

Tveir voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans eftir árekstur tveggja farartækja á göngustíg við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun. Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu.
Hopp hefur tryggt 381 milljóna króna fjármögnun frá Brunni vaxtarsjóði II. Stefnir íslenska rafskútufélagið nú á frekari útrás á erlenda markaði með sérleyfum (e. franchise).
Á síðustu árum hefur reglulega verið hamrað á mikilvægi þess að nota hjálm við hjólreiðar. Hjólreiðamenn virðast nota hjálm í auknum mæli en nýtt og jafnvel stærra vandamál hefur nú skotið upp kollinum; rafhlaupahjól.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, varar við því að raftæki séu hlaðin á nóttunni, á meðan enginn getur fylgst með þeim. Borið hefur á að eldur hafi kviknað út frá raftækjum, til dæmis símum, rafhjólum og rafhlaupahjólum.
Ráðstefnan Slysavarnir hófst í dag en ráðstefnan, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir, fer nú fram í fjórða sinn. Ríflega 30 fyrirlesarar munu í dag og á morgun fara yfir hin ýmsu málefni tengd slysavörnum og öryggismálum. Að sögn verkefnastjóra er af nægu að taka og mikilvægt að minna á mikilvægi slysavarna.
Rafhlaupahjólaleigan Wind hefur hætt starfsemi hér á landi en rúmt ár er síðan þýska fyrirtækið opnaði þjónustu sína í Reykjavík. Notendur Wind hafa átt í miklum vandræðum að nálgast rafhlaupahjól leigunnar að undanförnu.
Áfengi á allt of stóran þátt í slysum á rafhlaupahjólum að sögn yfirlæknis á bráðamóttöku Landspítala, en slíkum slysum fjölgar á milli ára. Hann telur að taka ætti upp næturstrætó að nýju svo fólk komist heim af djamminu með öruggum hætti.
Fjórir hafa þurft að leggjast inn á Landspítala eftir slys á rafhlaupahjóli en almennt eru slys á slíkum fararskjótum ekki alvarleg. Yfirlæknir bráðamóttöku bendir á að fá slys verði á rafhlaupahjólum miðað við hversu margar ferðir eru farnar á þeim.
245 einstaklingar leituðu á bráðamóttöku Landspítala vegna rafhlaupahjólaslysa í júní, júlí og ágúst. Sama tímabil í fyrra var fjöldinn 149. Meðalfjöldi þeirra sem þurfti að leita á bráðamóttöku vegna rafhlaupahjóla fór úr 1,6 sumarið 2020 í 2,7 nú í sumar.
Móðir stúlku sem var ekið á í Vesturbæ Reykjavíkur síðdegis í gær segir að ökumaðurinn hafi gefið í og skilið stúlkuna eftir slasaða í vegarkantinum. Lögregla lýsti eftir ökumanninum í dag.
Námsmaður og meðstjórnandi í Samtökum um bíllausan lífsstíl segir það hafa verið eina bestu ákvörðun sem hann hafi tekið að losa sig við bílinn og fjárfesta í rafmagnshjóli, sem hann hefur nú farið nær allra sinna ferða á í tvö ár. Bíllausi dagurinn er haldinn í dag og höfuðborgarbúum býðst frítt í Strætó.
Veruleg hætta getur stafað af raftækjum sem eru í hleðslu inni á heimilum fólks. Eldur kom upp í íbúð á föstudag sem talinn er hafa kviknað út frá rafhlaupahjóli sem þar var í hleðslu.
Búið er að slökkva eld sem kom upp í íbúð að Bríetartúni 9 til 11.
Viðskiptavinir rafskútuleigunnar Hopp vissu ekki á hvaðan á sig stóð veðrið þegar þeir sáu dauða fiska á sex mismunandi farartækjum. Málið hefur vakið mikla athygli á meðal forvitinna netverja sem leita nú að veraldlegum skýringum.
„Þetta er víst allt á réttri leið núna. En ég er mjög vönkuð og stundum hringsnýst allt. Ég er samt betri í dag en í gær og er sátt svo lengi sem að gólfið er á réttum stað,“ segir tónlistarkonan Ragna Kjartansdóttir (Cell 7) í samtali við Vísi.
