Kettir

Frægasti köttur landsins týndur
Kötturinn Diego, einn allra frægasti köttur landsins, er týndur. Eigandinn greinir frá þessu í aðdaéndahóp kattarins á Facebook, sem telur um fimmtán þúsund manns. Ef marka má umræður virðist honum hafa verið rænt úr Skeifunni.

Prestur fann köttinn sinn eftir samtal við miðil
Kötturinn Kola var búin að vera týnd í átta daga þegar Jóhanna Magnúsdóttir, eigandi hennar, ákvað í örvæntingu sinni að leita til miðils. Miðillinn sagði köttinn vera á lífi nálægt byggingarsvæði sem kom Jóhönnu á sporið og fannst Kola í kjölfarið.

Eitrað fyrir ketti í Sandgerði
Rétt rúmlega eins árs gamall köttur drapst í Sandgerði fyrir tveimur vikum eftir að hafa innbyrt mikið magn frostlagar. Talið er að eitrað hafi verið fyrir kettinum.

Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk!
Við Víkurhvarf 5 er huggulegt kaffihús þar sem flóra gesta er þó dálítið óvenjuleg. Þar geta gestir komið með hundana eða kettina sína með sér. Kaffihús Dýrheima nýtur vinsælda meðal hundaeigenda en er einnig spennandi kostur fyrir þá sem eiga ekki gæludýr.

Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi vegna ágreinings um kött, þar sem tveir deildu um það hvor væri réttmætur eigandi kattarins. Rannsókn lögreglu á vettvangi varð til þess að kötturinn endaði að lokum í höndunum á réttum eiganda.

Alvarleg staða uppi í kattaheimum
Kattaathvörf landsins eru óðum að fyllast og staðan er víðast hvar sögð þyngjast dag frá degi. Samtökin villikettir sendu frá sér neyðarkall í vikunni þar sem óskað var eftir heimili fyrir um 200 ketti. Rekstrarstjóri Kattholts segir stöðuna mjög slæma, Kattholt sé yfirfullt. Kristín Ólafsdóttir heimsótti Kattholt í kvöldfréttum í kvöld.

Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús
Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans.

Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt
Rétt næring er lykillinn að heilbrigði og vellíðan hunda og katta. Afleiðingar af röngu fæði geta verið allt að tvö ár að koma fram. Theodóra Róbertsdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur hjá Dýrheimum hefur sérhæft sig í næringu smádýra á vegum bresku dýralæknasamtakanna.

Veiðihundar í Laugardal grunaðir um að hafa banað ketti
Dýraþjónusta Reykjavíkur er nú með til skoðunar mál þriggja veiðihunda, ungverskra viszla, í Laugardal í Reykjavík. Hundarnir eru grunaðir um að hafa drepið heimiliskött á fimmtudaginn síðasta. Sömu hundar eru grunaðir um að hafa drepið tvo ketti áður.

Fordæma notkun „ómannúðlegra“ minkagildra
Jacobina Joensen formaður dýraverndunarfélagsins Villikatta segir félagið fordæma einstaklinga, sveitarfélög og félagasamtök sem nota minkagildrur. Þær séu hannaðar til að meiða dýr og það sé óskiljanlegt að þær séu enn leyfðar á Íslandi.

Kennari hljóp til þegar Sushi læstist inni eftir skólaslit
Hinn víðfrægi köttur Sushi læstist inni í Garðaskóla eftir skólaslit um helgina. Kötturinn þurfti þó ekki að dúsa lengi í skólanum en kennari í skólanum var fljótur að hlaupa til og hleypa kettinum út eftir að íbúi í bæjarfélaginu vakti athygli á kettinum á Facebook.

Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að reisa styttu af kettinum Sushi
Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að láta reisa styttu af frægasta ketti bæjarins, Sushi, sem mun því sem fréttastofa kemst næst brjóta blað í sögunni og verða fyrsti íslenski kötturinn sem fær reistan skúlptúr sér til heiðurs. Kötturinn er fastagestur í Hagkaup og sækir kennslustundir í Garðaskóla.

Gæludýrin þurfa að ferðast með töskunum
Ekki er lengur heimilt að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla.

Salvador á Djúpavogi reyndist heita Buszek og búa í Sandgerði
Heimilislaus köttur sem fannst á Djúpavogi og gefið var nafnið Salvador reyndist í raun heita Buszek og eiga heimili í Sandgerði. Þaðan hvarf hann fyrir þremur árum síðan. Eigandinn segist ekki hafa trúað sínum eigin augum þegar hún rak augun í mynd af Buszek á Facebook síðu Villikatta á Austurlandi.

Bíða eftir tölvupósti frá Heimsmetabók Guinness
Eigandi brasilíska kattarins Xartrux reynir nú að fá nafn kattarins ritað í sögubækurnar en hann er einn og hálfur metri að lengd og rúmlega tíu kíló. Xartrux, eða eigandi hans öllu að heldur, leitast eftir heimsfrægð og vill að upplýsingar um holdafar kattarins rati í heimsmeistarbók Guinness þar sem hann verði skráður stærsti köttur heims.

