Spænski boltinn

Neitar því að hafa unnið að því að losna við Messi úr spænsku deildinni
Forseti Real Madrid hafnar þeim ásökunum að hann hafi reynt að hjálpa til að koma Lionel Messi úr spænsku deildinni.

Iniesta: Verður sárt að sjá Messi í annarri treyju
Andrés Iniesta, leikmaður Vissel Kobe í Japan og goðsögn hjá spænska stórveldinu Barcelona, segir synd og skömm að Lionel Messi hafi yfirgefið Katalóníurisann.

Kepa kom inn fyrir vítakeppnina og tryggði Chelsea Ofurbikarinn
Chelsea vann Villarreal 6-5 í vítaspyrnukeppni til að tryggja sér Ofurbikar Evrópu í fótbolta á Windsor Park í Belfast í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, gerði skiptingu undir lok framlengingar sem hafði mikið að segja um úrslitin.

Fleiri lið en Barcelona í vandræðum vegna nýju reglanna
Nýtt tímabil í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta hefst eftir tvo daga með leik Valencia og Getafe á föstudagskvöld. Valencia er ásamt stórliðinu Barcelona á meðal nokkurra liða í deildinni sem ekki geta skráð nýja leikmenn sína til leiks vegna nýrra fjárhagsreglna í deildinni.

PSG fékk Messi frítt en greiðir himinhá laun
Lionel Messi hefur samþykkt tveggja ára samning við franska félagið Paris Saint Germain sem fær argentínska snillinginn á frjálsri sölu. PSG þarf hins vegar að borga honum stórar upphæðir fyrir þjónustu hans inn á vellinum.

Bauluðu á sinn eigin leikmann af því að þeir kenna honum um brottför Messi
Barcelona er búið að vinna fyrsta titilinn án Lionel Messi en einn af þeim sem vann hann lét ekki sjá sig í verðlaunaafhendinguna.

Tekur sér ekki frí þrátt fyrir að hafa spilað 73 leiki á innan við ári
Spænski miðjumaðurinn Pedri mun snúa aftur til æfinga hjá félagi sínu, Barcelona, á miðvikudag. Þetta gerir hann þrátt fyrir að vera nýbúinn að ljúka keppni á Ólympíuleikunum í Tókýó og hafa áður verið með Spáni á EM fyrr í sumar.

Misstu fyrst Messi og svo Aguero þar til í nóvember
Aðeins nokkrum dögum eftir að Barcelona tilkynnti að Lionel Messi yrði ekki lengur hjá félaginu þá kom annað áfall.

Hljóp inn á til að húðskamma Carrasco og lét dómara leiksins fá það óþvegið í leikslok
Diego Simeone, þjálfari Spánarmeistara Atlético Madríd, verður seint talinn rólegur í skapinu. Hann missti stjórn á skapi sínu er lið hans tapaði 2-1 gegn Feyenoord frá Hollandi um helgina.

Hefði ekki mátt spila launalaust með Barcelona
Lionel Messi hefur yfirgefið spænska stórveldið Barcelona og mun að öllum líkindum semja við franska knattspyrnufélagið París-Saint Germain síðar í dag. Vegna regluverks La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, gátu Börsungar ekki samið við Argentínumanninn á nýjan leik þar sem hann hefði ekki mátt spila launalaust með félaginu.

PSG býður Messi tveggja ára samning
Lionel Messi er við það að ganga til liðs við Frakklandsmeistara PSG eftir að hafa kvatt Barcelona í morgun.

Börsungar rúlluðu yfir Juventus í síðasta leik undirbúningstímabilsins
Dramatískum degi í Barcelona lauk með æfingaleik Barcelona og Juventus á Johan Cruyff leikvangnum í Barcelona.

„Barça verður aldrei samt án þín“
Spánverjinn Cesc Fabregas, sem leikur með Mónakó í Frakklandi, sendi Lionel Messi hjartnæma kveðju á samfélagsmiðlinum Twitter. Fabregas er jafnaldri Messi og æfði með honum sem unglingur áður en þeir spiluðu saman fyrir aðallið Barcelona síðar.

