Keflavík ÍF

Tekst Fram eða Keflavík að komast upp í efri hlutann?
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni í Bestu deild karla í fótbolta fer fram í dag. Eftir umferð dagsins verður deildinni skipt upp og leikið um Íslandsmeistaratitilinn annars vegar og hvaða lið falla hins vegar. Töluverð spenna er fyrir umferðinni sem verður flautuð á klukkan 14.00.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur 2-3 Keflavík | Keflvíkingar sóttu þrjú dýrmæt stig í Laugardalinn
Keflavík vann sterkan sigur á Þrótti Reykjavík í Bestu deild kvenna í kvöld. Lokatölur 2-3 gestunum í vil og fer það langt með að tryggja sæti Keflvíkinga í deildinni. Á sama tíma varð Þróttur af dýrmætum stigum í baráttunni um Evrópusæti.

„Það er enginn að verja Ingvar“
Sérfræðingarnir í Stúkunni á Stöð 2 Sport voru allir sammála um það að löglegt mark hefði verið tekið af Keflvíkingum í gær þegar liðið tapaði gegn Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta.

„Mér fannst fullkomlega löglegt mark tekið af okkur“
Keflavík tapaði gegn Víkingi Reykjavík 0-3. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflvíkinga, var afar óánægður með dómara leiksins sem tók mark af Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Víkingur R. 0-3 | Góður fyrri hálfleikur dugði gegn orkulausum Keflvíkingum
Víkingur fylgdi 9-0 sigrinum eftir með nokkuð sannfærandi sigri á Keflavík 0-3. Öll mörk Víkings komu í fyrri hálfleik. Þetta var ekki sama flugeldasýningin og í síðasta leik en Íslandsmeistararnir kláruðu verkefnið fagmannlega. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtal: Stjarnan-Keflavík 0-2 | Keflvíkingar sterkari í Garðabænum
Keflavík vann flottan 0-2 sigur á Stjörnunni í tuttugustu umferð Bestu deildarinnar í kvöld í leik sem bæði liðin þurftu að vinna. Sigurinn setur mikla pressu á Stjörnuna og KR sem sitja enn sem komið er í efri hluta deildarinnar. Frans Elvarsson og Joey Gibbs skoruðu mörkin fyrir gestina sem voru einfaldlega sterkari aðilinn í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-ÍA 0-1 | Mark Olivers í lokin tryggði Skagamönnum annan sigurinn í röð
Oliver Stefánsson var hetja Skagamanna þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Keflavík suður með sjó í dag. Þetta er annar sigur ÍA í röð sem fara úr neðsta sæti deildarinnar með sigrinum.

Oliver: Yndislegt að gefa til baka
„Þetta var geggjað, fyrsta markið fyrir klúbbinn og merkileg stund fyrir mig,“ sagði Oliver Stefánsson leikmaður ÍA eftir 1-0 sigur á Keflavík í Bestu deildinni í dag. Oliver skoraði eina mark leiksins á 89.mínútu leiksins.

„Mér fannst þetta leiðinlegur og lélegur leikur“
Keflavík tapaði 0-2 gegn Selfossi í 14. umferð Bestu deildar-kvenna. Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, var hundfúll eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Selfoss 0-2| Annar sigur Selfyssinga í röð
Selfoss fór á HS Orku-völlinn í Keflavík og vann 0-2 sigur á Keflvíkingum. Brenna Lovera kom Selfossi yfir á þriðju mínútu. Íris Una Þórðardóttir bætti síðan við öðru marki í seinni hálfleik sem innsiglaði sigur gestanna.Þetta var annar sigur Selfyssinga í röð og Keflavík sogast nær fallsvæðinu eftir tap kvöldsins.

Fá króatískan ÍR-ing og Búlgara
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tilkynnti í dag um liðsstyrk fyrir bæði karla- og kvennalið félagsins sem leika í Subway-deildunum í vetur.

Sjáðu mörkin: Langþráður sigur FH, aukaspyrna Tryggva Hrafns og markaveisla í Breiðholti
Fjórtán mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. FH vann þar sinn fyrsta deildarsigur eftir þjálfaraskipti í júní, sjö mörk voru skoruð í Breiðholti og fjögurra marka jafntefli var í Víkinni.

Blóðgaði Ólaf en telur „margar ástæður“ fyrir rauða spjaldinu
Kian Williams, leikmaður Keflavíkur, var enn harður á því eftir leikinn við FH í Bestu deildinni í gærkvöld að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald. Hann gaf í skyn að dómari leiksins hefði haft fleiri ástæður til að lyfta rauða spjaldinu en aðeins þá að fara eftir reglum.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: FH-Keflavík 3-0| Endurreisn FH hófst á sigri
Fyrir leikinn blésu FH-ingar í herlúðra. Boðið var meðal annars frítt á völlinn og var þetta leikurinn sem FH átti að snúa blaðinu við. Keflavík missti mann af velli á 6. mínútu. Einum fleiri skoruðu FH-ingar tvö mörk í fyrri hálfleik.Úlfur Ágúst Björnsson gerði þriðja mark FH í síðari hálfleik og gulltryggði fyrsta sigur Eiðs Smára í Bestu deildinni.

