
Hernaður

Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk
Úkraínumenn eru sagðir hafa náð tökum á að minnsta kosti þremur þorpum í Kúrskhéraði, eftir skyndisókn sem hófst í gær. Samhliða henni munu Rússar þó hafa gert sína eigin stórsókn gegn Úkraínumönnum annarsstaðar í héraðinu og þykir það benda til þess að Rússar hafi átt von á sókn Úkraínumanna.

Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah
Hætti Hútar ekki að skjóta eldflaugum að Ísrael er hætt við því að þeir hljóti „sömu aumu örlög“ og Hamas, Hezbollah eða Bashar al-Assad. Þetta sagði sendiherra Ísrael hjá Sameinuðu þjóðunum í dag og kallaði hann það síðustu viðvörun Húta, sem stjórna stórum hluta Jemen og njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran.

Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni
Fjölmenni gekk niður Laugaveg í Reykjavík í árlegri Friðargöngu sem fram fer í skugga blóðugra styrjalda víða um heim.

Göngum fyrir friði
Á Þorláksmessu hvert ár er gengið fyrir friði í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði. Fjölmargir taka sér frí frá jólastressinu til að ganga með tendruð ljós og hlýða á friðarboðskap og fagra tóna. Þetta er falleg hefð sem undirstrikar að jólin eiga að vera hátíð ljóss og friðar.

Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi
Tveir flugmenn sjóhers Bandaríkjanna lifðu af þegar herþota þeirra var skotin niður yfir Rauðahafi í nótt. Svo virðist sem þotan hafi verið skotin niður af Bandaríkjamönnum sjálfum og var það í kjölfar loftárásar gegn Hútum í Jemen.

Vara við upprisu ISIS
Leiðtogar regnhlífarsamtakanna Syrian democratic forces í Sýrlandi, sem er að mestu stýrt af sýrlenskum Kúrdum, hafa varað við því að vígamenn íslamska ríkisins séu tilbúnir til að láta að sér kveða aftur. Upprisa þeirra sé í raun þegar hafin og umsvif ISIS í eyðimörkinni milli Sýrlands og Írak hafi aukist frá falli Assad-stjórnarinnar.

„Kimdátar“ berjast og falla í Kúrsk
Undanfarna daga hafa fregnir borist af því að dátar Kims Jong Un frá Norður-Kóreu hafi tekið þátt í bardögum gegn úkraínskum hermönnum í Kúrskhéraði í Rússlandi. Þar eru þeir sagðir hafa orðið fyrir mannfalli en úkraínskir hermenn hafa sagt þá sækja fram án stuðnings og bryndreka.

Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum
Úkraínskir embættismenn segja að útsendarar Öryggisstofnunar Úkraínu, sem er leyniþjónsta og í daglegu tali kallast SBU, hafi ráðið rússneskan herforingja af dögum í Mosvku í morgun. Herforinginn var í gær ákærður í Úkraínu fyrir notkun efnavopna.

Viðræður um vopnahlé sagðar á lokametrunum
Embættismenn í bæði Palestínu og Ísrael hafa gefið til kynna að eftir margra mánaða viðræður sé vopnahlé á Gasaströndinni í sjónmáli. Viðræður um vopnahlé og mögulega frelsun þeirra gísla sem Hamas-liðar halda enn hafa virst frosnar um mánaða skeið.

Eru Rússar að hörfa frá Sýrlandi?
Rússneskir hermenn í Sýrlandi hafa streymt til Hmeimim herstöðvar Rússlands í Latakiahéraði. Gervihnattamyndir sýna að þar hafa hermenn verið að taka saman loftvarnarkerfi og þykir það benda til þess að Rússar séu alfarið að yfirgefa Sýrland eftir fall ríkisstjórnar Bashars al-Assad.

