Alvotech
1 2 3 4 ›
Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna. Innherji 16.2.2023 15:54
Lára hætt hjá Aztiq Fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttur hefur skrifað undir starfsflokasamning hjá fjárfestingafélaginu Aztiq Viðskipti innlent 14.2.2023 11:20
Alvotech tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, verður tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði frá og með næstkomandi mánaðarmótum. Það ætti að hafa í för með sér aukna fjárfestingu frá erlendum vísitölusjóðum en Alvotech bíður þess nú sömuleiðis að vera bætt við nýmarkaðsvísitöluna hjá FTSE Russell. Innherji 12.2.2023 14:18
Íslenskir fjárfestar komnir með um fimmtíu milljarða hlutabréfastöðu í Alvotech Íslenskir fjárfestar, einkum verðbréfasjóðir, fjárfestingafélög og efnameiri einstaklingar, áttu í byrjun þessa árs hlutabréf í líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrir að lágmarki um tuttugu milljarða króna miðað við núverandi gengi. Sú fjárhæð hefur núna tvöfaldast eftir nýafstaðið hlutafjárútboð félagsins en á meðal nýrra fjárfesta sem bættust þá í hluthafahópinn var lífeyrissjóðurinn Birta sem keypti fyrir tvo milljarða. Innherji 24.1.2023 13:45
Íslenskir fjárfestar leggja Alvotech til um tuttugu milljarða króna Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, hefur klárað lokað hlutafjárútboð sem var beint að innlendum fjárfestum fyrir jafnvirði um 19,6 milljarða króna, en tæplega þriðjungur þeirrar upphæðar kemur frá lífeyrissjóðum. Forstjóri Alvotech segir „mjög ólíklegt“ að bandaríska lyfjaeftirlitið muni koma með þannig athugasemdir í endurúttekt sinni á verksmiðju félagsins að einhverjar tafir verði á að það fái samþykkt markaðsleyfi vestanhafs 1. júlí næstkomandi fyrir sitt stærsta lyf. Innherji 23.1.2023 08:26
Alvotech leitar til innlendra fjárfesta eftir auknu hlutafé Rúmum einum mánuði eftir að Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, kláraði útgáfu á breytanlegum skuldabréfum fyrir jafnvirði um tíu milljarða króna vinnur líftæknilyfjafyrirtækið núna að því að sækja sér umtalsverða fjárhæð í aukið hlutafé til að treysta fjárhaginn. Félagið hóf markaðsþreifingar við innlenda fjárfesta fyrr í dag, samkvæmt heimildum Innherja, en stefnt er að því að klára útboðið fyrir opnun markaða á mánudag. Innherji 20.1.2023 16:44
LSR fyrsti af stóru lífeyrissjóðunum sem fjárfestir í Alvotech Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var í hópi innlendra fjárfesta, ásamt meðal annars þremur öðrum lífeyrissjóðum, sem komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrr í þessum mánuði með kaupum á skuldabréfum sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að einu ári liðnu, samkvæmt heimildum Innherja. Á meðal þriggja langsamlega stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR, LIVE og Gildis – er LSR fyrsti sjóðurinn sem kemur að fjármögnun á Alvotech en það er í dag orðið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni. Innherji 29.12.2022 10:31
Alvotech skákar Marel sem verðmætasta félagið eftir 40 prósenta hækkun í dag Markaðsvirði Alvotech hefur rokið upp í dag og er nú meira en Marels sem hefur verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni frá fjármálahruni ef undanskilin eru fáein ár þar sem Össur var líka skráð á markað hérlendis. Innherji 22.12.2022 11:00
Alvotech færist nær því að fá markaðsleyfi fyrir stærsta lyf sitt í Bandaríkjunum Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hefur lokið umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við gigtarlyfið Humira í háum styrk, sem er mest selda lyf í heimi, og staðfest að framlögð gögn íslenska félagsins sýni fram á að allar kröfur séu uppfylltar. Veiting markaðsleyfis í Bandaríkjunum er nú háð fullnægjandi niðurstöðu endurúttektar eftirlitsins á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík. Innherji 22.12.2022 09:41
Lífeyrissjóðir farnir að horfa til Alvotech eftir 1,6 milljarða kaup á víkjandi bréfum Að minnsta kosti þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech í liðinni viku með kaupum á skuldabréfum fyrir tæplega tvo milljarða sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að rúmlega einu ári liðnu. Áður hafði Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, sem var jafnframt í hópi þeirra sjóða sem tóku þátt í nýafstöðnu skuldabréfaútboði, fram að því verið eini lífeyrissjóðurinn hér á landi sem hafði fjárfest í eigin nafni í Alvotech. Innherji 20.12.2022 10:34
Alvotech fær tíu milljarða fjármögnun til að greiða niður lán frá Alvogen Alvotech hefur gengið frá tíu milljarða króna fjármögnun, jafnvirði um 59,7 milljón Bandaríkjadala, í formi víkjandi skuldabréfa með breytirétti í almenn hlutabréf í Alvotech. Innherji 16.12.2022 10:07
Alvotech á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi Viðskipti með hlutabréf Alvotech færðust af First North markaðnum yfir á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi í morgun. Viðskipti innlent 8.12.2022 15:02
Róbert Wessman sest í stól forstjóra Alvotech Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech, mun taka við starfi forstjóra félagsins eftir að Mark Levick forstjóri ákvað að biðjast lausnar. Viðskipti innlent 2.12.2022 07:05
Róbert Wessmann tekinn af Mannlífi Allar fréttir um Róbert Wessmann, eiganda lyfjafyrirtækisins Alvogen, eru horfnar af vef fjölmiðilsins Mannlíf. Halldór Kristmannsson, sem hefur átt í deilum við Róbert segir hvarf fréttanna ekki tengjast sátt milli hans og Róberts. Innlent 23.11.2022 19:21
