Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) „
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 148 ›
„Ummæli Davíðs Þórs dæma sig algjörlega sjálf“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests, sem biskup áminnti hann fyrir, dæma sig sjálf. Innlent 25.5.2022 11:50
Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“ Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna. Innlent 25.5.2022 11:16
Guðmundur Ingi óánægður með Jón Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segist ekki vera ánægður með hvernig Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur haldið á og rætt um mál þeirra hælisleitenda sem stendur til að vísa úr landi á næstunni eftir langa dvöl hér á landi. Guðmundur Ingi segist hafa gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð málsins á ríkisstjórnarfundi í dag. Innlent 24.5.2022 22:48
Forsætisráðherra segir fordæmi fyrir inngripi Forsætisráðherra segir til athugunar að endurskoða það að vísa fólki úr landi til Grikklands. Heldur hefur fækkað í hópi þeirra sem vísa á úr landi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. Innlent 24.5.2022 21:00
„Ef það verður ekki komið í veg fyrir þessa ósvinnu þá verður Alþingi að grípa í taumana“ Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að dómsmálaráðherra hafi það í hendi sér að koma í veg fyrir „Íslandsmet í fjöldabrottvísunum.“ Hann telur að þingið geti þurft að stíga inn og stöðva fyrirætlanir stjórnvalda um að vísa fjölda fólks frá landinu. Innlent 24.5.2022 19:19
Trúleysingjar æfir yfir styrk ráðherra til Þjóðkirkjunnar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti nýverið Þjóðkirkjunni styrk að upphæð 10 milljónir króna til þess að geta boðið aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Styrkveitingin féll í grýttan jarðveg hjá samtökum trúleysingja. Innlent 24.5.2022 17:04
Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Viðskipti innlent 24.5.2022 15:27
Séra Davíð Þór hótar Katrínu og Vinstri grænum helvítisvist Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnesskirkju, er ómyrkur í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni. Innlent 24.5.2022 15:26
Kannar hvort tilefni sé til að endurskoða ákvarðanir um brottvísun Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra skoðar hvort hægt sé að veita einhverjum úr hópi þeirra sem vísa á úr landi atvinnuleyfi. Kanna þurfi hvort aðstæður einhverra kalli á að ákvörðun um brottvísun verði endurskoðuð. Innlent 24.5.2022 12:03
Hefur áhyggjur af því hvort ný farsóttanefnd verði á faglegum nótum Fráfarandi sóttvarnalæknir lýsir áhyggjum af því að fulltrúa í nýrri farsóttanefnd skorti sérþekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði. Í umsögn um frumvarp heilbrigðisráðherra um sóttvarnalög spyr hann hvort ráðleggingar slíkrar nefndar verði faglegar þegar aðeins einn faglegur fulltrúi á sæti í henni. Innlent 24.5.2022 11:29
Telur ekkert því til fyrirstöðu að leyfa fólkinu að vera Formaður hjálparsamtaka telur ekkert því til fyrirstöðu að dómsmálaráðherra veiti fólki sem vísa á úr landi dvalarleyfi, eins og gert var í tilviki flóttafólks frá Úkraínu. Forsætisráðherra segir spurningum ósvarað um fyrirætlanir eigin ríkisstjórnar að senda fólk til Grikklands. Dómsmálaráðherra segist einungis vera að framfylgja lögum og reglum. Innlent 23.5.2022 20:45
„Ég get ekki að setið undir þeim orðum þingmannsins“ Hart var sótt að stjórnvöldum og sér í lagi Vinstri grænum á Alþingi í dag vegna brottvísana hælisleitenda. Þegar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar spurði Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hvernig hann gæti réttlætt það fyrir sjálfum sér að reka fólk í aðstæður sem hann myndi aldrei sætta sig við sjálfur, rann ráðherra í skap. Innlent 23.5.2022 17:13
Katrín Jakobsdóttir enn á móti aðild Íslands að NATO Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagðist í fyrirspurnartíma á Alþingi nú fyrir stundu vera á móti NATO. Innlent 23.5.2022 16:09
Vonbrigði að stjórnvöld ætli að hefja brottvísanir á ný: „Þetta er bara algjörlega óboðlegt“ Stjórnarandstaðan segir óboðlegt að stjórnvöld ætli að vísa hælisleitendum úr landi aftur eftir langt hlé í faraldrinum þar sem margir hafa fest rætur sínar hér á landi. Þingmaður Píratatelur að frumvarp um breytingar á útlendingalögum muni ekki verða samþykkt og þingmaður Samfylkingarinnar segir meirihluta þjóðarinnar ekki kæra sig um ógeðfellda útlendingastefnu. Innlent 22.5.2022 23:15
Harðorð í garð Jóns vegna brottvísana og spyr hvort hann hafi komið til Sómalíu Helen Ólafsdóttir, öryggisráðgjafi fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Sómalíu, segir í opnu bréfi sínu til Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að það sé pólitísk ákvörðun að vísa flóttafólki úr landi. Ráðherra og Útlendingastofnun skýli sér bak við reglugerðir við brottvísanir flóttafólks. Innlent 21.5.2022 14:11
Hefur þú komið til Sómalíu ráðherra? Það á að vísa 22 ára gamalli sómalískri stúlku úr landi. Það á að senda hana til Grikklands þar sem ljóst er að hún lendir strax á götunni. Dómsmálaráðherra segir eitthvað á þá leið að „þetta fólk“ hafi vitað af þessum brottvísunum svo þetta eigi ekki að koma á óvart. Stúlkan sem um ræðir Asli Jama og er nú þegar komin í sjálfboðastarf hjá Rauða Krossinum og ber því vel þess merki að hún sé að aðlagast lífinu vel á Íslandi. Skoðun 21.5.2022 14:00
Líst ekki á leiguþak og óttast að of ströng skilyrði geti skaðað framboð Fjármála- og efnahagsráðherra líst ekki á hugmyndir um leiguþak hér á landi líkt og aðrir ráðherrar hafa talað fyrir. Hann óttast að of ströng skilyrði geti orðið til þess að skaða framboð á leigumarkaði. Nauðsynlegt sé þó að bæta stöðu leigjenda og gera umbætur á húsnæðismarkaði, þar sem ofboðslegur vandi blasir við. Innlent 21.5.2022 12:05
Fjölskylda ráðherra vill byggja á svæði sem aðrir fengu ekki að byggja á Einkahlutafélag sem stofnað var af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og eiginkonu hans hefur fest kaup á einbýlishúsi og 3,2 hektara lóð í Garðabæ. Jón gekk úr eigendahóp félagsins daginn fyrir kaupin. Innlent 20.5.2022 22:56
Fólkið hafi vitað af því að dagsetningin kæmi Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni ákveðinna hópa um að nú eigi að vísa hælisleitendum úr landi í stórum stíl eftir kórónuveirufaraldurinn en hann bendir á að fólkið sem um ræðir hafi verið hér ólöglega allan þann tíma. Innlent 20.5.2022 18:26
Framsókn og VG einkavæða heilbrigðiskerfið Undir forystu Framsóknarflokksins og með blessun VG stendur til að einkavæða eina af stærri deildum Landspítalans, öldrunardeildina á Vífilsstöðum þar sem um 45 sjúklingar njóta aðhlynningar. Skoðun 20.5.2022 13:30
Byggja þarf um 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum Starfshópur stjórnvalda um húsnæðismál kynnti í dag skýrslu um úrbætur á húsnæðismarkaði til að auka framboð og stuðla að stöðugleika, bæði til skamms og langs tíma. Hjá starfshópnum er mikil samstaða um mikilvægi þess að tryggja aukið framboð íbúða til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Innlent 19.5.2022 15:59
Skoða að bjóða starfsemina á Vífilsstöðum út til einkarekstrar Til greina kemur að bjóða starfsemi öldrunardeildar Landspítalans á Vífilsstöðum út til einkarekstrar. Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, segir reksturinn ekki talinn hluta af kjarnastarfsemi spítalans og því hafi verið þreifingar um að finna annan rekstraraðila. Innlent 19.5.2022 14:59
Bjarni óskar eftir hraðri afgreiðslu Alþingis á verðbólguaðgerðum Fjármálaráðherra óskar eftir því að Alþingi afgreiði með hraði frumvarp um sérstakar aðgerðir til að koma til móts við viðkvæmustu hópa samfélagsins vegna aukinnar verðbólgu. Innlent 18.5.2022 19:21
Segir Sigurð Inga blessa okrið á leigumarkaði Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins mælti fyrir frumvarpi í gær sem miðar að því að bæta húsnæðisöryggi og réttarstöðu leigjanda. Gunnar Smári Egilsson, einn helsti foringi Sósíalista gefur lítið fyrir frumvarpið. Innlent 18.5.2022 15:38
Stjórnvöld blekki almenning með villandi framsetningu Stjórnvöld blekkja almenning með villandi framsetningu á tölum um markmið sín í loftslagsmálum að mati Ungra umhverfissinna. Allt stefni í að samdráttur í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá árinu 2005 til 2030 verði aðeins 4,3 prósent en ekki 55 prósent eins og stefnt er að. Innlent 18.5.2022 12:42
Fyrsta opinbera heimsókn forsætisráðherra til Grænlands í 24 ár Forsætisráðherra segir mjög mikilvægt að rækta samskiptin við Grænlendinga, ekki hvað síst í loftslagsmálum þar sem loftslagsbreytingarnar hafi meiri áhrif í Grænlandi en víða annars staðar. Hún er nú í fyrstu opinberu heimsókn íslensks forsætisráðherra til Grænlands í tuttugu og fjögur ár. Innlent 17.5.2022 17:41
Kolefnisgjald og sala losunarheimilda skilað ríkinu 59 milljörðum Sala losunarheimilda gróðurhúsalofttegunda hefur skilað íslenska ríkinu 11,41 milljarði króna í tekjur. Tekjur ríkissjóðs af kolefnisgjaldi nema 47,72 milljörðum króna frá því að innheimta hófst árið 2010. Innlent 17.5.2022 14:52
Óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá Utanríkisráðherra segir óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá vegna umsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún gerir ráð fyrir að málið verði leyst. Innlent 17.5.2022 11:54
Þórólfur hafi ekki bara vísað veginn í faraldrinum Forsætisráðherra segir Þórólf Guðnason, fráfarandi sóttvarnalækni, líklega vera þann mann sem hún hefur átt flest símtöl við undanfarin tvö ár. Hún rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar Þórólfur vísaði henni og fjölskyldu hennar veginn til Borgarfjarðar eystri. Innlent 16.5.2022 23:26
„Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu“ Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík, töpuðu manni í Hafnarfirði, Kópavogi … en það breytir ekki þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er eftir sem áður stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu. Innlent 15.5.2022 12:02