Gróðureldar

Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni
„Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“

Sinubruni í Staðarsveit á Snæfellsnesi
Eldur kviknaði í sinu í nágrenni eyðibýlisins Haga í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Slökkviliðsmenn frá Snæfellsbæ og Grundafirði eru komnir á vettvang og slökkvilið Stykkishólms er á leiðinni.

Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada
Hundruð íbúum bæjarins Fort McMurray í Alberta í Kanada hefur verið gert að flýja heimili sín vegna gróðurelda sem ógna bænum. Fort McMurray er meðal annars miðstöð olíuvinnslu á tjörusöndunum í Kanada.

Ísland meðal örfárra ríkja sem standast viðmið WHO um loftgæði
Ísland er eitt aðeins sjö ríkja sem standast viðmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar þegar kemur að loftgæðum. Hin ríkin eru Ástralía, Eistland, Finnland, Grenada, Máritíus og Nýja Sjáland.

Neyðarástand vegna skógarelda í Síle
Í það minnsta 51 er látið í skógareldum í Valparaíso héraði í Síle. 45 fundust látin en sex létust vegna brunasára á spítala. Forseti landsins, Gabriel Boric, hefur lýst yfir neyðarástandi og sagðist ætla að nýta öll þau úrræði sem honum standa til boða til að takast á við ástandið.

Skógareldur ógnar vinsælum áfangastað íslenskra ferðamanna
Skógareldur logar skammt fyrir utan Altea á Spáni. Altea er vinsæll áfangastaður ferðamanna á Costa Blanca og mörg sumarhús á svæðinu.

Enn rýmt á Tenerife vegna gróðurelda
Um það bil 3.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á Tenerife vegna gróðurelda. Um er að ræða íbúa á sama svæði og rýma þurfti í ágúst síðastliðnum, sömuleiðis vegna gróðurelda.

Skógareldarnir á Tenerife í rénun
Skógareldarnir á Tenerife eru skæðustu skógareldar ársins á Spáni og þeir skæðustu á Kanaríeyjum í meira en 40 ár.

Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui
Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna.

Nær áttatíu handteknir fyrir íkveikjur tengdar gróðureldunum
Grísk yfirvöld hafa handtekið 79 manns vegna tilrauna til íkveikja sem tengjast gróðureldunum sem nú loga víða um landið. Eldarnir sem loga nærri hafnarborginni Alexandroupolis eru þeir stærstu sem hafa orðið innan Evrópusambandsins.

Rekja gróðureldana á Tenerife til vísvitandi íkveikju
Lögreglan á Tenerife telur að vísvitandi íkveikja hafi komið stjórnlausum gróðureldum sem geisa enn á eyjunni af stað. Þúsundir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín og dvalarstaði vegna eldanna.

Fleiri hundraða enn saknað eftir gróðureldana á Maui
Sveitarstjóri á Maui á Havaíeyjum segir að 850 manns sé enn saknað eftir gróðureldana sem ollu hörmungum á eyjunni í síðustu viku. Joe Biden Bandaríkjaforseti og eingkona hans ætla að kynna sér hamfarasvæðið í dag.

Herinn sendur til Bresku Kólumbíu vegna gróðurelda
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sagðist ætla að senda herinn til þess að aðstoða við baráttuna gegn miklum gróðureldum sem geisa í Bresku Kólumbíu. Neyðarástandi var lýst yfir í fylkinu og fleiri en 35.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

Löng bílaröð þegar allir bæjarbúar flúðu gróðurelda
Allir tuttugu þúsund íbúar bæjarins Yellowknife, höfuðstaðar Norðvesturhéraða Kanada, flýja nú í bílum sínum eða með flugvélum á meðan slökkviliðsmenn reyna að koma í veg fyrir að logarnir teygi sig til bæjarins. Rýmingin er sú langumfangsmesta í gróðureldatíðinni í Kanada í ár.

Yfirmaður almannavarna í Maui segir af sér
Yfirmaður almannavarna á Maui hefur sagt starfi sínu lausu nokkrum dögum eftir að hafa varið ákvörðun sína um að kveikja ekki á viðvörunarsírenum þegar gróðureldar dreifðu sér um eyjuna. Íbúar Maui eru verulega ósáttir að sírenurnar hafi ekki hljóðað.

