
Keflavík ÍF

Keflvíkingur með í „uppgjöri áratugarins“
Marek Dolezaj, leikmaður Keflavíkur í Bónus-deildinni í körfubolta, hefur verið valinn í landslið Slóvakíu fyrir komandi leiki við Spánverja í undankeppni EM.

„Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“
Keflavík tók á móti Haukum í Blue höllinni í kvöld þegar sjöunda umferð Bónus deildar karla hóf göngu sína. Það voru heimamenn í Keflavík sem höfðu betur með miklum yfirburðum 117-85.

Uppgjörið: Keflavík-Haukar 117-85 | Létt hjá Kanalausum Keflvíkingum
Keflvíkingar unnu í kvöld annan leikinn í röð eftir þeir ráku bandarískan leikmann liðsins. Keflavíkurliðið átti í litlum vandræðum með Haukana á heimavelli í kvöld, unnu 32 stiga sigur, 117-85, og Haukarnir hafa þar með tapað öllum leikjum sínum i deildinni í vetur.

Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Bandaríkjamanninn Ty-Shon Alexander. Þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Pétur leitar að nýjum Bandaríkjamanni: „Fjölhæfari leikmann, einhvern sem getur leyst margar stöður“
Keflavík spilaði eingöngu á Schengen-samþykktum leikmönnum í sigri sínum gegn ÍR. 79-91 varð niðurstaðan í Skógarselinu. Þjálfarinn Pétur Ingvarsson var nokkuð sáttur eftir leik þrátt fyrir að hafa orðið aðeins hræddur undir lokin. Hann leitur nú að nýjum bandarískum leikmanni og vill finna einhvern fjölhæfari en Remy Martin og Wendell Green.

Uppgjörið: ÍR - Keflavík 79-91 | Kanalausir Keflvíkingar sáu til þess að ÍR fagnaði ekki fyrsta sigrinum
Keflvíkingar sækja ÍR-inga heim í Bónus-deild karla í körfubolta, í fyrsta leik sínum eftir að Wendell Green var rekinn frá Keflavík.

Tommi með Nablann í bandi í Keflavík
Andri Már Eggertsson, Nablinn, og Tómas Steindórsson skelltu sér í menningar- og skemmtiferð til Keflavíkur vegna leiks Keflvíkinga og KR-inga í Bónus deild karla. Afraksturinn var sýndur í Körfuboltakvöldi Extra.

„Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“
Ein besta körfuboltakonan landsins hefur sett hring utan um leik í bikarkeppninni í dagatalið. Sara Rún stefnir á endurkomu gegn Njarðvík í desember.

Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt
Pavel Ermolinskij vill sjá hugarfarsbreytingu hjá Keflvíkingum þegar kemur að varnarleik. Hann elskar hugarfarið sóknarlega en sama hegðun gangi einfaldlega ekki upp varnarlega.

Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna
Bandaríski körfuboltamaðurinn Wendell Green hefur spilað sinn síðasta leik með Keflavík í Bonus deild karla í körfubolta en félagið hefur ákveðið að láta hann fara eins og kom fram á Vísi í morgun.

Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja
Magnús Sverrir Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, segir það hafa verið erfiða ákvörðun að láta Bandaríkjamanninn Wendell Green fara frá félaginu. Vandræði utan vallar hafi haft sitt að segja auk vonbrigða innan vallar.

Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta, hafnar því alfarið að hann hafi verið að elta eða áreita Alexis Morris, leikmann Grindavíkur, í Smáranum á þriðjudag eins og Morris hefur sjálf haldið fram.

Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“
Körfuboltakonan Alexis Morris segist aldrei hafa lent í því áður að þjálfari vanvirði hana með blótsyrðum, eins og Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Keflavíkur gerði við lok leiks í Bónus-deildinni á þriðjudag. Hún kveðst hafa verið óörugg þegar Friðrik hafi elt hana inn í sal eftir leik.

Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur
Keflavík tók á móti KR í Blue höllinni í kvöld í lokaleik fimmtu umferðar Bónus deild karla. Eftir örlitla eyðimerkurgöngu var það Keflavík sem komst aftur á sigurbraut með sex stiga sigri, 94-88.

„Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“
Keflavík tók á móti KR í 5. umferð Bónus deild karla í Blue höllinni í kvöld. Keflavík hafði fyrir leikinn í kvöld tapað þremur leikjum í röð en komust aftur á sigurbraut í kvöld með sex stiga sigri, 94-88.