Tæplega hundrað eldflaugum og tvö hundruð drónum skotið að Úkraínu
Rússneski herinn skaut í morgun nærri því hundrað eldflaugum og rúmlega tvö hundruð drónum að Úkraínu. Árásin beindist að miklu leyti að orkuinnviðum ríkisins, eins og svo margar árásir hafa gert áður, en þessi þykir hafa verið einstaklega umfangsmikil.

Segir Rússa undirbúa langvarandi átök við NATO
Ríki Atlantshafsbandalagsins eru ekki undirbúin fyrir þá ógn sem stafar af Rússlandi til lengri tíma. Þörf væri á breyttu hugarfari meðal ráðamanna í NATO og auka þurfi fjárútlát til varnarmála. Það væri eina leiðin til að koma í veg fyrir stríð.

„Við erum að erfa útblásið bákn, þjakað af spillingu“
Uppreisnarmenn sem tekið hafa stjórn á Sýrlandi standa frammi fyrir ærnu verkefni þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn og halda ríkinu sameinuðu. Sýrlenska ríkið er í mikilli niðurníðslu og sjóðir ríkisins tómir, samkvæmt starfandi forsætisráðherra. Þá þurfa uppreisnarmennirnir að sannfæra þjóðina og heiminn um að þeir ætli sér ekki að skipta út einni alræðisstjórn fyrir aðra.

Neita fullyrðingum þingmanns um dróna frá „móðurskipi“ Íran
Talsmaður Pentagon neitar því staðfastlega að drónar sem sést hafa í New Jersey á síðustu vikum komi frá „móðurskipi“ Írana við austurströnd Bandaríkjanna.

Engin grið gefin þeim sem stóðu að pyntingum og morðum
Leiðtogar uppreisnarmanna sem nú eru við stjórnvölinn í Sýrlandi segja engin grið verða gefin þeim sem báru ábyrgð á pyntingum og morðum í alræmdu fangelsiskerfi stjórnar Bashar al-Assad.

Boða tíma „stöðugleika og friðar“
Uppreisnarhópurinn Hayat Tahrir al-Sham (HTS) hefur skipað Mohammad al-Bashir í embætti forsætisráðherra Sýrlands. Mun hann sinna starfinu til 1. mars 2025.

Draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands
Ísraelar hafa á undanförnum dögum, eða frá því ríkisstjórn Bashar al-Assads féll, gert hundruð loftárása í Sýrlandi. Markmið þessara árása virðist vera að draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands takist yfir höfuð að mynda hana.

Erlend ríki keppast við að tryggja hagsmuni sína í Sýrlandi
Atburðarásin í Sýrlandi hefur verið hröð eftir að uppreisnarmenn létu til skarar skríða gegn stjórn Bashar al-Assad á dögunum, sem nú er flúinn til Rússlands. Enn ríkir algjör óvissa um framhaldið en erlend ríki keppast að því að tryggja hagsmuni sína.

Vörpuðu sprengjum á hergögn og efnavopn í Sýrlandi
Ísraelar gerðu í nótt og í morgun þó nokkrar loftárásir í Sýrlandi, auk þess sem ísraelskir hermenn fór yfir landamæri ríkjanna við hinar hernumdu Gólanhæðir. Loftárásirnar voru að mestu gerðar við strandlengju Sýrlands og í suðurhluta landsins.

Fall Assads góðar fréttir fyrir Sýrlendinga og heimsbyggðina alla
Sérfræðingur í varnarmálum segir fall al-Assad-stjórnarinnar í Sýrlandi ekki aðeins vera góðar fréttir fyrir almenning í Sýrlandi heldur fyrir heiminn allan. Nú reyni á leiðtoga sameinaðra uppreisnarafla að halda stöðugleika og friði á milli ólíkra fylkinga.

