Geðheilbrigði
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 30 ›
Vonar að löggan mæti á ráðstefnu um hugvíkkandi efni Skipuleggjandi fyrstu ráðstefnunnar um hugvíkkandi efni hér á landi vonar að lögreglan og dómsmálaráðherra mæti en enn sem komið er eru slík efni ólögleg hér. Margir þekktustu sérfræðingar í geiranum segi frá byltingarkenndum niðurstöðum rannsókna sinna á slíkum efnum. Innlent 1.1.2023 20:00
Aukið sjálfræði starfsfólks verður áberandi í áherslum vinnustaða 2023 „Ég tel að aukið sjálfræði starfsfólks um hvar það vinnur og hvenær það vinnur verði áberandi í áherslum vinnustaða árið 2023. Þessi þróun hófst í heimsfaraldrinum og mun halda áfram. Auk þess sé ég fyrir mér aukna áhersla á fjölbreytileika og vellíðan,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. Atvinnulíf 30.12.2022 07:01
Mikil ánægja með heimsókn Geðlestarinnar í Flóaskóla Geðlestin hefur nú lokið heimsóknum sínum í grunn- og framhaldsskóla landsins en alls voru 174 skólar heimsóttir. Tilgangur heimsóknanna var að kynna mikilvægi þess að leggja stund á geðrækt frá fæðingu og út allt lífið. Innlent 29.12.2022 21:04
Getum búið okkur til alls konar frí allt árið 2023 Atvinnulífið hefur áður fjallað um mikilvægi þess að kúpla sig frá vinnu þegar við erum í fríi. Í dag ætlum við hins vegar að rýna aðeins í mismunandi frí sem við getum sett okkur sem markmið að upplifa oftar frá og með árinu 2023. Sem lið í því að efla andlega vellíðan og heilsu. Atvinnulíf 29.12.2022 07:00
„Ég hef sjálfur upplifað það að eiga mjög lítið og líða illa“ „Lífið getur orðið betra ef maður gefur því tíma,“ segir Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull, sem tilnefndur er sem maður ársins 2022. Hann lýsir því að hafa liðið illa á sínum yngri árum og hugleitt sjálfsvíg. Hann er þakklátur fyrir tilnefninguna og segir líf sitt hafa umbreyst á síðustu árum. Lífið 27.12.2022 22:46
Forseti Íslands minnti á að það væri alltaf von Árleg vetrarsólstöðuganga Píeta-samtakanna var gengin frá Klettagörðum að Skarfavita í Reykjavík í gærkvöldi. Á dimmasta degi ársins er þeirra ástvina minnst sem féllu fyrir eigin hendi. Fjöldi fólks lagði leið sína í gönguna. Meðal þeirra forseti Íslands. Lífið 22.12.2022 15:17
Sorg og sorgarstuðningur Þegar við förum í fjallgöngu í fyrsta skipti er ekki hægt að ætlast til þess að við vitum við hverju við eigum að búast, hvað við eigum að taka með okkur, og hvernig við eigum að gera hlutina til að komast klakklaust á áfangastað. Skoðun 22.12.2022 11:31
Innbyggð streitustjórnun yfir jólin Þegar jólin nálgast fer streitustigið að hækka hjá mörgum landsmönnum, en þá er viðeigandi að kynna sér þær ótalmörgu aðferðir sem hægt er að nota til að hafa áhrif á streituviðbragðið. Það er magnað hvað við búum yfir miklum krafti og valkosti til þess að hafa áhrif á streituviðbragðið. Skoðun 21.12.2022 11:32
„Dagurinn verður ekki dimmari en í dag en á morgun fer að birta“ Í kvöld, 21. desember fer fram árleg Vetrarsólstöðuganga Píetasamtakanna. Aðstandendur og syrgjendur koma saman og minnast ástvina sinna sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Gangan er tákræn að því leiti að dimmasti dagur ársins er í dag en á morgun fer að birta til. Innlent 21.12.2022 11:22
Hleypur 200 kílómetra fyrir málefni sem stendur honum nærri Geðheilbrigðismál á Íslandi eru í ólestri samkvæmt hlauparanum og hnefaleikakappanum Davíð Rúnari Bjarnasyni, sem hefur beðið í tæp þrjú ár eftir viðtali hjá sálfræðingi. Hann hyggst hlaupa 200 kílómetra á rúmum sólarhring til að styrkja Píeta-samtökin. Sport 19.12.2022 19:35
Saman getum við spornað gegn félagslegri einangrun með náungakærleik og góðvild Vinaverkefni Rauða krossins er eitt af elstu verkefnunum hjá hreyfingunni hér á landi, en þetta verkefni hefur verið starfrækt í rúm 20 ár. Félagsleg einangrun er alvarlegt samfélagsmein og eitt af meginverkefnum vinaverkefnanna er að sporna gegn henni með því að veita félagsskap, nærveru og samveru, en góð félagsleg tengsl eru forsenda fyrir góðri heilsu og vellíðan einstaklinga. Skoðun 17.12.2022 08:00
Vilja tryggja brotaþolum sálfræðistuðning eftir skýrslutöku Dóms- og heilbrigðisráðherra ætla að vinna að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu. Einnig ætla þeir að auka samvinnu lögreglu og heilbrigðiskerfisins um þjónustu vegna kynferðisofbeldis. Innlent 14.12.2022 18:33
Fagnar því að hafa lokið meðferð eftir að hafa glímt við átröskun í rúmlega fimm ár Lenya Rún Taha Karim, lögfræðinemi og varaþingmaður Pírata, fagnaði mikilvægum áfanga í gær þegar hún útskrifaðist úr rúmlega átta vikna innlagnarmeðferð vegna átröskunar, eftir rúmlega fimm ára baráttu við sjúkdóminn. Lífið 14.12.2022 13:38
Opnar sig um þunglyndi: „Mátti ekki spyrjast út undir neinum kringumstæðum“ Oliver Kahn, framkvæmdastjóri Bayern München og fyrrum landsliðsmarkvörður Þýskalands, hefur opnað sig um þunglyndi sem hann hefur glímt við um hríð. Fótbolti 14.12.2022 09:00
Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ „Mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi búa í Danmörku. En maður veit aldrei hvert lífið leiðir mann. Því nú er ég hér og hefur aldrei liðið betur. Það sem maður vill fyrir alla er að öllum líði vel,“ segir Richard Scobie, sem ásamt eiginkonu sinni Kristínu Einarsdóttur Scobie rekur fyrirtækið Nordic Trailblazers á eyjunni Mön í Danmörku. Atvinnulíf 13.12.2022 07:26
„Á okkar ábyrgð að það fari ekki með verri geðheilsu heim“ „Umræðan um geðheilsu hefur breyst mikið á undanförnum árum. Ungt fólk hefur verið leiðandi í að opna umræðuna um geðheilbrigðismál og við sem eldri erum þurfum að taka þau til fyrirmyndar,“ segir Elín Helga Sveinbjörnsdóttir framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hvíta húsið. Fyrirtækið var að gefa út sérstaka geðheilsustefnu. Heilsa 12.12.2022 13:30
Hefur engu við yfirlýsinguna að bæta Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf hefur engu við yfirlýsingu, sem send var frá almannatengslafyrirtæki fyrir hönd félagsins, að bæta. Allt hafi komið fram í henni sem snýr að málinu. Kona sjómannsins segist ósátt með „ópersónulega“ yfirlýsingu. Innlent 12.12.2022 12:26
Hvenær leiddist þér síðast? Hvenær varst þú seinast á biðstofu og neyddist til að horfa út í loftið eða spjalla við einstaklinginn við hliðina á þér þar sem þú hafðir ekkert annað að gera? Skoðun 12.12.2022 10:31
„Af því að ég var ekki með hita þá voru þetta ekki veikindi“ Sjómaður sem berjast þurfti fyrir því að fá að fara í land þegar besta vinkona hans var myrt vonar að frásögn hans valdi viðhorfsbreytingu. Sjómenn eigi ekki að þurfa að harka öll áföll af sér. Innlent 11.12.2022 19:29
Fordómar gagnvart fólki með geðræn vandamál áfram talsverðir og útbreiddir Talsverðir fordómar eru hér á landi í garð einstaklinga með geðrænar áskoranir samkvæmt nýrri rannsókn. Dregið hefur úr fordómum gagnvart fólki með einkenni þunglyndis en fordómar gagnvart fólki með geðklofaeinkenni breytast hægar og síður. Stór hluti almennings virðist tilbúin til að neyða fólk til að leita sér meðferðar. Innlent 8.12.2022 19:00