Stuðaði Keflavík og Friðrik kallaði „fuck off“
Það var hiti í fólki eftir dramatískan endi á leik Grindavíkur og Keflavíkur í Bónus-deild kvenna í körfubolta, og þjálfari Keflvíkinga kallaði „fuck off!“ að leikmanni Grindavíkur.

Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 68-67 | Háspenna í Smáranum þegar Grindavík vann Keflavík
Grindavík vann frábæran sigur á Keflavík háspennuleik í Smáranum í kvöld í Bónus deild kvenna. Munurinn ekki nema eitt stig og réðst á lokasekúndunum. Lokastaðan 68-67 og Grindavík jafnaði Keflavík að stigum í deildinni.

Pirraðir á excel skiptingum Péturs
Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds ræddu um það sem þeir kalla excel skiptingar Péturs Ingvarssonar, þjálfara Keflavíkur, í þætti föstudagsins.

„Sá bara metnaðarlausa menn sem voru allir með hendur niðri“
Varnarleikur Keflavíkur, eða skortur á honum, var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Sævari Sævarssyni finnst vanta vilja í leikmenn Keflavíkur.

„Þegar þjálfarinn er í besta forminu þá er það ekki nógu gott“
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, þurfti að sætta sig við fjórða tapið í fimm leikjum í kvöld þegar lið hans steinlá gegn Vali, 104-80.

Uppgjörið: Valur - Keflavík 104-80 | Valsmenn miklu sterkari í lokin
Íslandsmeistarar Vals unnu á endanum sannfærandi 24 stiga sigur á bikarmeisturum Keflavíkur, 104-80, í stórleik kvöldsins í Bónus-deild karla í körfubolta.

Keflavíkurkonur hefndu fyrir Meistarakeppnina
Keflavíkurkonur eru að komast í gang eftir basl í byrjun tímabilsins og þær fögnuðu sínum þriðja sigri í röð í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Segja loforð svikin á meðan karfan fær stærsta íþróttahús landsins
Stjórn Fimleikadeildar Keflavíkur segir að upp sé komin óásættanleg staða fyrir fimleikadeildina en þetta kemur fram í pistli frá stjórninni sem birtist hér inn á Vísi.

„Getur skorað en þetta er enginn Remy Martin“
Wendell Green fékk tækifæri til að tryggja Keflavík sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík í stórleiknum í Bónus deild karla í körfubolta í gærkvöldi en klikkaði úr mjög góðu skotfæri. Bónus Körfuboltakvöld ræddi frammistöðu Green.

„Stóðum upp sterkari og svöruðum með sigri“
Njarðvík heimsótti nágranna sína í Keflavík í lokaleik 3. umferðar Bónus deildar karla í Blue höllinni í kvöld. Eftir erfitt kvöld framan af voru það Njarðvíkingar sem reyndust sterkari á loka kaflanum og sóttu gríðarlega sterkan 88-89 sigur.

Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 88-89 | Háspenna í grannaslagnum
Njarðvík sýndi andlegan styrk í fjórða leikhluta og tókst að landa sigri í háspennuleik gegn Keflavík, í lokaleik þriðju umferðar Bónus-deildar karla í körfubolta.

Pavel um bestu liðin í deildinni: Ég sé tækifæri fyrir KR
Pavel Ermolinskij og Helgi Már Magnússon fóru vel yfir málin í síðasta þætti af Bónus Körfuboltakvöldi karla og það var margt tekið fyrir í framlengingunni.

„Gerðum okkur stundum lífið erfiðara en það þurfti að vera“
Keflavík heimsótti Val í N1-höllinni þegar 3. umferð Bónus deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Í miklum baráttuleik var það Keflavík sem hafði að lokum betur 73-79.

Uppgjörið: Valur - Keflavík 73-79 | Meistararnir unnu í spennutrylli á Hlíðarenda
Valur tók á móti Íslands-og bikarmeisturum Keflavík í N1 höllinni þegar 3. umferð Bónus deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Í miklum baráttuleik var það Keflavík sem hafði að lokum betur 73-79.

Vörn Keflavíkur gerir Pavel brjálaðan: „Konan mín þurfti að halda mér niðri“
Pavel Ermolinskij hrífst af liði Keflavíkur í Bónus deild karla. Keflvíkingar geta þó líka gert hann gráhærðan með tilburðum sínum í vörninni. Pavel ræddi um Keflavík í Bónus Körfuboltakvöldi.