Alþingiskosningar 2021

Háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra
Stjórnmálafræðingur telur að mjög háværir hópar innan Vinstri grænna muni láta í sér heyra í komandi kosningum vegna mótstöðu við áframhaldandi stjórnarsamstarf með Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki. Yfirgnæfandi meirihluti fylgismanna flokksins eru mótfallnir samstarfinu.

Betra fyrir barnafólk
Barnafólk með meðaltekjur hér á landi veit ekkert hvað ég er að tala um þegar ég nefni barnabætur sem búbót fyrir barnafólk. Þau hafa aldrei fengið útborgun frá ríkinu sem ætluð er til að jafna stöðu þeirra gagnvart hinum sem ekki eru með börn á framfæri.

Kjósendur VG afgerandi á móti frekara ríkisstjórnarsamstarfi
Rúm sjötíu prósent kjósenda Vinstri grænna eru mótfallin áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir alþingiskosningar 25. september, samkvæmt könnun Maskínu sem gerð var fyrir fréttastofu dagana 14. til 22. júní. Aðeins tæpur þriðjungur, eða 29 prósent, kjósenda VG er fylgjandi frekara samstarfi.

Bergþór sækist eftir endurkjöri
Framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins á fimmtudaginn. Bergþór Ólason, þingmaður leiðir listann í kjördæminu en hann var einnig oddviti flokksins í kjördæminu á síðasta kjörtímabili.

Ritstjóri Vb vísar meintri kvenfyrirlitningu á bug
Trausti Hafliðason ritstjóri Viðskiptablaðsins segir fullyrðingar um að konur séu gagnrýndar frekar en karlar í skoðanapistlum blaðsins eiga ekki við rök að styðjast.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Kraganum kynntur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar var samþykktur á fundi Kjördæmisráðs flokksins sem fór fram í Valhöll í gær.

Fjórar konur á framboðslista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi
Framboðslisti Miðflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins mun leiða listann áfram í kjördæminu en þetta er þá annað kjörtímabilið sem hann leiðir lista flokksins í kjördæminu.

Framsókn á siglingu í nýrri könnun
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 25,4 prósent í nýrri skoðanakönnun MMR, tæplega tveimur prósentustigum lægra en í síðustu fylgismælingu frá í byrjun júní. Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 12,3 prósent, rúmlega þremur prósentustigum hærra en í síðustu könnun.

Bein útsending: Drífa Snædal yfirheyrir Sigurð Inga
Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna.

Listar VG í Reykjavíkurkjördæmum staðfestir
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, mun leiða framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Halda aukaþingfund í dag svo kosningar geti farið fram með eðlilegum hætti
Þingmenn þurfa að gera hlé á sumarfríi sínu og sækja aukaþingfund sem verður haldinn í dag til að leiðrétta mistök sem gerð voru við meðferð frumvarps við þinglok.

Gunnar Smári býður sig fram: „Sósíalismi er í tísku“
Gunnar Smári Egilsson stofnandi Sósíalistaflokksins ætlar að gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi kosningar. Hann segir það sæta tíðindum í íslenskum stjórnmálum að stjórnmálaflokkur mælist með fulltrúa á þingi án þess að hafa kynnt framboðslista flokksins. Sósíalismi sé í tísku meðal ungs fólks.

Páll segir skipun Kristjáns Þórs hafa skaðað Sjálfstæðisflokkinn
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í grein í Morgunblaðinu að það hafi verið sjálfskaparvíti að gera Kristján Þór Júlíusson að sjávarútvegsráðherra. Hægt hefði verið að komast hjá því að valda grunsemdum um hagsmunaárekstra með því að sleppa því.

Misstrangar reglur á samfélagsmiðlum um áróður fyrir kosningar
Erfiðara gæti verið fyrir nafnlausa hulduhópa að dreifa áróðri á Facebook í aðdraganga Alþingiskosninganna í september en undanfarin ár vegna nýlegra starfsreglna um gegnsæi. Minni hömlur eru á slíkan áróður á Youtube.

Brynjar tekur þriðja sætið og Sigríður í heiðurssæti
Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi Alþingiskosningar hafa verið samþykktir á fundi Varðar, fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. Fundurinn var haldinn í Valhöll í dag og munu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, leiða listana.

Drífa Snædal ræðir við Katrínu Jakobsdóttur
Drífa Snædal, forseti ASÍ, tekur á móti Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni Vinstri grænna, klukkan tíu í dag.

Sumarfrí þingmanna rofið til að leiðrétta mistök
Áætlað er að Alþingi komi saman í næstu viku til þess að leiðrétta mistök sem gerð voru við meðferð frumvarps til kosningalaga og frumvarps til breytinga á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka. Þetta staðfestir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í samtali við Vísi.

Kosningar 2021: Sterk staða stjórnarflokkanna
Í nýrri skoðanakönnun Maskínu má tína til töluverð tíðindi sem áhugavert er að staldra við. Jafnvel þó svo að stuðningur við ríkisstjórnina sem slíka dali nokkuð, fari úr 47,7 prósentum í 42,5 prósent þá styrkja stjórnarflokkarnir þrír allir stöðu sína á milli mánaða, mjög mismikið þó.

„Miðflokkurinn mætti gufa upp mér að meinalausu“
Inga Sæland formaður Flokksins gefur lítið fyrir nýja könnun um fylgi flokkanna. Nema henni kemur ekki á óvart að Miðflokkurinn skuli ekki sjá til sólar.

Könnun Maskínu: Hvorki Flokkur fólksins né Sósíalistaflokkurinn á þing
Hvorki Flokkur fólksins né Sósíalistaflokkur Íslands næðu inn á þing samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Flokkarnir mælast báðir með ríflega fjögurra prósenta fylgi.

Sam
Ég þekki mann sem er svo hægri sinnaður að hann þolir engin orð sem hafa forskeytið sam-. Hann telur sig sannan íhaldsmann og málvöndunarmann af gamla skólanum.

Silja Dögg í heiðurssæti Framsóknar í Suðurkjördæmi
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, situr í neðsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Neðsta sæti framboðslista er iðulega kallað heiðurssæti.

Frjálslynt fólk í frábærum flokki
„Arnar af hverju ert þú í pólitík?“ Þetta er spurning sem ég fæ oft þegar fólk heyrir að ég starfi með Viðreisn og gegni trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Í framhaldinu fylgir oft spurningin um hvort pólitík sé ekki bara ákveðin leið til þess að koma sínum málum á framfæri og skapa svigrúm fyrir persónulegan ávinning?

„Treysti mér ekki til að vinna í þessu athugasemdarlaust“
Arnar Þór Jónsson dómari við Héraðsdóm í Reykjavík ákvað að skella sér í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn um daginn. Hann segir í viðtali í hlaðvarpinu 24/7 að það sé mikilvægt að það eigi sér stað vitundarvakning í samfélaginu um réttarkerfið.

Haraldur hættur við að hætta líka
Haraldur Benediktsson þingmaður hefur ákveðið að þiggja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Fýlupúkafélagið í Sjálfstæðisflokknum safnar vopnum sínum
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf það út í gær að hann væri hættur við að hætta í pólitíkina. Hann skorar nú á Harald Benediktsson þingmann félaga sinn í flokknum að gera slíkt hið sama.

Eftir að hafa legið kófsveittur undir feldi hefur Brynjar ákveðið að hætta við að hætta
Brynjar Níelsson þingmaður hefur gefið það út að hann ætli að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Benedikt biður Jón Steindór afsökunar
Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar segist hafa farið fram úr sér í yfirlýsingum undanfarna daga.

Segist vona að eigin hagsmunir Benedikts blindi honum ekki sýn
„Það hefur hryggt mig meira en orð fá lýst að Benedikt Jóhannesson, sem ég hef talið góðan félaga og vin, hafi valið þá leið að gera forystu og stofnanir flokksins tortryggilegar í kjölfar þess að hann fékk ekki vilja sínum framgengt við uppstillingar á lista.“

Útiloka ekki stofnun nýs flokks
Benedikt Jóhannesson, einn af stofnendum Viðreisnar, segir ótímabært að svara því hvort hann ætli sér að stofna klofningsflokk frá Viðreisn. Greint var frá því í dag að Benedikt hefði sagt sig úr framkvæmdastjórn flokksins en hann er fyrrverandi formaður og einn stofnenda hans.