Innlent

Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn herjaði meðal annars á verslanir Bónuss.
Maðurinn herjaði meðal annars á verslanir Bónuss. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar eftir að hafa játað 89 þjófnaðarbrot. Hann stal vörum úr verslunum fyrir um 3,5 milljónir króna.

Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp í síðustu viku, segir að maðurinn hafi játað sök í 89 ákæruliðum en neitað sök í þeim nítugasta. Ákæruvaldið hafi fallið frá þeim ákærulið og málið því dómtekið án frekari sönnunarfærslu.

Maðurinn hafi verið sakfelldur fyrir 88 þjófnaðarbrot og eina tilraun til slíks brots á tímabilinu desember 2024 til júlí 2026.

„Við ákvörðun refsingar verður litið til greiðrar játningar ákærða fyrir dómi. Á hinn bóginn verður að líta til þess að brotin eru fjölmörg og voru framin á löngu tímabili, sbr. síðari hluta 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá verður ekki fram hjá því litið að samanlagt verðmæti þeirra muna sem ákærði stal og þeirra muna sem hann gerði tilraun til að stela nemur rúmlega 3,5 milljónum króna. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði,“ segir í dóminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×