Halldór og Róbert slíðra sverðin Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara. Viðskipti innlent 22.11.2022 12:18
Alvotech ræður Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóra gæðaeftirlits Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október næstkomandi. Viðskipti innlent 12.10.2022 13:57
Íslenskir sjóðir fjárfestu í Alvotech fyrir á fimmta milljarð Fjögur stærstu íslensku sjóðastýringarfélögin fjárfestu í Alvotech fyrir samtals vel yfir fjóra milljarða króna í aðdraganda þess að líftæknilyfjafyrirtækið var skráð á markað hér heima og í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum. Sjóðir opnir almennum fjárfestum í rekstri Íslandssjóða, dótturfélagi Íslandsbanka, voru þar umsvifamestir. Innherji 5.10.2022 08:08
Halda sínu striki og stefna á að leysa úr athugasemdum FDA Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech tilkynnti í dag um samskipti við Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, sem varða úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík, í kjölfar leyfisumsóknar Alvotech fyrir líftæknilyfjahliðstæðuna AVT02. Viðskipti innlent 5.9.2022 16:35
Alvotech stefnir á aðalmarkað Stjórn Alvotech hefur samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Viðskipti innlent 12.8.2022 08:37
Halldór þarf ekki að leggja fram tölvupósta og greinagerð Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, þarf ekki að verða við dómkröfu Björgólfs Thors um að leggja fram tugi tölvupósta, greinargerð og önnur dómsskjöl í máli Alvogen gegn Halldóri. Björgólfur stendur nú í málaferlum vegna falls Landsbankans árið 2008 og gerði kröfuna í tengslum við þau skaðabótamál. Viðskipti innlent 11.7.2022 15:53
DNB mælir með kaupum í Alvotech og verðmetur félagið á 700 milljarða Hlutafé íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi í liðnum mánuði, er metið á rúmlega 5,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, samkvæmt nýju verðmati. Innherji 7.7.2022 16:01
Róbert hringir lokabjöllunni í tilefni skráningar Alvotech Hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í Nasdaq First North Growth markaðnum í morgun. Í tilefni af því mun Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, hringja lokabjöllu kauphallarinnar við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum félagsins. Viðskipti innlent 23.6.2022 14:46
Viðskipti með bréf Alvotech hafin á Íslandi Hlutabréf Alvotech verða tekin til viðskipta á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík í dag. Félagið var skráð á markað í Bandaríkjunum fyrir viku síðan en um er að ræða fyrsta félagið sem skráð er á markað hér á landi og vestanhafs samtímis. Viðskipti innlent 23.6.2022 10:09
Hlutur Róberts metinn á um 226 milljarða króna Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessman var í dag skráð á markað í Bandaríkjunum aðeins tíu árum eftir stofnun. Þá er fyrsta lyf fyrirtækisins nú komið í dreifingu í Kanada og Evrópu eftir að dómssátt náðist um leyfismál. Viðskipti innlent 16.6.2022 20:01
Stærsta stund ferilsins í dag Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessmann, verður skráð á markað í Bandaríkjunum í dag. Fyrirtækið verður það fyrsta íslenska sem skráð er á markað í Bandaríkjunum og á Íslandi - og þá er þetta í fyrsta sinn í rúm tuttugu ár sem íslenskt fyrirtæki er skráð í bandarísku kauphöllina. Viðskipti innlent 16.6.2022 13:16
Hefur „óbilandi trú“ á Alvotech þótt aðstæður á markaði séu erfiðar Hlutabréf íslenska fyrirtækisins Alvotech, sem hefur unnið að þróun líftæknilyfja frá stofnun þess fyrir um áratug og kostað til um einum milljarði Bandaríkjadala, jafnvirði yfir 130 milljarða króna, verða tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni, stærsta hlutabréfamarkaði heims, í New York eftir hádegi í dag. Alvotech verður með því eina íslenska félagið sem er á bandarískum hlutabréfamarkaði. Innherji 16.6.2022 06:00
Samþykkja samruna Oaktree og Alvotech og skráning boðuð í næstu viku Mikill meirihluti hluthafa sérhæfða yfirtökufélagsins Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti fyrr í kvöld öfugan samruna við íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum, og að hlutabréf Alvotech verði tekin til viðskipta á Nasdaq markaðnum í New York daginn eftir. Innherji 7.6.2022 23:50
Samþykktu samruna Alvotech og Oaktree Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Þá verður Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum þann 16. júní. Viðskipti innlent 7.6.2022 23:37
Hækkar verðmatið á Alvotech í 630 milljarða rétt fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem verður skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi síðar í þessum mánuði, er metið á um 4,95 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 630 milljarða króna, í uppfærðu verðmati bandaríska fjárfestingabankans Nortland Capital á félaginu. Innherji 3.6.2022 07:57
Tryggir sér 32 milljarða fjármögnun til að mæta mögulegum innlausnum fjárfesta Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og Íslandi sem verður að óbreyttu í næsta mánuði, hefur gengið frá samkomulagi við tvo bandaríska fjárfestingasjóði sem tryggir félaginu aðgang að fjármögnun fyrir allt að 250 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 32 milljarða íslenskra króna. Innherji 20.4.2022 16:30