Ástin á götunni

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Víkingur 0-4 | Víkingar geta farið að setja kampavínið í kælinn eftir stórsigur gegn Val
Víkingur er kominn með 11 stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta en Fossvogsliðið lagði Val, sem situr í öðru sæti deildarinnar, að velli með fjórum mörkum gegn engu í toppslag liðanna í 20. umferð deildarinnar á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Eftir þennan sigur hefur Víkingur 53 stig á toppnum en Valur kemur svo næst með 42 stig.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 2-1 | Heimamenn nýttu Evrópuþreytu gestanna
Fram og KA mættust í Úlfarsárdalnum í 20. umferð Bestu deildar karla nú í dag. Eftir afar spennandi og skemmtilegan leik fór svo að lokum að Fram vann afar mikilvægan 2-1 sigur þar sem sigurmarkið kom á 90. mínútu.

Óskar Hrafn: Átti alls ekki von á því
Breiðablik vann Keflavík 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk heimamanna. Óskar Hrafn, þjálfari Breiðabliks, var sáttur með flest allt í leik sinna manna í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 2-1 | Ágúst Eðvald sá um gestina
Breiðablik mætti Keflavík í kvöld í 20. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með 2-1 sigri heimamanna þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk Blika.

Ekki til betri tilfinning
Aron Jóhannsson var hetja Fram í dag þegar liðið lagði KA 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu. Aron skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir góða skyndisókn. Hann var að vonum gríðarlega sáttur þegar hann mætti í viðtal eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Valur 0-3 | Öruggur sigur Vals á Króknum
Íslandsmeistarar Vals fóru í góða ferð á Sauðárkrók í 17. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Lokatölur 0-3 og gott gengi ríkjandi Íslandsmeistara Vals heldur áfram.

Fylkir vann lífsnauðsynlegan sigur í Eyjum
Fylkir gerði góða ferð til Vestmannaeyja í Bestu deild karla í knattspyrnu. Orri Sveinn Stefánsson skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur lifðu leiks og Fylkir lyfti sér upp úr fallsæti.

„Þið sjáið hvernig deildin er núna í ár“
ÍBV náði í stig á erfiðum útivelli í Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Breiðablik á Kópavogsvelli. Todor Hristov var að vonum sáttur með stigið en fannst sitt liði þó geta hafa farið til Eyja með öll þrjú stigin úr Kópavoginum.

„Tók meðvitaða ákvörðun um að vera rólegasti maðurinn á bekknum“
Stjarnan vann 0-1 sigur gegn FH þar sem Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir gerði sigurmarkið. Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 0-1 | Stjarnan hafði betur í Krikanum
Stjarnan vann 0-1 sigur gegn FH í Krikanum. Leikurinn var ansi lokaður og liðin sköpuðu fá færi. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍBV 0-0 | Blikar að missa af toppliðinu
Breiðablik fékk ÍBV í heimsókn í dag í 17. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með markalausu jafntefli þar sem Blikar lágu á Eyjakonum allan síðari hálfleikinn, án þess þó að skora.

Umfjöllun: Selfoss - Þór/KA 1-2 | Fallið blasir við Selfyssingum
Þór/KA vann góðan 2-1 sigur er liðið heimsótti botnlið Selfoss í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í dag. Selfyssingar eru nú sjö stigum frá öruggu sæti og fallið blasir við liðinu.

Emil um endurkomuna: Hafði alltaf trú á sjálfum mér
Sóknarmaðurinn Emil Atlason hafði alltaf trú á því að hann kæmi til baka eftir ítrekuð meiðsli. Hann blómstrar nú í Bestu deildinni í knattspyrnu og er með sjálfstraustið í botni.

Bestu mörkin: Rætt um ótrúlegt gengi FH eftir erfiða byrjun
Nýliðar FH í Bestu deild kvenna hefur án nokkurs vafa verið spútniklið tímabilsins til þessa. Liðið situr í fjórða sæti deildarinnar og gengi liðsins var rætt í Bestu mörkunum í gær.

Bikarmeistararnir gerðu jafntefli í Mosfellsbænum
Afturelding og bikarmeistarar Víkings gerðu 2-2 jafntefli í Lengjudeild kvenna í kvöld. Þá vann Fylkir stórsigur á Augnabliki og er líka með í baráttunni.

„Leikir sem voru að detta með þeim í upphafi móts eru ekki að detta með þeim núna“
Lið Keflavíkur situr í fallsæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar í Bestu mörkunum ræddu stöðu liðsins í þætti gærkvöldsins á Stöð 2 Sport.

Allt jafnt í markaleik á Nesinu
Grótta og Fjölnir gerðu 3-3 jafntefli þegar liðin mættust í lokaleik 17. umferðar Lengjudeildar karla í kvöld. Fjölnir er áfram í þriðja sæti deildarinnar eftir jafnteflið.

Njarðvík úr fallsæti og Afturelding heldur áfram að tapa stigum
Njarðvík er komið úr fallsæti Lengjudeildarinnar í knattspyrnu eftir 3-2 sigur á Selfossi í kvöld. Topplið Aftureldingar gerði jafntefli við Vestra og hefur ekki náð sigri í síðustu fjórum leikjum.

„Murielle er besti framherjinn í deildinni“
Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, var að vonum ánægður með sigur síns liðs á Þrótti í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þróttur er að elta toppliðin tvö á meðan Tindastóll er að berjast fyrir sæti sínu í deildinni.

„Fyrsta skipti sem við erum með átján manna hóp“
Valur vann 3-2 sigur á Þór/KA norður á Akureyri í dag í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn var opinn og skemmtilegur en Valsliðið var ívið betra í dag og vann sanngjarnan sigur.Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var nokkuð léttur að leik loknum og skemmti sér vel yfir leiknum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þróttur - Tindastóll 0-2 | Óvæntur sigur Stólanna í Laugardalnum
Tindastóll gerði sér lítið fyrir og vann Þrótt Reykjavík í Laugardalnum þegar liðin mættust í 16. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Þróttur hefur nú leikið þrjá leiki án sigurs.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Valur 2-3 | Meistararnir gerðu góða ferð norður í land
Valur vann 3-2 sigur á Þór/KA norður á Akureyri í kvöld í 16. umferð Bestu deilar kvenna. Leikurinn var opinn og skemmtilegur en sanngjörn sigur Vals var niðurstaðan eftir hörkuleik.

Umfjöllun: ÍBV - Keflavík 1-0 | Eyjakonur innbyrtu gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni
ÍBV og Keflavík mættust í mikilvægum botnbaráttuslag í 16. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í Vestmannaeyjum í kvöld. Liðin voru jöfn að stigum með 14 stig hvort lið í 8. og 9. sæti deildarinnar fyrir þennan leik.

Steven Lennon í Þrótt
Það er nóg um að vera í Laugardalnum í dag en rétt í þessu staðfesti Þróttur Reykjavík að skoski framherjinn Steven Lennon muni spila með liðinu á láni út tímabilið. Skömmu þar áður var tilkynnt að landsliðskonan Elín Metta Jensen hefði tekið skóna af hillunni og myndi spila með kvennaliði félagsins til 2024.

Elín Metta í Þrótt
Landsliðskonan fyrrverandi Elín Metta Jensen hefur ákveðið að taka takkaskóna af hillunni og er genginn í raðir Þróttar Reykjavíkur í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Held að það hafi enginn í hópnum okkar verið hissa á hans frammistöðu í dag
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur með frammistöðu sinna manna þegar Stjarnan lagði Fylki afar sannfærandi í Bestu deild karla í knattspyrnu í Árbænum nú í kvöld. Lokatölur urðu 4-0 fyrir Stjörnuna.

Sísí Lára skiptir yfir til ÍBV þrátt fyrir að skórnir séu farnir upp í hillu
Sigríður Lára Garðarsdóttir, betur þekkt sem Sísí Lára, hefur fengið félagaskipti í ÍBV, uppeldisfélag sitt. Sísí Lára lagði skóna á hilluna að loknu síðasta tímabili vegna þrálátrar liðagigtar.

„Köstuðum þessu frá okkur“
Eyjamenn misstu einbeitinguna og forskotið sem þeir byggðu upp gegn FH í fyrri hálfleik þegar liðið tapaði 2-1 gegn FH í Bestu deild karla í dag. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV var svekktur í leikslok.

„Þeir eru andlega og líkamlega gjaldþrota og þurfa að fá tíma til að jafna sig“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var fúll að fá ekki öll stigin þrjú þegar lið hans sótti KA heim á Akureyri í dag.

Álagsleikur á Akureyri í dag
Breiðablik sækir KA heim á Akureyri í Bestu deildinni í dag en bæði lið hafa spilað ansi marga leiki síðustu vikur og má leiða að því líkur að sumir leikmenn séu að keyra á síðustu bensíndropunum í tanknum.