Íbúar í Fukuyama beðnir um að halda sig frá eitruðum ketti
Íbúar í Fukuyama í vesturhluta Japan hafa verið varaðir við því að nálgast hvorki né snerta kött sem virðist hafa dottið í tank fullan af sexgildu krómi, sem er mjög eitrað og meðal annars krabbameinsvaldandi.

Málið sem skekið hefur Skeifuna
Hagkaup hefur ekki rekið frægasta kött landsins út á gaddinn, að sögn framkvæmdastjóra. Kettinum er frjálst að dvelja í hlýju anddyrinu þó að heilbrigðiseftirlitið hafi úthýst honum úr búðinni sjálfri. Við kynntum okkur „Stóra Diego-málið“ sem skekið hefur Skeifuna undanfarna daga.

Undrun og reiði meðal vina Diego
Einn frægasti köttur landsins, kötturinn Diego, má ekki lengur leggja sig inni í verslun Hagkaupa í Skeifunni vegna reglna heilbrigðiseftirlitsins en er þó velkominn í anddyrið. Vinir Diego á Facebook eru sárir vegna málsins en kötturinn er þó enn velkominn í A4.

Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum
Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar.

Geldingar- og ófrjósemisaðgerðir á kostakjörum
Vegna mikils fjölda heimilislausra katta í athvörfum landsins, hyggst Dýraspítalinn í Víðidal bjóða upp á „geldingar- og ófrjósemisaðgerðadaga“ í næstu viku. Markmiðið er að reyna að sporna við fjölgun katta.

Íbúa í kjallara gert að stöðva stöðuga kattaumferð inn um glugga
Óheimilt er fyrir íbúa í kjallara í fjölbýlishúsi í Reykjavík, sem lengi hefur hleypt köttum sem hann á ekkert í inn um glugga í íbúð sinni, að taka á móti köttum.

Kötturinn Prins var týndur í tólf ár
Kötturinn Prins, sem hefur verið týndur í tólf ár var að finnst heill á húfi. Hann átti heima í Reykjavík en fannst í Húsafelli eftir að hafa verið þar á vergangi.

Óheimilt verði að fljúga með hunda og ketti í farþegarými
Óheimilt verður að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla samkvæmt drögum að breytingu á reglugerð um innflutning hunda og katta.

Þula, Yrja og Þengill bíði eftir að þeim sé hleypt út
Fulltrúar dýraverndunarsamtaka biðu í allan dag við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi eftir leyfi til að fara inn í Grindavík en fengu það ekki. Dýrfinna og Kattholt hafa kortlagt staðsetningu dýra í bænum, safnað búnaði og fengið lykla að húsum eigenda til að bjarga dýrunum.

Um 250 gæludýr enn í Grindavík
Dýraverndarsamtökin Dýrfinna hafa safnað lista með tæplega 250 dýrum sem eru enn í Grindavík. Sjálfboðaliði segir samtökin tilbúin að fara inn í bæinn til að bjarga dýrum um leið og aðstæður leyfa. Samtökin geri sér grein fyrir því að ekki muni öll dýrin koma heil út úr ástandinu.

Björguðu yfir þúsund köttum frá slátrun
Lögregla í Zhangjiagang borg í Kína hefur bjargað yfir þúsund köttum frá slátrun. Til stóð að selja kjötið af köttunum og dulbúa það sem svína-og kindakjöt.

Kattakona nefndi nasista í kröfu sinni um bætur frá Icelandair
Viðskiptavinur Icelandair sem ætlaði að ferðast með kött yfir Atlantshafið fær engar skaðabætur eftir að hafa verið hafnað að ferðast með dýrið. Viðskiptavinurinn ávarpaði fulltrúa Samgöngustofu sem nasista.

Viltu elska mig?
Ég hef eytt löngum stundum á kaffihúsi hér í borginni þar sem ég hef átt hraðstefnumót við misskemmtileg og óáhugavert fólk. Ég sit stundum í makindum mínum úti í glugga á kvöldin og syng. En ég er ekki að syngja fyrir aðra, bara fyrir mig. Kannski er ég að kalla á vin, leita að ástinni. Frelsinu.

Hugsanlegt krabbamein reyndust hárteygjur í tugatali
Betur fór en á horfðist þegar Herði Ágústssyni athafnamanni og kattaeiganda var tjáð að það sem talið var vera krabbamein í kettinum Snúði var í raun haugur af hárteygjum, reimum og plasti í maganum á honum. Hann segir stærsta léttinn vera að hafa ekki þurft að segja börnunum vondar fréttir.

Fundu Kodda mjög hræddan á þaki brunarústanna
Sjálfboðaliðar frá dýrabjörgunarsamtökunum Dýrfinnu fundu ungan innikött sem týndist eftir stórbrunann við Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði. Eigandinn bjóst ekki við að finna hann enda er Koddi inniköttur.