Skógareldar á Tenerife: „Þetta er búið að breiðast svo hratt út í dag“
Stjórnlausir skógareldar loga á Tenerife og Íslendingur á eyjunni segist fá illt í hjartað þegar hann hugsar til bænda og íbúa á svæðinu sem brennur. Fólk í „ferðamannabúbblunni“ á suðurhluta Tenerife verði þó ekki vart við ástandið.

Fljúga fólki úr vegi gróðurelda í norðanverðu Kanada
Til stendur að byrja að fljúga íbúum Yellowknife í Norðvesturhéruðum Kanada þaðan í dag vegna gróðurelda sem stefna á bæinn. Eldarnir gætu náð þangað um helgina ef enga úrkomu gerir.

Gengur illa að ráða við stjórnlausan eldinn á Tenerife
Gróðureldarnir sem kviknuðu aðfararnótt þriðjudags á Tenerife hafa nú breitt úr sér yfir 1.800 hektara lands og gengur viðbragðsaðilum illa að ráða við þá.

Rýma fjögur þorp á Tenerife vegna gróðurelda
Spænsk yfirvöld hafa skipað rýmingu fjögurra þorpa á eyjunni Tenerife eftir að gróðureldur kviknaði í þjóðgarðinum í kringum Teide-fjall.

Byrja að bera kennsl á þau látnu á Maui
Tala látinna í gróðureldunum á Maui náði 106 manns í gær. Yfirvöld eru nú byrjuð að gefa út nöfn á þeim látnu sem hægt hefur verið að bera kennsl á til þessa. Vísbendingar eru komnar fram um að eldarnir kunni að hafa kviknað út frá raflínu í hvassviðri í síðustu viku.

Gróðureldarnir á Maui þeir mannskæðustu í meira en öld
Tala látinna í gróðureldunum á Maui á Havaí náði 96 í gær. Enn er leitað að fólki sem er saknað. Gróðureldarnir eru verstu náttúruhamfarir í sögu Havaíríkis og mannskæðustu gróðureldar í Bandaríkjunum í meira en öld.

Fjöldi látinna í hörmungunum á Havaí hækkar enn
Alls hafa 89 andlát verið staðfest og fjöldi er slasaður í miklum gróðureldum á eyjunni Maui sem er hluti af Havaí-ríki Bandaríkjanna.

Sírenurnar fóru ekki af stað þegar eldurinn gleypti bæinn
Íbúar sem flúðu gróðurelda í bænum Lahaina á Maui spyrja sig af hverju hin frægu viðvörunarkerfi Hawaii vöruðu þau ekki við eldunum. Ekkert bendir til þess að sírenurnar hafi farið í gang áður en eldarnir gleyptu bæinn og tóku líf að minnsta kosti 53.

Dánartalan á Havaí muni hækka töluvert
Miklir gróðureldar hafa logað á eyjunni Maui, sem er hluti af Havaí í Bandaríkjunum í dag. Yfirvöld hafa varað við því að dánartölur á eyjunni Maui muni hækka. Ríkisstjóri Havaí segir að 53 manns hafi látist í eldunum.

Ferðamannabær í kalda kolum eftir mannskæða gróðurelda á Havaí
Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns eru látnir og fleiri slasaðir í miklum gróðureldum á eyjunni Maui sem er hluti af Havaí. Hundruð bygginga eru rústir einar eftir eldana sem brenndu ferðamannabæinn Lahaina svo gott sem til kaldra kola.

Sex látin eftir skógarelda á Havaí
Sex manns hafa látist og margir slasast eftir að skógareldar brutust út á havaísku eyjunni Maui í gær.

Hitinn í methæðum í mánuð
Hitinn í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum hefur farið yfir 43 gráður á selsíus þrjátíu og einn dag í röð. Ekkert lát virðist á sumarhitunum í Bandaríkjunum en júlímánuður verður sennilega heitasti mánuður sem mælingar hafa nokkru sinni sýnt.

„Sagan endalausa“ í baráttunni við gróðureldana
Enn standa slökkviliðsmenn í stríði við gróðurelda sem kviknað hafa í kringum gosstöðvarnar við litla Hrút. Slökkviliðsstjóri segist hræddur um að ástandið verði eins þar til það tekur að rigna, mikilvægt sé að eldunum sé haldið niðri á meðan þurrt er.

Minnst fimmtán látnir eftir skógarelda í Alsír
Að minnsta kosti fimmtán manns hafa látið lífið og 26 slasast eftir að skógareldar á 97 mismunandi svæðum brutust út í Alsír á dögunum.

Veðurguðirnir aldrei með slökkviliðsmönnum í liði
Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri.