Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

„200 manna takmörkunin þýðir bara tap“
Páll Óskar Hjálmtýsson hefur ákveðið að fresta afmælistónleikum sínum í enn eitt skiptið. Um er að ræða fimmtugsafmælistónleika en Páll Oskar stefnir á að halda tónleikana í mars 2022 þegar hann verður nýorðinn 52 ára.

108 greindust með veiruna innanlands í gær
Að minnsta kosti 108 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 68 þeirra sem greindust voru fullbólusettir og er bólusetning hafin hjá einum. 39 þeirra sem greindust eru óbólusettir.

„Verðum örugglega að horfast í augu við það að við gengum nærri okkur“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að það sé gríðarlega mikilvægt að horfast í augu. „Vegna þess að það hjálpar okkur að muna að við erum öll á sama báti.“

Bakhjarlar verðmætasköpunar
Viðkvæm staða í heilbrigðiskerfinu gerir það að verkum að erfiðara er að aflétta sóttvarnartakmörkunum en vonir stóðu til. Daglegt líf fjölskyldna og rekstur fyrirtækja líður fyrir ástandið. Ef velferðarþjónustan er löskuð reynist nefnilega erfitt að sækja fram – lífsgæði fólks rýrna.

Erilsamt að vanda hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 142 sjúkraflutningum í gær. Í Facebookfærslu slökkviliðsins segir að fyrir nokkrum vikum hefðu svo margir sjúkraflutningar þótt til tíðinda en nú sé sá fjöldi „normið.“

Gat ekki beðið um verri dag til að lenda í sóttkví
Það er sjaldan hentugur tími til að þola frelsisskerðingu en sumir dagar geta reynst óheppilegri en aðrir. Þessu kynntist Ólafur Ásgeirsson, leikhúsmaður og spunaleikari, vel á dögunum þegar hann var sendur í sóttkví nokkrum klukkustundum eftir að hann fleygði baðkarinu sínu.

Nýsjálensk börn verði bólusett
Stjórnvöld á Nýja Sjálandi heimiluðu í gær að börn á aldrinum tólf til fimmtán ára verði bólusett en hingað til hafa einungis þeir sem náð hafa sextán ára aldri getað fengið bólusetningu í landinu.

Örvunarskammtar ríku þjóðanna eins og að útdeila öðru björgunarvesti á meðan aðrir drukkna án vestis
Embættismenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru harðorðir í garð þeirra þjóða sem byrjað hafa að útdeila örvunarskömmtum á bóluefni gegn kórónuveirunni á sama tíma og milljónir manna séu enn óbólusettir víða um heim. Er þessu líkt við það að gefa einstaklingum björgunarvesti númer tvö á sama tíma og aðrir séu án björgunarvestis.

Leikskóla lokað út vikuna og allir í sóttkví
Allir nemendur og kennarar á leikskólanum á Seyðisfirði eru komnir í sóttkví eftir að nemandi í skólanum greindist með kórónuveiruna síðasta mánudag. Leikskólanum hefur því verið lokað fram á næsta mánudag þegar sóttkvínni lýkur.

Kári: Ekkert fokking væl
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að það verði ekki umflúið að halda svipuðum samkomutakmörkunum og nú eru í gildi næstu eitt til tvö árin. Hann er bjartsýnn á að þjóðin haldi áfram að tækla verkefnið af krafti þó ljóst sé að það sé orðið örlítið lengra en menn höfðu vonast til í upphafi.

„Þetta er hálf nöturleg framtíðarsýn“
Jón Mýrdal, eigandi Húrra og Skuggabaldurs í miðbæ Reykjavíkur, segir að sér finnist sú framtíðarsýn sem sett er fram í minnisblaði sóttvarnalæknis um framtíðarfyrirkomulag sóttvarna á Íslandi vegna Covid-19 vera hræðileg. Hann bendir á að á skemmtistöðum sé farið eftir ströngum kröfum um sóttvarnir, annað en til dæmis í partýum í heimahúsum.

Reikna með svipaðri stöðu á gjörgæslu áfram
Spálíkan fyrir framgang faraldursins hér á landi næstu vikur gefur til kynna að þróunin horfi til betri vegar. Þannig mun nýjum smitum fækka, en það verður þó mjög hægt ef marka má spá.

Hugmyndir Þórólfs ekki tillögur sem beri að samþykkja eða hafna
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hyggst ekki taka afstöðu til þess hvort 200 manna samkomubann verði áfram við lýði næstu mánuði og misseri.

Lyfjastofnun geti ekki mælt með notkun sníkjudýralyfs gegn Covid
Lyfjastofnun hefur fengið upplýsingar um notkun sníkjudýralyfsins Ivermectin við Covid hér á landi. Stofnunin mælir ekki með notkun lyfsins, sem ekki hefur verið sýnt fram á að sýni nokkra virkni gegn Covid-19, hvorki sem fyrirbyggjandi lyf né í meðferð sjúklinga.

