Bókaútgáfa

Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur
Allt að þrefaldur verðmunur er á bókum milli verslana samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Á þetta við jafnvel þótt umrædd bók sé ekki til sölu í lágvöruverslunum. Dýrastar eru bækurnar að jafnaði hjá Pennanum-Eymundsson og A4.

Óviðjafnanleg frásögn frá einstökum höfundi
Ófeigur Sigurðsson snýr aftur með nýja og heillandi skáldsögu sem ber heitið Skrípið. Um er að ræða óviðjafnanlega frásögn sem togar Kóvid-samfélagið og samtímann sundur og saman í vel súru gríni, skarpri gagnrýni og djúphugsaðri rómantískri sýn á mátt listarinnar í kaldranalegum og öfgakenndum heimi sem blygðast sín ekki í þeim hamförum sem hann hefur kallað yfir sig.

Yrsa reykspólar fram úr Geir
Vísir birtir annan bóksölulistann á þessari vertíð. Nú eru línur teknar að skýrast þó enn séu æsispennandi tímar framundan í bóksölunni.

Skáldskapur talaður lóðbeint út úr eigin hjarta
Steinunn Sigurðardóttir, einn fremsti rithöfundur og skáld landsins, segir frá skáldskaparferli sínum, sjálfri sér og störfum í sérlega fróðlegri og skemmtilegri bók þar sem flakkað er fram og aftur í tíma og rúmi. Bókin, sem ber heitið Skálds saga, er fyrst og fremst lýsing á ýmsum þáttum í lífi og starfi skáldsins, aðferðum og aðstöðu við skriftir, kveikjum og innblæstri, hindrunum og hvatningu, og veitir athyglisverða innsýn í sköpunarferlið og glímuna við orðin.

Einu sinni á ári eiga rithöfundar að umturnast í skemmtikrafta
Ragnheiður Jónsdóttir fékk Svartfugl verðlaun fyrir Blóðmjólk, sína fyrstu glæpasögu. Þetta var í fyrra og hún er mætt með sína aðra glæpasögu. Eða er þetta glæpasaga? Við erum lent í nokkrum skilgreiningarvanda.

„Hér hvílir sannleikurinn“
Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar um nýjustu bók Jóns Kalman á menningarvefnum Lestrarklefinn. Rebekka hefur þetta að segja um bókina:

Að ánetjast eldri konum
Rebekka Sif Stefánsdóttir skrifar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Hún fjallar hér um nýjustu bók Evu Rúnar Snorradóttur, Eldri konur.

Ein ákvörðun getur miklu breytt - ritdómur
Jana Hjörvar fjallar um nýjustu bók Kristínar Marju Baldursdóttur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Hún hefur þetta að segj um bókina:

„Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“
„Mér hefur verið hafnað sem rithöfundi, af stjórn listamannalauna, í 33 ár þrátt fyrir að hafa 9 sinnum hlotið bókmenntaverðlaun. Og notið vinsælda. Höfnunin er mér hvatning, enda er ég keppnismaður. Enginn brotsjór.“

Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum
Vísir birtir, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, fyrsta bóksölulista ársins. Hann endurspeglar að þessu sinni sölu íslenskra bóka í nóvember.

„Fullkomlega galin“ fjárhagsleg ákvörðun að vera rithöfundur á Íslandi
Umsækjendur um ritlaun hafa fengið svar frá stjórn listamannalauna um hvort þeir fái laun eða ekki en allur listinn verður birtur á fimmtudag. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir að það sé fullkomlega galin fjárhagsleg ákvörðun að gerast rithöfundur á Íslandi í núverandi kerfi. Á örmarkaði og með örtungu þurfi að fjárfesta betur í rithöfundum.

Dagur og Jónas Reynir fá ekki starfslaun
Menningarmálaráðuneytið mun ekki gefa út um formlega úthlutun listamannalauna 2025 fyrr en næstkomandi fimmtudag. En bréf hafa hins vegar verið send til umsækjenda – hvort þeir hafi fengið eða ekki.

Til að fá listamannalaun þarftu að vera í náðinni
Rithöfundurinn Halldór Armand Ásgeirsson er meðal þeirra sem fengu ekki krónu úthlutað í listamannalaun. Hann segir að ekki þyki fínt að kvarta og hann eigi auðvitað ekkert að vera að ræða þessi mál við Vísi. En gerir það samt.

Hefur smekk fyrir lélegum B-myndum, braski og sorpi
Friðsemd fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur hlýtur að teljast ein af uppgötvunum þessa árs. Bókin er sprúðlandi af frásagnargleði og lesandinn uppgötvar fljótlega að hann má ekki missa af einni einustu setningu. Hér dugar ekki að skima.

Síðasti Bókakonfektmolinn - Höfundar lesa í kvöld
Síðasta Bókakonfekt ársins fer fram í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð í kvöld. Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft. Bóksala á staðnum og höfundar lesa og árita bækur.

Ritdómur: ,,Þú hatar ekki að vera með píku, er það?“
Myndasagnahöfundurinn Maia Kobabe hefur skrifað um ferlið að koma út sem kynsegin manneskja. Sjöfn Asare, gagnrýnandi hjá Lestrarklefanum hefur þetta að segja um bókina.

Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar nú rétt í þessu. Arnaldur Indriðason, Jón Kalman Stefánsson, Gerður Kristný, Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Kristín Ómarsdóttir fara fyrir fríðum hópi en þau eru tilnefnd í flokki skáldverka.

Ritdómur Lestrarklefans: Eins konar dans
Moldin heit er önnur skáldsaga Birgittu Bjargar Guðmarsdóttur en fyrir hana hlaut hún Nýræktarstyrk árið 2024. Áður hefur hún gefið út skáldsöguna Skotheld. Díana Sjöfn Jóhannsdóttir fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn og segir þetta um bókina.

Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum
Gunnar Helgason fyllti Smáralindina af bókþyrstum gestum á dögunum þegar hann kynnti nýja bók til leiks og tróð upp með fríðu föruneyti.

Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga
Rebekka Sif Stefánsdóttir fjallar hér um nýjustu bók Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna. Umfjöllunina er að finna á menningarvefnum Lestrarklefinn.

Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld
Tíu höfundar lesa upp úr bókum sínum á Bókakonfekti Forlagsins í kvöld sem fram fer í Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39. Hægt er að fylgjast með upplestrinum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum
Úrval á bókum í verslunum Samkaupa (Nettó, Kjörbúðum og völdum Krambúðum utan höfuðborgarsvæðisins) verður meira en nokkru sinni fyrr í aðdraganda jóla.

52 ár á milli þeirra og þrjár bækur
Embla Bachmann er átján ára og gaf út sína fyrstu bók í fyrra, Stelpur stranglega bannaðar. Hún var í kjölfarið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, sú yngsta í sögunni til að hljóta tilnefningu. Bók númer tvö kom út fyrir nokkrum vikum og um svipað leyti kom út frumraun annars höfunds. Sá er 52 árum eldri en Embla og er engin önnur en amma hennar.

Bókadómur: Þörf bók um missi
Barnabókin Héraholan er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Bókin tekur á missi og sorg. Hér skrifar Díana Sjöfn Jóhannsdóttir um bókina.

Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart
Skáldsaga Margrétar S. Höskuldsdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Jana Hjörvar hefur þetta að segja um bók Margrétar.

Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona
Sunna Dís Másdóttir var að senda frá sér sína fyrstu bók, en samt ekki. Kul. Ekkert í þessari bók ber þess merki að um byrjendaverk sé að ræða. Þvert á móti ætlar blaðamaður Vísis að ganga svo langt að fullyrða að þessi bók sé uppgötvun ársins. Söguhetjan heitir Una sem er bæði viðkvæm og grjóthörð. Eins og Sunna. Er Una Sunna? Nei, auðvitað ekki. En samt…

Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld
Níu höfundar lesa upp úr bókum sínum á Bókakonfekti Forlagsins í kvöld sem fram fer í Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39. Hægt er að fylgjast með upplestrinum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki
Lestrarklefinn tekur nýútkomnar bækur til umfjöllunar og er nýjasta bók rithöfundarins Dags Hjartarsonar þar á meðal. Sjöfn Asare fjallar hér um bókina.

Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu
Birgitta Haukdal ásamt Ljónsa frá Þjóðleikhúsinu, Sylvíu systur sinni og Sögu Júlíu dóttur sinni, fylltu Smáralindina af gestum um helgina þegar þau tróðu þar upp með skemmtidagskrá og kynningu á nýjum bókum.

„Svona getur þetta reynst smásálarlegt hérna“
Prófessor Eiríkur Bergmann hefur sent frá sér bókina Óvæntur ferðafélagi en þar gengur hann nær sjálfum sér en hann hefur áður gert. Hann segir frá svæsnu einelti sem hann varð fyrir og óboðnum gesti, fyrirbæri sem heitir Severe Tinnitus Disorder og er ólæknandi suð í eyrum.