Hótar að fylla liðsstjórn af vinum sínum til að hjóla í dómarana
Alexander Aron Davorsson, þjálfari Aftureldingar var allt annað en sáttur við vítaspyrnu sem Keflavík fékk í 2-3 sigri liðsins í Mosfellsbæ í Bestu-deild kvenna í gær.

Sjáðu markaflóð Þróttara, fyrstu mörk Selfyssinga í langan tíma og endurkomu Keflavíkur
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær þar sem alls voru 13 mörk. Þróttur Reykjavík vann ÍBV 5-1, Selfoss vann 2-0 sigur á Þór/KA og Keflavík kom til baka og vann Aftureldingu 3-2 í Mosfellsbæ.

Umfjöllun og viðtal: Afturelding-Keflavík 2-3 | Keflvíkingar lyftu sér frá fallsvæðinu
Keflvíkingar unnu gríðarlega mikilvægan 2-3 útisigur í sannkölluðum sex stiga leik er liðið heimsótti Aftureldingu í bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Alexander Aron: Þetta er bara hundleiðinlegt og ég er brjálaður yfir þessu
Afturelding tapaði í kvöld 2-3 gegn Keflavík í Bestu deild kvenna í Mosfellsbæ. Alexander Aron, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með leik síns liðs en þó ósáttur með margt annað.

Umfjöllun: Keflavík-KR 0-0 | Bæði lið ósátt með jafntefli
Það var virkilega fallegt veður í Keflavík í kvöld þegar að heimamenn fengu KR í heimsókn á Nettóvöllinn. Sól og heiðsýrt en kólnaði talsvert þergar að líða tók á leikinn. Bæði liðin í hatramri baráttu um efstu sex sætin í Bestu deildinni. Fyrir leikinn var KR í sjötta sæti með 24 stig en Keflavík í því sjöunda með 21 og ljóst að bæði liðin myndu selja sig dýrt. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir skemmtilega takta og mörg færi lauk leiknum með markalausu jafntefli, 0-0.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 0-5 | Einstefna í Keflavík
Valur vann 0-5 stórsigur á Keflavík í vægast sagt krefjandi aðstæðum suður með sjó. Leikurinn var einstefna að marki Keflavíkur frá upphafi til enda.

Sjáðu vítaklúðrið, Skagamanninn klára Skagamenn og gjöf Leiknis í lokin
Sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og bættust þar sex mörk fyrir þau tuttugu sem voru skoruð í gær.

„Við erum öflugir í lok leikja“
„Mér líður rosa vel. Þetta eru bestu sigrarnir, að vinna með einu marki í restina. Ég held að þetta sé níunda markið sem við skorum í sumar á síðasta korterinu þannig við erum öflugir í lok leikja,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflvíkinga, sáttur eftir 2-1 sigur á Leikni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir-Keflavík 1-2 | Frans tryggði Keflavík sigur á síðustu stundu
Keflavík sótti þrjú stig þegar liðið mætti Leikni Reykjavík í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Domusnova-vellinum í Breiðholti í kvöld. Sigurmark Keflavíkur kom eftir klaufagang í vörn Leiknis í uppbótartíma leiksins.

Öruggt hjá Blikakonum sem halda í við Val
Breiðablik vann sinn sjötta sigur í röð í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld er Keflavík var í heimsókn í Kópavogi.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Keflavík 2-2 | Stigunum deilt í gleðinni á Þjóðhátíð
ÍBV hafði unnið síðustu tvo leiki áður en þeir fengu Keflavík í heimsókn á laugardegi á Þjóðhátíð. Leikurinn var mikil skemmtun og endaði með tvö-tvö jafntefli.

Fór út í atvinnumennsku en fékk aldrei leikheimild | Komin aftur heim í Keflavík
Marín Rún Guðmundsdóttir hefur samið við Keflavík á nýjan leik eftir stutt stopp hjá Hellas Verona á Ítalíu.

Sjáðu dramatískan sigur KA í Keflavík og rauða spjaldið í Kaplakrika
Tveir leikir voru á dagskrá í Bestu-deild karla í knattspyrnu í gær þegar Keflavík tók á móti KA annars vegar og topplið Breiðabliks heimsótti FH-inga.

Umfjöllun: Keflavík - KA 1-3 | KA-menn komu til baka gegn Keflavík
Keflvíkingar tóku á móti KA-mönnum suður með sjó þar sem að tvö mörk KA í uppbótartíma skiluðu þeim þremur stigum. KA-menn unnu 3-1 en Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, fékk rautt spjald eftir rúmlega tíu mínútna leik og spiluðu Keflvíkingar því bróðurpart leiksins manni færri.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Breiðablik 2-3 | Blikar tryggðu enn einn sigurinn á síðustu stundu
Breiðablik vann frækinn sigur í Keflavík í kvöld í Bestu deildinni. Eftir að hafa lent undir í leiknum þá skoraði Höskuldur Gunnlaugsson sigurmarkið úr umdeildri vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok.

Sjáðu fagnaðarlæti Keflvíkinga inn í klefa á Hlíðarenda
Keflavík vann óvæntan 0-3 útisigur á Valsmönnum á Hlíðarenda í Bestu-deild karla á mánudagskvöld. Patrik Johannesen, Adam Ægir Pálsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson skoruðu mörk Keflavíkur.