Amor svífur yfir Norðurlandi Lestrarklefinn 15. desember 2025 12:13 Ása Marin hefur haslað sér völl sem einn helsti ástarsögurithöfundur landsins. Nýjasta bók hennar er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Nýjasta bók Ásu Marinar er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Sæunn Gísladóttir hefur þetta að segja um bókina.
Stjörnurnar yfir Eyjafirði er ný bók eftir Ásu Marin sem hefur undanfarin ár haslað sér völl sem einn helsti ástarsögurithöfundur landsins. Á síðasta ári sendi hún frá sér ljúfu jólasöguna Hittu mig í Hellisgerðiog fetar svipaða slóð í ár með bók sem ætti að ylja lesendum yfir aðventuna. Sæunn Gísladóttir fjallar um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn Bókin fjallar um Valeríu sem er týnd í lífinu. Hún er 27 ára, býr enn í foreldrahúsum, flosnaði upp úr viðskitpafræðinámi, er einhleyp og vinnur við að gera brauðtertur án þess að hafa sérstakan áhuga fyrir því. Dag einn ákveður hún að nóg sé komið og sækir um vinnu við samfélagsmiðla fyrir Jólagarðinn í Eyjafirði. Vinnunni fylgir íbúð og því slær hún tvær flugur í einu höggi, flytur loks að heiman og fær nýtt tækifæri! Frá borgardjammi í sveitatjútt Vegferð Valeríu er ekki ósvipuð og annarra kvenna í rómans bókum, til dæmis er algengt stef í bókum Jenny Colgan að ungar konur sem búi í borg flytji á lítinn, afskekktan stað og finni sig þar. Hafnarfjarðarmærinn Valería segir skilið við vinkonur sínar og borgardjammið í Reykjavík að hausti til að taka við tímabundinni stöðu á Jólagarðinnum fram að áramótum. Henni finnst vinkonurnar hafa lítinn tíma fyrir sig og upplifir að hún sé að dragast aftur úr, þær hafa lokið námi, sumar komnar í alvarleg sambönd og eru að eltast við drauma sína. Valería hefur ekki verið í langtímasambandi síðan þau Atli hættu saman nokkrum árum áður og það bætir gráu ofan á svart að hann skuli eiga von á barni með Svönu, stelpunni sem hann hætti með Valeríu fyrir. Sjálfstraust Valeríu er lítið í upphafi bókar en hún sýnir um leið og hún mætir norður og er boðið í réttir að það er töggur í henni. Valería blómstrar í starfi sínu fyrir Jólagarðinn, bæði í að búa til efni en einnig við viðburðaskipulagningu. Ekki líður á löngu fyrr en hún stofnar hliðarverkefnið Einstök og fer að skipuleggja viðburði fyrir fólk í makaleit og í gegnum það ferli bankar ástinn upp á hjá henni sjálfri. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókmenntir Bókaútgáfa Jól Mest lesið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Foreldrar sofa meira en margir halda Áskorun Aðalsteinn Bergdal er látinn Menning Mikil sorg á Alþingi Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Sjá meira