„Engar áhyggjur, ég verð hér í ár“
Sergio Agüero, leikmaður Barcelona, segist ætla að vera hjá félaginu áfram þrátt fyrir vandræðin sem plaga klúbbinn. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að hann vilji fara burt frá Katalóníu.

Messi sagður skrifa undir í París á morgun
Lionel Messi mun skrifa undir hjá franska knattspyrnufélaginu Paris Saint-Germain fljótlega eftir helgi. Frá þessu greina erlendir fjölmiðlar en Messi kvaddi Barcelona á blaðamannafundi í dag.

Messi var viss um að hann yrði áfram: „Erfiðasta augnablikið á ferlinum“
Argentínska fótboltastjarnan Lionel Messi segist hafa gert allt sem hann gat til að vera áfram í herbúðum Barcelona á Spáni en að reglur spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga, hafi gert það að verkum að samningmálin gengu ekki upp. Hann kveður félagið eftir 21 ár í Katalóníu.

Messi kveður Barcelona með tárum
Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik fyrir katalónska fótboltaliðið Barcelona. Hann er á blaðamannafundi í beinni frá Nývangi.

Messi eyðilagður og í áfalli yfir því að þurfa að fara frá Barcelona
Lionel Messi er í áfalli og niðurbrotinn eftir að hann gat ekki endurnýjað samning sinn við Barcelona.

Grátur og gnístran tanna fyrir utan Nývang eftir brotthvarf Messis
Stuðningsmenn Barcelona eru í áfalli eftir að greint var frá því að Lionel Messi hefði yfirgefið félagið sem hann hefur leikið með allan sinn feril.

Forseti Barcelona: Gat ekki tekið ákvörðun sem myndi tortíma félaginu
Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að fjárhagsstaða félagsins sé verri en hann grunaði og því hafi verið ómögulegt að semja aftur við Lionel Messi.

PSG búið að hafa samband við Messi
Paris Saint-Germain hefur sett sig í samband við Lionel Messi og vill fá Argentínumanninn til félagsins.

Messi á förum frá Barcelona
Þau risastóru tíðindi voru að berast að Lionel Messi mun ekki skrifa undir nýjan samning við spænska félagið Barcelona. Messi varð samningslaus þann 30. júní síðastliðinn, og nú fyrr í dag sigldu samningaviðræður hans við Barcelona í strand.

Bandarískt fjármálafyrirtæki á að koma La Liga til bjargar
Forráðamenn La Liga, efstu deildar karla í fótbolta á Spáni, hafa samið við bandaríska fjármálafyrirtækið CVC Capital Partners um sölu á 10% hlut í deildinni fyrir 3 milljarða bandaríkjadala. Félögin í deildinni eiga eftir að gefa grænt ljós á söluna.

Segir viðræður við Messi vera að þokast í rétta átt
Yfirgnæfandi líkur eru á því að Lionel Messi verði áfram hjá spænska stórveldinu Barcelona.

Sturlaðist á hliðarlínunni og var rekinn í sturtu í æfingaleik
Það sauð allt upp úr á hliðarlínunni þegar Marseille og Villarreal mættust í æfingaleik á laugardagskvöld.

Veiran læsti klónum í Benzema
Karim Benzema, framherji Real Madrid og franska landsliðsins, hefur greinst með kórónuveiruna.

Þurfa að vera á pari við AC Milan og Tottenham þegar kemur að launum
Spænsku stórveldin Barcelona og Real Madrid hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa leikmenn dýrum dómum og borga jafn há laun og þau hafa gert undanfarin ár. Reglugerð La Liga, spænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, sér til þess.

Marca gagnrýnt fyrir að kalla Alaba hinn svarta Sergio Ramos
Spænska dagblaðið Marca hefur fengið mikla gagnrýni fyrir grein um nýjasta leikmann Real Madrid, David Alaba.

Segir Varane ákveðinn í því að yfirgefa Real Madrid
Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano fullyrðir að franski miðvörðurinn Raphaël Varane ætli sér að yfirgefa félagið og stefni á að spila í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United ku vera líklegasti áfangastaður kappans.

Sýndi myndband af flottustu mörkunum sínum áður en hann bað kærustunnar
Marcos Llorente, leikmaður Atlético Madrid og spænska landsliðsins, bað kærustu sinnar með miklum stæl á dögunum.