Ökumenn bifreiða geta þurft að bera ábyrgð á tjóni sem þeir verða fyrir af völdum rafskúta. Þetta kann þó að vera mörgum óskiljanlegt, þar sem rafskútur eru ekki leyfðar á götum. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis í dag.
Osló er sú borg í Evrópu hvar flestar rafskútur eru á hvern íbúa. Nú stendur til að fækka þeim verulega.
Rétt upp úr miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp í Hlíðahverfi, þar sem einstaklingur hafði fallið af rafhlaupahjóli, eða rafskútu. Viðkomandi var talinn fótbrotinn og var fluttur á bráðadeild til skoðunar.
Norsku rafhlaupahjólaleigurnar Bolt og Ryde hafa ákveðið að slökkva á öllum rafhlaupahjólum sínum í landinu á þeim tíma vikunnar þegar slys tengd hjólunum eru flest, það er milli miðnættis og klukkan fimm á morgnana aðfaranætur laugardags og sunnudags.
Leigubílstjórar sem fréttastofa ræddi við um helgina segjast langþreyttir á óhöppum af völdum ölvaðs fólks á rafhlaupahjólum. Þeir telja nauðsynlegt að banna leigu á hlaupahjólunum um helgar til að forðast slys vegna ölvunar.
Eftir að hugmyndir komu fram um að banna leigu á rafhlaupahjólum um helgar vegna ölvunar brugðust margir við og bentu á að það væri líklega ekki lausnin. Nú hefur Stöð 2 rætt við fjölbreytta fulltrúa næturlífsins og þeir taka í sama streng.
Framkvæmdastjóri Hopp, stærsta rafskútufyrirtækis á landinu, telur „alveg galið“ að fara að banna rafskútur um helgar til þess að forðast slys vegna ölvunar. Sú hugmynd var sett fram í nýrri skýrslu um umferðaröryggi sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg.
Nokkrir leita á bráðamóttöku landspítalans á hverjum degi vegna rafskútuslysa, flestir með andlitsáverka eða áverka á handleggjum. Um fjörutíu prósent slasaðra hafa verið undir áhrifum áfengis.
Höfundum skýrslunnar Rafskútur og umferðaröryggi sem gerð var fyrir Vegagerðina og Reykjavíkurborg telja æskilegt að hámarkshraði rafhlaupahjóla verði lækkaður á ákveðnum svæðum í borginni. Þeim þykir þá vel koma til greina að leyfa umferð hlaupahjólanna á götum þar sem hámarkshraðinn er 30 kílómetrar á klukkustund.
Síðasta sumar leitaði að meðaltali 1,6 á bráðamóttökuna vegna slysa á rafhlaupahjólum á degi hverjum, sem samsvarar um ellefu á viku. Margir sem slösuðust voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna.
Hopp endurnýjaði allan flota sinn á höfuðborgarsvæðinu á dögunum með nýjustu kynslóð af rafskútum og undirstrikaði þar með yfirburði sína á íslenska rafskútumarkaðnum. Flotinn stækkaði um leið úr 300 í 1.100 hjól.
Lítið mátti út af bregða þegar tíu ára gamalt barn missti stjórn á rafhlaupahjóli á Akureyri með þeim afleiðingum að það dró barnið út á akbraut. Hársbreidd munaði að bifreið yrði ekið á barnið en 50 kílómetra hámarkshraði var í umræddri götu.
Nú er vor í lofti og hjól af ýmsu tagi algengari í umferðinni. Rafhlaupahjól hafa á skömmum tíma náð miklum vinsældum hér á landi líkt og annars staðar í heiminum. Víða má sjá vegfarendur á þeysireið um stíga borgar og bæja og margir hafa tileinkað sér þennan einfalda og umhverfisvæna fararmáta.
Stór hluti þeirra sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala síðasta sumar vegna slysa á rafhlaupahjólum voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Könnun sýnir að næst algengast sé að slík farartæki séu notuð til að komast til og frá skemmtistöðum, börum og veitingastöðum.
Tæplega nítján prósent Reykvíkinga nota rafhlaupahjól eitthvað og tæp sex prósent nota þau einu sinni í viku eða oftar. Notkunin er mest í aldurshópnum 18 til 24 ára og virkustu notendurnir eru búsettir í Háaleiti/Bústöðum.