Eftir að hafa legið kófsveittur undir feldi hefur Brynjar ákveðið að hætta við að hætta Jakob Bjarnar skrifar 24. júní 2021 11:40 Fjölmargir hafa skorað á Brynjar að hætta við að hætta og hann hefur nú ákveðið að verða við því. Í yfirlýsingu að hætti hússins segir Brynjar að það sé eiginlega búið að sannfæra sig um að niðurstaðan í prófkjörinu hafi, þegar allt kemur til alls, verið stórsigur fyrir sig. vísir/vilhelm Brynjar Níelsson þingmaður hefur gefið það út að hann ætli að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.
Brynjar sendi frá sér tilkynningu þessa efnis á Facebook-síðu sinni nú rétt í þessu. Þar segir hann að eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi hann talið rétt að kveðja stjórnmálin. Niðurstaðan hafi verið vonbrigði og talsvert frá hans markmiðum. „Þessi ákvörðun féll í grýttan jarðveg hjá mörgum flokksmönnum og var lagt nokkuð hart að mér að endurskoða þessa ákvörðun. Ég féllst á að íhuga það. Mér var bent á af sérfræðingum í eðli prófkjara og Kremlarlógíu flokksins að niðurstaða prófkjörsins hafi verið góð fyrir mig. Að lokum náðist að sannfæra mig að ég hafi í raun verið sigurvegari prófkjörsins og þetta hafi að auki verið stórsigur.“ Kófsveittur og illa lyktandi Brynjar bætir þá í þegar hann talar um þessi miklu innri og ytri átök: „Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kófsveittur og illa lyktandi hef ég ákveðið að þiggja sæti á listanum, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sannfærður um að stefna flokksins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í komandi kosningabaráttu og er sannfærður að sterkur og breiður Sjálfstæðisflokkur er mikilvægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.“ Brynjar klykkir út með því að segja að í Sjálfstæðisflokknum séu margar vistarverur og öll séum við ólík. En sameiginlegar séu hugsjónir sem birtist í grunnstefnu flokksins. „Við þurfum hins vegar að berjast fyrir stefnunni og hugsjónunum. Þurfum kjark og þor í stað þess að berast með straumnum, sem á það til að fara í misgóðan farveg, öllum til tjóns.“ Eins og Brynjar kemur inná lenti hann á milli steins og sleggju í prófkjöri Sjálfstæðismanna, milli tveggja fylkinga þeirra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem tókust á um oddvitasætið og hafði Guðlaugur Þór þar betur. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. „Úrslitin eru talsverð vonbrigði fyrir mig en skilaboðin eru skýr. Ég trúi því að Sjálfstæðisflokknum muni vegna vel í komandi kosningum. Ég kveð því stjórnmálin sáttur,“ sagði Brynjar eftir að niðurstaðan lá fyrir. Hann gekkst fúslega við því í viðtölum að vera fúll og grútspældur með þessa niðurstöðu. En sagði Sjálfstæðismenn þá sem kusu í prófkjörinu, sem var sameiginlegt fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin, hafa kveðið upp sinn dóm og það yrði þá bara svo að vera. Íhaldssami armur flokksins verður undir Fyrir ofan hann í prófkjörinu voru auk Guðlaugs Þórs og Áslaugar Örnu þær Diljá Mist Einarsdóttir aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs og varaþingmaðurinn Hildur Sverrisdóttir. Sigríður Á. Andersen þingmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra galt afhroð í prófkjörinu og Birgir Ármannsson þingflokksformaður náði aðeins sjötta sætinu. Niðurstöðuna má túlka sem svo að sá armur flokksins sem kenna má við íhald og frjálshyggju hafi orðið undir. Og Sjálfstæðisflokkurinn að einhverju leyti verið kvenvæddur í leiðinni. Brynjar er öðrum þræði talsmaður hóps sem forysta flokksins vill síður að flækist yfir til Miðflokksins en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður hans bíður með opinn arminn fyrir Brynjari og öðrum Sjálfstæðismönnum sem tilheyra þeirri fylkingu. Og atkvæðum sem þeim fylgja. Guðlaugur Þór hefur sagt að missir væri af Brynjari og er meðal fjölmargra sem vildi að hann endurskoðaði ákvörðun sína. Honum hefur nú orðið að ósk sinni. Núverandi þingmenn flokksins í Reykjavík eru Guðlaugur Þór, Áslaug Arna og Birgir í norður en Sigríður Á. Andersen og Brynjar í suður. Brynjar greindi frá ákvörðun sinni í Harmageddon í morgun.
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Tengdar fréttir Upphlaup vegna afarkosta Haralds skerpa línur í Sjálfstæðisflokknum Áhugamenn um stjórnmál og þar með innyfli Sjálfstæðisflokksins hafa komist í feitt í upphlaupinu í tengslum við afarkosti Haraldar Benediktssonar vegna komandi prófkjörs í Norðvesturkjördæmi. 16. júní 2021 16:45 Guðlaugur í sigurvímu á kosningavöku: „Þeir töpuðu!“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á laugardagskvöld. Hann fagnaði árangrinum ásamt stuðningsmönnum fram á rauða nótt og í sigurræðu sinni sem horfa má á hér á Vísi lét hann stór orð falla um ástand mála í Sjálfstæðisflokknum. 7. júní 2021 13:33 Segir missi að Brynjari og vill að hann endurskoði ákvörðun sína Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær, vonast til að þingmaðurinn Brynjar Níelsson endurhugsi stöðu sína og taki þriðja sæti á öðrum lista flokksins í Reykjavík. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. 6. júní 2021 23:27 Fagnar góðu gengi kvenna í prófkjörum flokksins Formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna fagnar góðum árangri kvenna í prófkjörum flokksins fyrir komandi kosningar. Kynjahlutföll oddvitanna í kjördæmunum sex eru jöfn og útlit er fyrir að sjö konur muni taka sæti á Alþingi fyrir flokkinn á næsta kjörtímabili, haldi flokkurinn fylgi sínu. 20. júní 2021 13:17 Mest lesið Bræður dæmdir fyrir að ráðast á Börk tuttugu árum eftir árásina á A. Hansen Innlent Annað sinn sem læknir lýgur um krabbamein: „Þetta mun fara á versta veg“ Innlent Maðurinn sem fannst látinn var um fertugt Innlent Leitar bróður sem hún hefur aldrei hitt Innlent Á spítala eftir hnífaárás og örstutt í flug en lét til skarar skríða daginn eftir Innlent Dorrit rænd í Lundúnum Innlent Myndskeið þingmannsins féll í grýttan jarðveg hjá kennurum Innlent Íslendingur gekk berserksgang í Horsens Innlent Kveður Sjálfstæðisflokkinn og hyggur á framboð fyrir Miðflokkinn Innlent Óvíst hvort framboð anni eftirspurn Innlent Fleiri fréttir Borgaði sig fyrir kirkjuna að breyta um merki Þota til Egilsstaða í kvöld til að flytja veðurteppta Tíu prósent leikskólastarfsmanna hafi ekki meðalhæfni í íslensku Ræningjarnir hefðu aldrei sloppið á Íslandi Ókyrrð í lægri flughæðum raskar innanlandsfluginu Leitar bróður sem hún hefur aldrei hitt Dorrit, leit að bróður og pakkaflóð Miðflokkurinn áfram á flugi Myndskeið þingmannsins féll í grýttan jarðveg hjá kennurum Viðrar hugmynd um að gera fullveldisdaginn að rauðum degi Þorgerður Katrín opnaði nýtt sendiráð í Madríd Hefðbundin fullveldisdagskrá forseta eftir óvenjulegar aðstæður í fyrra Bræður dæmdir fyrir að ráðast á Börk tuttugu árum eftir árásina á A. Hansen Krafa um íslenskukunnáttu á spítalanum eigi að tryggja öryggi sjúklinga Óvíst hvort framboð anni eftirspurn Setja fyrirvara við vistun barna í brottfararstöð Hæstiréttur byrjaður á Instagram Upplifun gesta við Skógafoss verði margfalt betri Orkuskiptin gangi mun hægar en vonast var til Íslendingur gekk berserksgang í Horsens Betra að skipta út gömlum seríum og ofhlaða ekki fjöltengin Tvö og hálft ár í fangelsi fyrir hraðbankaþjófnað og Hamraborgarmálið Vilja bæta tónleikaaðstöðu í borginni Maðurinn sem fannst látinn var um fertugt Kveður Sjálfstæðisflokkinn og hyggur á framboð fyrir Miðflokkinn Kalla eftir hugmyndum fyrir 1100 ára afmæli Alþingis Nýju systurverki Friðarsúlunnar verði komið upp í Viðey Skortir upplýsingar um móðurmál og íslenskukunnáttu leikskólastarfsfólks Tilnefndu mann ársins 2025 Þjóðkirkjan kynnir nýtt merki og vefsíðu Sjá meira
Upphlaup vegna afarkosta Haralds skerpa línur í Sjálfstæðisflokknum Áhugamenn um stjórnmál og þar með innyfli Sjálfstæðisflokksins hafa komist í feitt í upphlaupinu í tengslum við afarkosti Haraldar Benediktssonar vegna komandi prófkjörs í Norðvesturkjördæmi. 16. júní 2021 16:45
Guðlaugur í sigurvímu á kosningavöku: „Þeir töpuðu!“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á laugardagskvöld. Hann fagnaði árangrinum ásamt stuðningsmönnum fram á rauða nótt og í sigurræðu sinni sem horfa má á hér á Vísi lét hann stór orð falla um ástand mála í Sjálfstæðisflokknum. 7. júní 2021 13:33
Segir missi að Brynjari og vill að hann endurskoði ákvörðun sína Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær, vonast til að þingmaðurinn Brynjar Níelsson endurhugsi stöðu sína og taki þriðja sæti á öðrum lista flokksins í Reykjavík. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. 6. júní 2021 23:27
Fagnar góðu gengi kvenna í prófkjörum flokksins Formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna fagnar góðum árangri kvenna í prófkjörum flokksins fyrir komandi kosningar. Kynjahlutföll oddvitanna í kjördæmunum sex eru jöfn og útlit er fyrir að sjö konur muni taka sæti á Alþingi fyrir flokkinn á næsta kjörtímabili, haldi flokkurinn fylgi sínu. 20. júní 2021 13:17