Sýrlenska þjóðin á krossgötum: Hver er Abu Mohammed al-Jolani?
Abu Mohammed al-Jolani er fyrirferðarmikill þessa dagana enda leiddi skyndisókn hans og bandamanna hans í gegnum varnir Aleppo, Hama og Homs í Sýrlandi til falls einræðisstjórnar sem hafði verið við völd í Sýrlandi í meira en hálfa öld. Þykir hann líklegur til að reyna að mynda nýja ríkisstjórn í Sýrlandi en hvort honum takist það og hvernig sú ríkisstjórn mun líta út er erfitt að segja til um.

Bandaríkin gerðu 75 loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi
Bandaríkjaher gerði meira en 75 loftárásir á skotmörk Íslamska ríkisins í Sýrlandi í dag. Markmið árásanna hafi verið að þurrka út herbúðir ISIS í miðhluta Sýrlands.

Leiðtogi uppreisnarmanna sé bandamaður Bandaríkja
Leiðtogi uppreisnarmanna í Sýrlandi sameinaði mismunandi fylkingar og beið eftir því að athygli Rússlands væri í Úkraínu og athygli Írans í Ísrael til að grípa til skyndisóknar gegn Assad-stjórninni sem væri þá veik án viðvarandi stuðnings sinnar helstu bandamanna. Aðgerðir uppreisnarmanna voru vel skipulagðar.

Vígamenn leggja undir sig úthverfi höfuðborgarinnar
Uppreisnar- og vígamenn í Sýrlandi leggja nú undir sig hvert úthverfið á eftir öðru í Damaskus, höfuðborg landsins. Talsmaður yfirvalda í Sýrlandi þvertekur fyrir það að forseti ríkisins, Bashar al-Assad, hafi lagt á flótta.

„Dögun þriðju kjarnorkualdarinnar er í vændum“
Æðsti hernaðarleiðtogi Bretlands segir heiminn hafa breyst og að hann sé flóknari. Þá segir hann að þriðja kjarnorkuöldin sé að hefjast og að hún yrði mun flóknari en þær fyrri.

Önnur borg í höndum uppreisnarmanna
Uppreisnar- og vígamenn hafa rekið stjórnarher Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og aðrar sveitir hliðhollar forsetanum frá borginni Hama. Það er ein af stærri borgum landsins en einungis tveir dagar eru síðan uppreisnarmennirnir hófu sóknina að borginni og var það í kjölfar óvæntrar skyndisóknar gegn Aleppo, í norðvesturhluta landsins.

Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum
Helsti ráðgjafi Vólódímírs Selenksí, forseta Úkraínu, er sagður í Bandaríkjunum þar sem hann ætlar að funda með ráðgjöfum og verðandi embættismönnum Donalds Trump, verðandi forseta. Andríj Jermak er sagður hafa hitt Susie Wiles, verðandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, sem hefur lengi unnið með Trump.

Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi
Harðir bardagar eru sagðir eiga sér stað milli uppreisnar- og vígamanna annars vegar og stjórnarhers Bashars al-Assad, forseta Sýrlands, og annarra sveita honum hliðhollar hinsvegar norður af borginni Hama. Það er ein af stærstu borgum Sýrlands og höfuðborg Hama-héraðs og hafa uppreisnarmennirnir tekið nokkra bæi norður af borginni í dag.

Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki
Varnarmálaráðherra Ísrael segir að ef til þess kemur að vopnahléið við Hezbollah í Líbanon haldi ekki, muni stjórnvöld ekki gera greinarmun á Hezbollah annars vegar og Líbanon hins vegar.

Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa
Uppreisnar- og vígamenn höfðu í morgun náð tökum á bróðurparti Aleppo-borgar í Idlib héraði í Sýrlandi eftir umfangsmikla skyndisókn og hafa þeir einnig náð tökum á stóru svæði kringum borgina á undanförnum þremur dögum. Í nótt tóku uppreisnarmenn kastala Aleppo, í miðri borginni, og í morgun lýsti ríkisstjórn Sýrlands því yfir að herinn hefði hörfað frá borginni.