Dauðadómur yfir djamminu ef sýn Þórólfs verður að veruleika
Framtíðarsýn sóttvarnalæknis næstu misseri: Opið til ellefu í bænum. Það er dauðadómur fyrir ákveðna rekstraraðila, segir bareigandi.

Nýtt minnisblað: Svona sér Þórólfur fyrir sér framtíðina
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ólíklegt að hægt verði að aflétta takmörkunum innanlands á meðan faraldurinn geisar í heiminum. Þetta segir hann í minnisblaði sínu til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um framtíðarfyrirkomulag sóttvarna á Íslandi vegna Covid-19.

Svandís og Brynjar tókust á í Pallborðinu
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins verða gestir Pallborðsins sem verður í beinni útsendingu klukkan 14 á Vísi.

Þórólfur telur að fullir leikvangar muni koma í bakið á Bretum
Fólki brá í brún þegar enska úrvalsdeildin fór af stað liðna helgi. Uppselt inn á hvern einasta leikvang þó svo að hlutfallslega hafi færri verið bólusettir þar heldur en hér á landi.

Vill skoða að hætt verði að setja fullbólusetta í sóttkví
Samgöngu og sveitarstjórnarráðherra telur að skoða þurfi að hætt verði alveg að setja fullbólusetta í sóttkví. Heilbrigðisráðherra vill skoða málin betur.

Átta tilkynningar um lömun eða skerta hreyfigetu eftir bólusetningu
Lyfjastofnun hefur fengið alls átta tilkynningar um lömun eða skerta hreyfigetu í kjölfar bólusetninga. Alvarlegust þeirra er frá ungri konu sem fjallað var um að hefði lamast fyrir neðan mitti, stuttu eftir örvunarbólusetningu með bóluefni Moderna.

Vinnur að endurskoðun á reglum um sóttkví
Sóttvarnalæknir vinnur að endurskoðun á reglum um sóttkví. Hann telur mjög mikilvægt að halda skólunum opnum í haust en einnig að hægt verði að lágmarka hversu marga þurfi að setja í sóttkví. Nýtt afbrigði veirunnar gæti þó gert þetta erfitt.

Leikmaður KR smitaðist
Leikmaður úr byrjunarliði KR sem mætti HK á mánudagskvöld, í Pepsi Max-deild karla í fótbolta, hefur greinst með kórónuveirusmit. Því gæti allur leikmannahópur KR þurft að fara í sóttkví.

124 greindust með kórónuveiruna í gær
Að minnsta kosti 124 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 64 þeirra sem greindust voru fullbólusettir og er bólusetning hafin hjá fjórum sem greindust. 56 þeirra sem greindust eru óbólusettir.

Eitt barn reyndist smitað á Álftaborg
Eitt barn á leikskólanum Álftaborg í Safamýri hefur greinst smitað af kórónuveirunni. Börn og starfsmenn voru send í sóttkví eftir að starfsmaður greindist smitaður á föstudaginn.

Reykjalundur tekur við sjúklingum frá Landspítala sem þurfa sólarhringsþjónustu
Samið hefur verið um að deild á Reykjalundi með tólf til fjórtán rúmum verði nýtt til fyrir sjúklinga sem munu flytjast beint frá Landspítala og fyrirsjáanlegt sé að þurfi innlögn í sólarhringsþjónustu í allt að sex vikur. Er samkomulagið gert til að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er á Landspítala vegna heimsfaraldursins.

Löggan stoppaði partíið en bauð gestunum að færa það í heimahús
Lögreglan á Norðurlandi eystra batt enda á tvítugsafmæli í félagsheimilinu Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit á laugardagskvöld við mikla óánægju veislugesta. Þeir töldu margir að lögreglan hefði óljósa heimild til þeirra aðgerða, enda væri ekki um veitingastað eða skemmtistað að ræða.

WHO varar við falsbóluefnum og kallar eftir að þau verði tekin úr umferð
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segist hafa orðið þess áskynja að falsbóluefni við kórónuveirunni væru í umferð í Indlandi og Afríku. Þeir skammtar sem vitað er af hafa verið teknir úr umferð.

Borðar tómat til að hafa eitthvað fyrir stafni í einangrun
Jón Gnarr er allur að koma til eftir að hafa greinst með Covid-19 á dögunum. Hann segist hafa glatað bragð- og lystarskyni og borða tómata til að hafa eitthvað fyrir stafni.

„Það er mikil undiralda í samfélaginu“
„Fólk vill komast út og gera og heyra og vera til og lifa einhverskonar lífi,“ segir Viktoría Blöndal sem stendur fyrir upplestrarkvöldi í miðbæ Reykjavíkur á fimmtudag.

Skiluðu inn minnisblaði til ráðherra
Tuttugu og sjö sjúklingar liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19, þar af sex á gjörgæslu og eru fimm þeirra bólusettir. Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og Már Kristjánsson yfirlæknir hafa skilað inn minnisblaði til ráðherra um stöðu mála á Landspítalanum í fjórðu bylgju kórónuveirufaraldursins sem nú stendur yfir.