
Framhaldsskólar

Alsæl með meiri svefn: „Þessi hálftími gerir mjög mikið!“
Tíundu bekkingar í Hagaskóla hoppa hæð sína yfir að fá nú að sofa hálftíma lengur eftir breytingu hjá Reykjavíkurborg. Svefnsérfræðingur bindur vonir við að önnur sveitarfélög fylgi í kjölfarið.

Framhaldsskólanemar fagna gjaldfrjálsum námsgögnum
Forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema fagnar fyrirætlunum barna- og menntamálaráðherra um að gera námsgögn gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema sem eru undir átján ára. Hún hefur ekki áhyggjur af því að nemendur fari illa með námsgögnin verði þau gjaldfrjáls en það sé mikilvægt að skólayfirvöld séu skýr með það sem þau ætlist til af nemendum.

Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að stefnt sé að því að gera námsgögn gjaldfrjáls í framhaldsskólum fyrir 18 ára og yngri. Hann segist mjög fylgjandi gjaldfrjálsum námsgögnum og skólamáltíðum.

Börn eða bissness
Þá er komið að því aftur, PISA niðurstöðurnar komnar og þjóðfélagið nötrar. Umræðan fer af stað, misvönduð, misgáfuleg og misgagnleg. Einhverjir kalla nú eftir því að skólastarf verði metið eins og starfsemi fyrirtækja á samkeppnismarkaði og mig langar að ávarpa aðeins þær vangaveltur.

Pawel og bronsið
Á dögunum skrifaði Pawel Bartoszek, stærðfræðingur með meiru, grein um mikilvægi þess að kennarar sjái ekki einir um mat á námsárangri nemenda. Það sé enda mikilvægt að framhaldsskólar geti valið sér nemendur á sanngjarnan hátt og treyst því að eins manns A væri ekki annars manns B+. Stöðlun sé mikilvæg og samræmi þurfi að vera í einkunnum.

Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu
Viðskiptaráð Íslands hefur svarað gagnrýni menntamálaráðherra og formanns Kennarasambands Íslands. Ráðið segir formann KÍ ekki viðurkenna raunverulegan vanda einkunnaverðbólgu og einkunnasamræmis og segir ráðherrann skauta umræðu um menntun.

Hlutfall nýnema sem útskrifast aldrei verið hærra
Brautskráningarhlutfall nýnema í framhaldsskólum hefur ekki mælst hærra hér á landi og hefur vaxið stöðugt síðan árið 1995, eins langt og tölur Hagstofunnar ná. Það er, hlutfall þeirra nýnema sem hefur útskrifast fjórum árum eftir upphaf skólagöngu.

Áskorun fyrir konu úti á landi að tjá sig um menntamál
Kennari og verkefnastjóri læsisverkefnisins Kveikjum neistann segir þöggun ríkja innan menntakerfisins og áskorun sé að tjá sig um menntamál sem kona á landsbyggðinni. Hún segir ákveðna einstaklinga virðast hafa skotleyfi en tölurnar sýni fram á mælanlegan árangur verkefnisins.

Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur
Menntamálaráðherra segir málflutning Viðskiptaráðs, um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins.

Segir aðkomu Kennarasambandsins ekkert nema eðlilega
Viðskiptaráð Íslands kennir stefnumótun Kennarasambandsins um neyðarástand í íslensku grunnskólakerfi, og vill fá samræmd próf aftur inn í skólana. Stjórnarmaður í sambandinu gefur lítið fyrir slíka gagnrýni.

Börnum sé mismunað eftir búsetu við einkunnagjöf
Viðskiptaráð Íslands segir að jafnræðis sé ekki gætt við einkunnagjöf í íslenskum grunnskólum. Þetta komi fram á könnunarprófi sem lagt er fyrir nýnema Verzlunarskóla Íslands í upphafi skólaárs til að kanna raunfærni þeirra.

Vill gera smokkinn sexí aftur
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks.

Metaðsókn erlendra ríkisborgara í framhalds- og háskólanám
Nemendur á skólastigum fyrir ofan grunnskóla á Íslandi voru 43.446 haustið 2023 og hafði fækkað um 618 frá fyrra ári, eða um 1,4 prósent. Ekki hafa verið færri 16 ára nemendur síðan 2018. Mikil fjölgun er meðal erlendra ríkisborgara og hafa þeir aldrei verið fleiri í námi eftir grunnskóla. Flestir þeirra eru Pólverjar. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Hagstofunnar.

Klámáhorf barna enn að dragast saman
Þrír af hverjum fjórum strákum í framhaldsskóla hafa horft á klám. Hlutfall stelpna er nokkru lægra eða 41 prósent. Lægra hlutfall bæði stráka og stelpa á unglingastigi og á framhaldsskólaaldri segjast hafa horft á klám nú en 2021.

Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði
Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.

Muni styrkja bæinn og starfsemi skólans gríðarlega
Í dag var undirritað samkomulag um byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Með samkomulaginu er fjármagn til byggingar nýs skóla tryggt og hægt að fara í útboð á framkvæmdum og hönnun skólans.

Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði
Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna.

Coolbet áberandi í útilegu Verzlinga
Veðmálafyrirtæki með ólöglega starfsemi hér á landi var í áberandi samstarfi við útilegu framhaldsskólanema í Grímsnesi um helgina. Skólastjóra Verzlunarskóla Íslands er ekki skemmt. Coolbet og fleiri veðmálafyrirtæki auglýsa grimmt á samfélagsmiðlum án aðgerða stjórnvalda.

Tækniskólinn og Kvennaskólinn vinsælastir
Innritun nemenda í framhaldsskóla er nú lokið en alls bárust 4.677 umsóknir fyrir haustið. Flestar umsóknir voru með Tækniskólann eða Kvennaskólann í vali eitt eða tvo. Öllum umsækjendum var tryggt pláss í skóla fyrir veturinn.

Dúxinn Max er „tölvuleikjanörd“ og mætti á öll böllin
Max Forster er dúx Menntaskólans á Akureyri þetta árið með einkunnina 9,83. Auk þessa merka áfanga mætti hann samviskusamlega á viðburði sem félagslíf MA hafði upp á að bjóða og stundaði bæði tölvuleiki og frisbígolf í frítíma sínum.

Einn umdeildasti kennari landsins lætur af störfum
Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari í Garðabæ mun ekki mæta til kennslu næsta haust. Tekist hefur samkomulag milli hans og Kristins Þorsteinssonar skólameistara að komið sé gott.

Ákall eftir náttúrufræðikennurum
Hvernig bætir eitt leyfisbréf gæði menntunar? Árið 2020 voru samþykkt lög um eitt leyfisbréf kennara, óháð skólastigi. Erfitt var að sjá hvernig þessi breyting ætti að auka gæði menntunar og þess vegna mótmæltu meðal annarra Samtök líffræðikennara. Það hefði verið heppilegra að gera sértækari leyfisbréf fyrir kennara að minnsta kosti á efri skólastigum.

„Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“
Það kom Álfrúnu Lind Helgadóttur í opna skjöldu þegar nafn hennar var kallað upp í háskólabíói á útskriftarathöfn Menntaskólans í Reykjavík árið 2024. Hún var dúx skólans þetta árið.

Metfjöldi nemenda þreytir sveinspróf í múrverki
Metfjöldi nemenda taka sveinspróf í múrverki við Tækniskólann í vikunni eða alls 26. Þráinn Óskarsson kennari við múrdeild skólans segist finna fyrir aukinni jákvæðni í garð iðnnáms.

Einstakt tækifæri til listnáms í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður fjölbreytt listnám á framhaldsskólastigi og nám á fjórða hæfnisstigi sem brúar bil milli framhaldsskóla- og háskólastigs. Einnig hefur skólinn í allmörg ár boðið einstaklingum með þroskaskerðingu eins árs diplómanám. Í listsköpun birtast oft hæfieikar einstaklinga sem hið hefðbundnda skólakerfi hefur ekki náð að draga fram.

Soffía er nýr skólameistari FSu
Soffía Sveinsdóttir er nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Soffíu í embætti skólameistara til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga
Útskriftarferð nýstúdenta frá Verzlunarskóla Íslands hófst með þeim pirrandi hætti að ekið var á ítalska leiguflugvél þeirra á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið. Vonandi reynist fall fararheill. Innan við tvö ár eru síðan ekið var á flugvél Verzlinga á ferðalagi.

Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla
Ragna María Sverrisdóttir dúxaði við Verzlunarskóla Íslands með tíu í meðaleinkunn en 330 nýstúdentar útskrifuðust frá skólanum um helgina. Nói Pétur Á. Guðnason var semídúx með 9,9 í meðaleinkunn. Nemendur Verzló héldu í útskriftarferð í dag sem gekk ekki áfallalaust fyrir sig.

Er sjálfvirknivæðing að stela störfum og framtíðar möguleikum hjá drengjum sem geta ekki lesið sér til gagns?
Ég skellti mér í vöfflukaffi á laugardaginn hjá Miðflokknum. Að þessu sinn var Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands með ansi áhugaverða framsögu sem hann kallaði „Skólastarf á Ísland. Aukin gæði í allra þágu og raddir skólafólks í fyrirrúmi“.

Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðríði Hrund Helgadóttur í embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi til fimm ára frá 1. ágúst 2024. Guðríður sótti ein um embættið.