Haukar

„Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“
„Þetta er bara algjör þvæla. En fyrst að menn vilja fara þessa leið þá getum við haldið áfram að eyða tíma í þessa vitleysu,“ segir Andri Már Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, eftir að félaginu var dæmt 10-0 tap gegn ÍBV.

Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram
ÍBV hefur verið dæmdur 10-0 sigur í leiknum gegn Haukum fyrir rúmri viku, í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta.

Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ
Haukar unnu góðan og nokkuð óvæntan sigur í Mosfellsbæ þegar þeir sóttu Aftureldingu heim í Olís-deild karla í handbolta.

Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“
„Ég býst bara við að þessu verði vísað frá, þar sem þetta er algjörlega tilhæfulaust,“ segir Andri Már Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, um kæru ÍBV gegn félaginu eftir leik liðanna í Powerade-bikar karla.

ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“
Eyjamenn bíða nú eftir niðurstöðu Dómstóls HSÍ eftir að hafa kært Hauka fyrir að nota ólöglegan leikmann, í leik liðanna í Powerade-bikar karla í handbolta fyrir viku.

Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum
Valur bar sigurorð af Haukum, 29-33, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 11. umferð Olísdeildar karla í handbolta að Ásvöllum í kvöld. Valur er einu stigi frá toppliðum deildarinnar, FH og Aftureldingu, á meðan Haukar misstu aðeins af lestinni í toppbaráttunni með þessu tapi.

Uppgjörið: Grindavík - Haukar 68-85 | Gestirnir unnu vængbrotið lið Grindavíkur
Haukar unnu fjórtán stiga útisigur gegn Grindavík 68-85. Það vantaði lykilmenn í lið Grindavíkur sem gerði gestunum töluvert auðveldara fyrir. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Vonandi hefur fólk horft á eitthvað annað“
Haukar unnu sannfærandi fjórtán stiga útisigur gegn Grindavík 68-85. Þrátt fyrir sigur var Emil Barja, þjálfari Hauka, ekki sáttur með frammistöðu liðsins.

Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu
Íslands- og bikarmeistarar Vals mæta spænska liðinu Málaga Costa del Sol í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar í handbolta kvenna. Haukakonur mæta hins vegar Galychanka Lviv frá Úkraínu.

Haukar áfram eftir spennuleik
Haukar eru komnir áfram í næstu umferð EHF-bikars kvenna í handknattleik eftir eins marks sigur á króatíska liðinu Dalmatinka í dag.

Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum
Haukar eru komnir í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins í handknattleik eftir öruggan sigur á ÍBV á heimavelli. Þá eru ÍR-ingar sömuleiðis komnir áfram eftir sigur á Akureyri.

Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu
Kvennalið Hauka í handknattleik vann í dag eins marks sigur á króatíska liðinu Dalmatinka þegar liðin mættust í fyrri leik einvígis síns í EHF-bikarnum.

Frábær endurkomusigur hjá toppliðinu
Topplið Hauka vann góðan endurkomusigur á Þór frá Akureyri þegar liðin mættust í Bónus-deild kvenna í dag.

Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum
Keflvíkingar unnu í kvöld annan leikinn í röð eftir þeir ráku bandarískan leikmann liðsins. Keflavíkurliðið átti í litlum vandræðum með Haukana á heimavelli í kvöld, unnu 32 stiga sigur, 117-85, og Haukarnir hafa þar með tapað öllum leikjum sínum i deildinni í vetur.

Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu
Haukar voru í miklum ham gegn Gróttu í kvöld en lokatölur voru 25-42 fyrir Hafnarfjarðarliðinu.

Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram
Fram sigraði Hauka örugglega með átta mörkum í 9. umferð Olís-deildar kvenna á Ásvöllum í kvöld. Liðin voru jöfn að stigum í 2. og 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn og mátti búast við spennandi leik. Framarar áttu þó ekki í vandræðum með Hafnfirðinga í kvöld og endaði leikurinn 28-20.

Haukar sóttu sigur á Suðurlandið
Haukar unnu góðan þriggja marka sigur þegar liðið sótti Selfoss heim í Olís-deild kvenna.

