði forsendur nýgerðra kjarasamninga að standast og forðast þurfi launaskrið „sem endar í höfrungahlaupi á vinnumarkaði með þekktum afleiðingum.“

Forsætisráðherra vill skerða launahækkun æðstu embættismanna verulega
Samkvæmt frumvarpi forsætisráðherra um laun æðstu embættismanna munu laun þessa hóps hækka mun minna um næstu mánaðamót en ella hefði orðið samkvæmt gildandi lögum. Forseti Alþingis segir að miðað hafi áfram í viðræðum þingflokksformanna í gærkvöldi um þingfrestun og vantrauststillaga á matvælaráðherra verði tekin fyrir á morgun.

Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum
Forseti ASÍ segir áríðandi að frumvarp innviðaráðherra um bætta stöðu leigjenda verði samþykkt fyrir þinglok. Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, segir frumvarpið fast í nefnd því ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um þinglok. ASÍ skorar á Alþingi að ljúka málinu fyrir þinglok.

Fleiri aðildarfélög BSRB semja við ríkið
Samninganefndir Landssambands lögreglumanna og ríkisins hafa undirritað nýjan kjarasamning til fjögurra ára. Samningurinn var undirritaður í húsnæði ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag.

Margt þarf að ganga eftir svo hægt sé að segja samningana góða
Byrjað var að undirrita kjarasamninga á opinbera vinnumarkaðnum í gærkvöldi og nótt en í þeim felast kjarabætur sambærilegar þeim sem gerðir voru á almenna vinnumarkaðnum. Samningarnir gilda í fjögur ár og segir varaformaður BSRB margt þurfa að ganga eftir svo hægt sé að fullyrða að samningarnir hafi verið góðir.

Ellefu aðildarfélög BSRB skrifa undir kjarasamninga
Ellefu aðildarfélög BSRB undirrituðu á öðrum tímanum í nótt nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samið var á sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.

Sameyki framlengdi kjarasamning við ríkið
Samninganefndir ríkisins og Sameykis gengu frá samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningum aðila við Fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs í kvöld.

„Það sem þú greiðir niður, það kemur aldrei aftur“
Vaxtastuðningur upp að tvö hundruð þúsund krónum á mann stendur fólki nú til boða, til að bregðast við hækkandi vaxtabyrðum húsnæðislána. Fjármálaráðgjafi segir almennt best að ráðstafa fjármunum beint inn á höfðustól lána. Það sé þó ekki algilt.

Margir eiga inni vaxtastuðning frá skattinum
Landsmenn eiga margir rétt á vaxtastuðningi frá skattinum, sem greiddur verður inn á íbúðalán. Vaxtastuðningurinn er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda sem kynntur var við undirritun kjarasamninganna í mars 2024.

Segja tíma SÍS hafa verið „sóað í sýndarsamráð“ um gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Tíma stjórnarmanna og starfsmanns Sambands íslenskra sveitarfélaga var „sóað í sýndarsamráð“ þar sem ekkert tillit var tekið til athugasemda eða leiða til að sætta mismunandi sjónarmið varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara
Samninganefnd Eflingar – stéttarfélags hefur vísað kjaradeilu félagsins við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara.

Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi
Nýr samningur milli Sjúkratrygginga og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra

Þolinmæði saminganefnda á þrotum
Félagsmenn VM og Rafiðnaðarsambands Íslands hafa nú verið samningslausir í fjóra mánuði og segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, að þolinmæðin sé á þrotum. Komi til aðgerða af þeirra hálfu gæti það haft rafmagnsskort í för með sér.

Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu
Nýir kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins voru undirritaðir í dag.

Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur
Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar að jafnaði um tvö prósent frá og með fyrsta júní næstkomandi. Hækkanir frá síðustu áramótum verði dregnar til baka. Aðgerðin er liður í að liðka fyrir gerð kjarasamninga.

Stuðningur við langtímakjarasamninga
Í gær mælti ég fyrir frumvarpi um fjáraukalög sem tekur utan um þær aðgerðir ríkissstjórnarinnar sem styðja við gerð skynsamlegra langtímakjarasamninga. Það er óhætt að segja að sú samstaða sem náðist á almenna markaðnum um hófsama kjarasamninga til fjögurra ára sé gríðarlega mikilvæg til þess að hér skapist aðstæður þar sem vextir geta farið lækkandi.

Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar
Samningar voru undirritaðir milli SA fyrir hönd ISAVIA ohf. og samninganefnda starfsmanna Sameykis og FFR rétt í þessu og verkföllum sem boðuð höfðu verið á Keflavíkurflugvelli aflýst.

Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á
Samninganefndir starsfmanna Sameykis og FFR á Keflavíkurflugvelli hafa setið á fundum með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag.

SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning
Í gær skrifuðu Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) undir langtímakjarasamning. Samningurinn byggir á samningnum sem undirritaður var við meirihluta félaga á almennum vinnumarkaði í mars.

Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða
Íslensku flugfélögin ætla að grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sem að óbreyttu hefjast á fimmtudag og föstudag. Ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann hefst seinnipartinn á fimmtudag.

Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls
Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli.

Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir
Áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast á fimmtudag og föstudag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Ísavía á Keflavíkurflugvelli. Dauflegt er yfir kjaraviðræðum stéttarfélaganna tveggja við Samtök atvinnulífsins.

Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns
Fundi stéttarfélaga starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtaka atvinnulífsins með ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns.

Líklega fundað fram eftir kvöldi
Samningafundur í deilu Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna stendur nú yfir í Karphúsinu. Náist ekki samkomulag hefst ótímabundið yfirvinnubann á fimmtudag. Búist er við að fundurinn standi yfir fram eftir kvöldi.

Viðurkennir að hafa gengið of hart fram
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, segir að öflugt umbótastarf í vinnuanda á skrifstofunni hafa gengið vel og að félagið sé á réttri leið. Óánægju hefur gætt meðal stafsmanna félagsins, meðal annars með framgöngu Þórarins.

Frestun verkfalla kemur til greina
Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á.

Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu
Ríkissáttasemjari hefur boðað stéttarfélög starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtök atvinnulífsins á fund í Karphúsinu á hádegi. Að óbreyttu hefjast aðgerðir á flugvellinum að síðdegis á fimmtudag.

Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni
Forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins segir áhyggjuefni hversu oft stéttarfélög með starfsmenn á Keflavíkurflugvelli boði til verkfalla. Samtökin muni fara fram á frestun aðgerða þegar sest verður aftur við samningaborðið.