

Breiðablik náði í öll stigin sem í boði voru fyrr í dag í Vestmannaeyjum í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn var jafn en það voru gæði í sóknarmönnum Blika sem gerðu útslagið. Birta Georgsdóttir gerði tvö mörk og Katrín Ásbjörnsdóttir eitt til að innsigla sigurinn undir lok leiks en staðan var 0-2 í hálfleik.. Eyjakonur geta verið svekktar að hafa ekki náð að skora því tækifærin komu til þeirra.
Sérfræðingarnir í Stúkunni rýndu í uppákomuna í Kaplakrika um helgina þegar Kjartan Henry Finnbogason skallaði til Damirs Muminovic sem féll í jörðina, í leik FH og Breiðabliks í Bestu deildinni. Báðir fengu gult spjald.
Víkingar verða með fimm stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta næstu ellefu daga eftir öruggan sigur gegn Fram í gærkvöld. Öll mörkin úr 11. umferð má nú sjá hér á Vísi.
FH og Breiðablik skildu jöfn, 2-2, þegar liðin leiddu saman hesta sína í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í dag. Blikar eru eftir þennan leik í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig og eru fjórum stigum á eftir toppliðinu, Víkingi. FH er svo í því fjórða með 18 stig en Valur er sæti ofar með 23 stig.
FH og Breiðablik eigast við í stórleik 11. umferðar Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
FH og Breiðablik eigast við í stórleik 11. umferðar Bestu deildarinnar í dag. Liðin mættust síðastliðin mánudag í Mjólkurbikarnum og þá hafði Breiðablik betur 3-1.
„Breiðablik hefur oft fundið einhvern neista og viljað spila svona leiki. Þegar maður horfði á liðið í dag var svolítið eins og þær séu að koðna. Hvað sem veldur því. Þær voru ósáttar með að vera ekki spáð topp sæti. Sýndu það þá, þú ert á heimavelli. Við hvað ertu hræddur?“ segir Helena Ólafssdóttir, þáttastjórnandi Bestu markanna.
Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna á Stöð 2 Sport, gagnrýndi Stjörnufólk fyrir að mæta ekki betur á stórleikinn við Breiðablik á Kópavogsvelli í gærkvöld.
Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson segist sjálfur ekki hafa tekið sérstaklega inn á sig reiðina sem beindist að honum eftir lætin í lok leiks Breiðabliks og Víkings í Bestu deildinni í fótbolta á föstudaginn. Eiginkona hans var þó ekki hrifin af ummælum Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, og þau fóru vissulega í taugarnar á Ívari sjálfum.
Breiðablik og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í stórleik 7. umferðar Bestu deildar kvenna í gær. Fagn leikmanns Blika eftir jöfnunarmark liðsins hefur vakið talsverða athygli.
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, segir að jafntefli hafi líklega verið sanngjörn úrslit í leiknum gegn Stjörnunni í Bestu deild kvenna í kvöld. Stjörnukonur komust yfir á 60. mínútu en Blikar jöfnuðu tíu mínútum síðar.
Andrea Mist Pálsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, segist hafa óhlýðnast fyrirmælum þegar hún skoraði mark liðsins í jafnteflinu við Breiðablik, 1-1, í Bestu deild kvenna í kvöld. Andrea skoraði beint úr hornspyrnu á 60. mínútu og kom Garðbæingum yfir.
Breiðablik og Stjarnan skildu jöfn, 1-1, í stórleik 7. umferðar Bestu deildar kvenna í kvöld.
Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks í Bestu deild kvenna segir stíganda í liði Blika og að nú sé tækifæri til þess að bera sigur úr býtum gegn liði sem hafi verið þeim erfiðar undanfarin ár, Stjörnunni. Liðin mætast í sannkölluðum stórleik á Kópavogsvelli í kvöld.
Víkingarnir Logi Tómasson og Sölvi Geir Ottesen voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann vegna hegðunar sinnar eftir hitaleikinn gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í fótbolta á föstudagskvöld.
Sædís Rún Heiðarsdóttir úr Stjörnunni og Hafrún Rakel Halldórsdóttir úr Breiðabliki settust niður með Helenu Ólafsdóttur til að hita upp fyrir 7. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta. Helena nýtti tækifærið til að kynnast þeim betur og komst að því hversu ung Sædís var þegar hún neyddist til að flytja í Garðabæ til að geta spilað fótbolta.
Breiðablik vann í kvöld torsóttan 3-1 sigur á FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Liðið er því komið í undanúrslit og stefnir á bikarinn. Gísli Eyjólfsson, leikmaður Blika, var sáttur með sigurinn að lokum. Gísli sat á bekknum í fyrri hálfleik en kom inná í hálfleik.
Breiðablik er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á FH. Staðan var jöfn þegar venjulegur leiktími var að renna sitt skeið en Blikar kláruðu dæmið í blálok leiksins.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur í fótbolta, sér ekki eftir ummælum sínum í hitaviðtali sem hann fór í á Stöð 2 Sport strax eftir baráttuleik gegn Breiðabliki á dögunum þar sem að sauð upp úr.
Mikill hiti var í toppslag Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Slagsmál hófust við lok leiks, rautt spjald fór á loft og þjálfarar voru harðorðir í viðtölum. Þá skarst í odda milli stuðningsmanna liðanna. Móðir átta ára drengs veltir fyrir sér hvort slíkur fótboltaleikur sé æskilegur fyrir drenginn til að mæta á.
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í hádeginu. Þar ræddi hann meðal annars hamaganginn eftir leik Breiðabliks og Víkings í gær.
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks verður gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í hádeginu og ræðir þar hitaleik Breiðabliks og Víkinga í Bestu deild karla í gærkvöldi.
Breiðablik og Víkingur gerðu dramatískt jafntefli á Kópavogsvelli í Bestu deild karla í gær. Það sauð upp úr á hliðarlínunni eftir að lokaflautan gall.
„Við vorum með yfirburði allan leikinn en gáfum þeim tvö mörk í fyrri hálfleik. Á endanum gerum við jafntefli en hefðum átt að vinna þennan leik stærra,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-2 jafntefli í stórleik Bestu deildar karla.
„Maður er aðeins að koma niður eftir skemmtilegar lokamínútur,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í viðtali eftir leik Breiðabliks og Víkings í Bestu-deild karla í kvöld.
Það sauð allt upp úr í leikslok á leik Breiðabliks og Víkings í Bestu-deild karla í kvöld en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var verulega ósáttur með dómgæsluna í 2-2 jafntefli Breiðabliks og Víkings á Kópavogsvelli í kvöld.
Breiðablik og Víkingur skildu jöfn 2-2 í dramatískum leik á Kópavogsvelli í tíundu umferð Bestu deildar karla. Víkingar komust í tveggja marka forystu og virtust vera að vinna öruggan sigur. Blikar skoruðu hins vegar tvö mörk í uppbótartíma og fögnuðu jafnteflinu vel og innilega.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, segir sína menn klára í slaginn fyrir leik kvöldsins við Víking á Kópavogsvelli. Blikar geta minnkað forskot Víkings á toppi Bestu deildarinnar.
„Ég held það megi færa góð rök fyrir því að þetta sé einn af stórleikjum sumarsins. Það er mikil eftirvænting hjá öllum,“ segir Arnar Gunnlaugsson um leik hans manna í Víkingi við Breiðablik í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.