Álftanes sá til þess að Haukar eru enn án sigurs
Álftanes lagði Hauka í Ólafssal þegar liðin mættust í Bónus-deild karla í kvöld. Lokatölur 86-91 sem þýðir að Haukar hafa ekki enn unnið leik.

Fimmti sigur Hauka kom í Eyjum
Haukakonur komust upp að hlið Fram í 2.-3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta í dag með sex marka sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, 26-20, í lokaleik 7. umferðar deildarinnar.

Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri
Þór Þorlákshöfn lagði Hauka að velli 82-81 þegar liðin leiddu saman hesta sína í fimmtu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í Icelandic Glacial-höllinni í kvöld. Þór Þorlákshöfn komst upp að hlið Njarðvík og Tindastóli með þessum sigri en Haukar eru ásamt ÍR án sigurs á botni deildarinnar.

Tinna: Rifum okkur í gang eftir fyrsta
Tinna Guðrún Alexandersdóttir, leikmaður Hauka, var ein af ástæðum þess að leikur Vals og Hauka í Bónus deild kvenna í körfuknattleik varð ekki spennandi nema í fyrsta leikhluta. Leikurinn endaði 69-84 fyrir Hauka sem eru einar á toppi deildarinnar.

Uppgjör og viðtöl: Valur - Haukar 69-84 | Mjög sannnfærandi sigur Hauka á Hlíðarenda
Haukar unnu sannfærandi sigur á Valskonum í Bónus deild kvenna fyrr í kvöld. Varnarleikur gestanna kæfðu nánast allar sóknaraðgerðir heimakvenna sem töpuðu alltaf meiri og meiri vilja eftir því sem leið á leikinn. Lokatölur 69-84 og Haukar verða einar á toppnum í landsleikjahléinu.

Haukar mæta liði í 5.000 kílómetra fjarlægð: „Rándýrt og erfitt“
Gjaldkeri handknattleiksdeildar Hauka, nú eða bara leikmenn sjálfir og þjálfarar, hafa eflaust ekki hoppað hæð sína af gleði þegar dregið var í 3. umferð EHF-keppni karla í dag.

Haukar unnu Hanana öðru sinni og eru komnir áfram
Strákarnir hans Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar í Haukum eru komnir áfram í 3. umferð EHF-bikarsins í handbolta eftir sigur á Cocks í Finnlandi í dag, 27-29. Haukar unnu einvígið, 64-53.

„Þurfum að stimpla okkur inn í þetta mót og vera með“
Haukar töpuðu gegn Stjörnunni 87-114. Maté Dalmay, þjálfari Hauka, var svekktur eftir fjórða tap liðsins í röð en heldur enn í vonina um að liðið geti farið að vinna leiki.

Uppgjörið: Haukar - Stjarnan 87-114 | Sigurganga Stjörnunnar heldur áfram
Stjarnan var í engum vandræðum með Hauka og gestirnir unnu sannfærandi 27 stiga sigur 87-114. Stjörnumenn fóru á kostum síðustu fimm mínúturnar í fyrri hálfleik og Haukar sáu aldrei til sólar eftir það.

Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 57-79 | Botnlið Njarðvíkur vann topplið Hauka
Taplausir Haukar tóku á móti Njarðvík í Ólafssal í Bónus-deild kvenna í kvöld en Njarðvíkingar höfðu aðeins landað einum sigri í þremur leikjum fyrir leik kvöldsins.

Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands
Haukar fóru með afar sannfærandi 35-26 sigur af hólmi þegar liðið fékk finnska liðið Riihimäki Cocks í heimsókn á Ásvelli í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópubikarsins í handbolta karla í kvöld.

Fyrirliði Hauka sleit krossband
Haukakonur eru á toppnum í Bónus deild kvenna í körfubolta með þrjá sigra í fyrstu þremur leikjum sínum en liðið varð engu að síður fyrir áfalli í síðasta leik.

Uppgjörið: Tindastóll - Haukar 106-78 | Haukar áfram fallbyssufóður
Það var Tindastóll sem sigraði Hauka í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld en úrslit leiksins voru 106-78. Haukar hafa þar með ekki reynst nein fyrirstaða í fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu, eftir töp gegn Hetti og Grindavík einnig.