Samkomubann á Íslandi

Helgihald hófst á ný í flestum kirkjum í morgun
Helgihald hófst á ný í flestum kirkjum klukkan ellefu í morgun. Biskup Íslands segir að þrátt fyrir að helgihald geti nú farið fram inni í kirkjum standi til að halda áfram að streyma messum á netinu.

Bein útsending: Bestu lögin úr söngleiknum um Elly
Lokatónleikar í streymisdagskrá Borgarleikhússins í samkomubanni.

Sundlaugarnar opnaðar á miðnætti á sunnudaginn
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að sundlaugarnar í Reykjavík verði opnaðar á miðnætti á sunnudaginn.

Svona var 69. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.

Frumvarp geri fyrirtækjum kleift að kljúfa uppsagnartímabil
Fjármálaráðherra kynnti á ríksstjórnarfundi í morgun nýtt frumvarp þar sem meðal annars er gert ráð fyrir stuðningi við fyrirtæki svo þau geti staðið í skilum á uppsagnarfresti.

Bein útsending: Tengdó
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á streymi í samkomubanni.

Orðspor Íslands laskað næstu árin ef opnun landsins fer illa
Takist fyrirhuguð opnun landsins ekki sem skyldi má vænta þess að það gæti orðið Íslendingum mjög kostnaðarsamt.

Íslendingar munda greiðslukortin af krafti á ný
Svo virðist sem hagkerfið sé nú að taka við sér samhliða því sem faraldur kórónuveiru rénar og stjórnvöld slaka á veiruaðgerðum.

Sjö barir fengu viðvörun frá lögreglu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú í vikunni haft afskipti af sjö börum og skemmtistöðum sem voru opnir en höfðu ekki leyfi til þess.

Fólkið í sóttkví kom að utan
Athygli vakti við uppfærslu tölulegra gagna á Covid.is í gær að á meðan flestar tölur lækkuðu þá fjölgaði fólki hér á landi í sóttkví um 133. Um var að ræða fólk sem var að koma til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll eða Norrænu.

Svona verður fyrirkomulagið í sundlaugunum 18. maí
Sóttvarnalæknir mun leggja það til að fjöldi gesta í sundlaugum, sem ráðgert er að opni á ný eftir samkomubann nú á mánudaginn, fari fyrst um sinn ekki yfir helmingsfjölda gesta sem starfsleyfi hverrar laugar kveður á um.

200 mega koma saman 25. maí
Sóttvarnalæknir mun leggja það til við heilbrigðisráðherra á næstu dögum að fjöldamörk samkomubanns verði miðuð við 200 manns frá og með 25. maí,

Svona var 68. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14.

Segir framkvæmd Puffin-hlaupsins í Eyjum í samræmi við samkomubannið
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir að Puffin-hlaupið svokallaða sem fram fór í Vestmannaeyjum síðastliðinn laugardag hafi verið í samræmi við auglýsingu heilbrigðisráðherra um samkomubannið sem nú er í gildi.

Skilur örvæntinguna og ræðir við bareigendur
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir að yfirvöld muni heyra í fulltrúum kráareigenda á næstu dögum vegna þeirra takmarkana sem verið hafa á starfsemi skemmtistaða og kráa vegna kórónuveirufaraldursins.

Sviðnir sviðslistamenn við útdeilingu úr aðgerðapakkanum
Tónlistar- og sviðslistamenn ósáttir við hvernig útdeiling á aukafjárveitingu til listamanna skiptist.

Ráðherrar vongóðir um að það versta sé afstaðið
Ráðherrar eru varkárir í yfirlýsingum um framhaldið en vongóðir um að það hilli í að það versta sé afstaðið. Sóttvarnalæknir segist ekki hafa verið beittur neinum þrýstingi.

Landið opnar fyrir ferðamönnum 15. júní
Landið verður formlega opnað fyrir komum ferðamanna hinn 15. júní en þeir verða annað hvort að fara í sýnatöku við komuna eða framvísa gildu vottorði úr heimalandinu en sæta tveggja vikna sóttkví ella.

Bein útsending: Hilmir Snær og Unnur Ösp
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á streymi í samkomubanni.

Sjá fram á lengri kórónuveirukreppu
Forsvarsmenn fyrirtækja innan vébanda Samtaka atvinnulífsins áætla að frekari uppsagnir séu væntanlegar og að kórónuveirukreppan verði lengri en þeir töldu.

Höfða til fólks að hanga ekki of lengi í pottunum
Skrifstofustjóri íþróttamála hjá Reykjavíkurborg segir að sundlaugarnar búi að reynslu frá því í samkomubanni var komið á í mars. Hann reiknar með að reglurnar sem kynntar verða á næstunni muni gilda í tvær vikur.

Svona var 67. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.

Bein útsending: Emil í Kattholti
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á streymi í samkomubanni.

Græðgi
Örn Sverrisson skrifar um opnun spilakassa.

Heimahelgistund í Húsavíkurkirkju
Í dag klukkan 17 verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Húsavíkurkirkju.

Bein útsending: Hans hugprúði
Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á streymi í samkomubanni.

Þykir fáránlegt að vera skikkaður í sóttkví við heimkomu frá veirufríu Grænlandi
Baldur Bergmann, sem kom heim til Íslands frá Grænlandi í gær, er afar ósáttur við að þurfa að sæta tveggja vikna sóttkví í ljósi þess að Grænland hafi verið veirulaust í um mánuð.

Taka stærra skref í tilslökunum 25. maí en reiknað var með
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að eftir þann 25. maí sé líklegt að fleiri en 100 manns megi koma saman.

Svona var 66. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð.

Ólöglegum bar lokað í Hafnarfirði
Lögreglan segist hafa lokað bar í Hafnarfirði á áttunda tímanum í gær.