Þjónusta við gesti Vinjar, Stígs og Traðar verði tryggð Aldrei hefur staðið til að leggja niður starfsemi dagsetursins Vinjar, og unglingasmiðjanna Stígs og Traðar fyrr en búið er að tryggja aðrar útfærslur á þeirri þjónustu sem veitt er. Innlent 8.12.2022 17:13
Ekkert samráð fyrir lokun Vinjar: „Ómögulegt að það sé staðið að þessu með þessum hætti“ Geðhjálp lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að loka Vin. Formaður Geðhjálpar segir ekkert samráð hafa átt sér stað fyrir ákvörðunina, líkt og skilja mátti á tillögu meirihlutans. Honum virðist tillögurnar hafa verið unnar með hraði og án samráðs en nauðsynlegt sé að tryggja þjónustu fyrir þennan viðkvæma hóp. Innlent 8.12.2022 13:30
Mótmæla lokun Vinjar: „Ég á enga vini nema hérna“ Fastagestir í Vin, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, eru síður en svo sáttir með að leggja eigi starfsemina niður vegna sparnaðaraðgerða hjá borginni. Sumir þeirra eigi engan annan félagsskap. Innlent 7.12.2022 21:08
Vin á Hverfisgötu heyrir sögunni til Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að leggja niður starfsemi Vinjar á Hverfisgötu. Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir sem hefur verið rekið í um þrjátíu ár. Fyrrverandi forstöðumaður Rauða krossins í Reykjavík er meðal þeirra sem gagnrýnir lokunina harðlega. Innlent 7.12.2022 11:39
„Þó svo að þú sért lítil þýðir það ekki að þú getir ekki verið stærri manneskjan“ Bakarinn Elenora Rós Georgsdóttir er lífskúnstner mikill sem segist stanslaust upplifa sig sem eina stóra tilfinningasprengju. Hún gaf út bókina Bakað meira á dögunum og sækir meðal annars innblástur í sæt bakarí og fallega staði. Elenora er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. Lífið 3.12.2022 11:31
„Listin læknar ekki en hún hefur hjálpað“ „Mig langaði ekki að textinn yrði beint um pabba því ég held að ég hafi bara ekki verið tilbúin í það,“ segir tónlistarkonan Rósa Björk Ásmundsdóttir um lagið Jólin með þér sem hún og Helena Hafsteinsdóttir voru að senda frá sér en þær mynda sviðslistahópinn heró. Ásamt laginu var að koma út tónlistarmyndband sem er frumsýnt hér í pistlinum. Tónlist 2.12.2022 11:01
Ísland engan veginn í stakk búið fyrir viðamiklar lyfjarannsóknir Ísland er langt í frá reiðubúið til að taka þátt í umfangsmiklum lyfjarannsóknum, ef marka má umsagnir um þingsályktunartillögu um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni (e. psilocybin) í geðlækningum. Innlent 1.12.2022 08:11
Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður. Atvinnulíf 25.11.2022 07:01
Kostir og gallar: Erum orðin svo vön því að gera margt í einu Rétt upp hönd sem multitaskar aldrei? Enginn? Nei, ekkert skrýtið því flestum okkar er orðið svo tamt að gera margt í einu að við varla tökum eftir því. Að multitaska í vinnunni hefur sína kosti og galla. Atvinnulíf 24.11.2022 07:01
Aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fanga Stefna stjórnvalda í geðheilbrigðismálum er á þá leið að þverfagleg mönnun í geðheilbrigðisþjónustu eigi að vera í samræmi við þjónustuþörf á hverju þjónustustigi með tilliti til viðfangsefna. Við sem lifum og hrærumst í málefnum jaðarsettra hópa samfélagsins vitum sem er, að þar er víða pottur brotinn og stefna stjórnvalda eingöngu orðin tóm. Skoðun 23.11.2022 13:02
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent