Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Erfiðasta afbrigðið til þessa
144 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en ekki hafa fleiri greinst í þrjá mánuði. Sóttvarnalæknir hefur þungar áhyggjur af stöðunni og íhugar leiðir til að bregðast við.

Óbreytt á landamærunum til 15. janúar
Sóttvarnaraðgerðir á landamærunum verða óbreyttar til 15. janúar. Heilbrigðisráðherra hefur tekið þá ákvörðun að framlengja reglugerðina um sóttvarnarráðstafanir þar vegna Covid-19 en ástæðan er sögð fjölgun smita innanlands að undanförnu.

144 greindust með Covid-19 í gær
Alls greindust 144 með Covid-19 hér á landi í gær. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við fréttastofu. Tæplega þriðjungur þeirra sem greindust eru á Akranesi.

Sóttvarnaríki í 9 ár í viðbót?
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 2. nóvember síðastliðinn var fjallað um framtíð faraldursins á Íslandi og leiðina að hjarðónæmi. Þar var því haldið fram að Ísland væri langt frá langþráðu hjarðónæmi gegn kórónaveirunni SARS-CoV-2 sem veldur COVID-19.

Ástand á Akranesi: Fimmtíu greindust og skólum lokað
Alls greindust fimmtíu manns með Covid-19 á Akranesi í gær að því er Lögreglan á Vesturlandi greinir frá. Allir skólar í bænum verða lokaðir á morgun.

Aldrei fleiri greinst smitaðir á einum degi í Þýskalandi
Um 34 þúsund manns greindust smitaðir af kórónuveirunni í Þýskalandi í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna á einum degi frá upphafi faraldursins.

Grunar að kuldi gæti valdið fölskum jákvæðum hraðprófum
Borið hefur á því að fólk sem hefur farið í hraðpróf fyrir Covid-19 á Selfossi fái falska jákvæða niðurstöðu. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands segir getgátur um að kuldi á sýnatökustað gæti verið ástæðan.

Leiðtogar Norðurlanda heita auknu samstarfi í öryggismálum
Leiðtogar norrænu ríkjanna lögðu áherslu á aukið samstarf um neyðarviðbúnað og annan viðbúnað á fundi Norðurlandaráðs í dag. Ríkin búi sig undir alls konar neyðarástand og kreppur, hvort sem þær eru af völdum manna eða náttúru.

Búa sig undir að setja maskínuna aftur í gang
Til skoðunar er að byrja að gefa stórum hópi fólks með undirliggjandi sjúkdóma örvunarskammt af bóluefni gegn kórónuveirunni næsta mánuðinn. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir örvunarskammt bæta ónæmi gegn veirunni umtalsvert.

Rodgers með veiruna og missir af leiknum Chiefs
Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay Packers í NFL-deildinni, hefur greinst með kórónuveiruna og mun missa af leik Packers og Kansas City Chiefs um helgina.

Sjúkrahúsið á Akureyri komið á hættustig
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið fært af óvissustigi og upp á hættustig. Covid-sjúklingur liggur nú inni á gjörgæslu í öndunarvél vegna veikinnar. Mikið álag er á sjúkrahúsinu en enn hefur innlögn sjúklingsins ekki haft áhrif á aðra starfsemi spítalans.

Fjölbrautaskóla Vesturlands lokað og staðan sögð alvarleg á Akranesi
Stjórnendur Fjölbrautaskóla Vesturlands (FVA) hafa ákveðið að loka skólanum og skipta yfir í fjarkennslu fram að helgi vegna kórónuveirusmita sem hafi mögulega breiðst þar út.

Til skoðunar að bjóða öllum þriðja skammt bóluefnisins
Líklegt er að fljótlega verði hafist handa hér á landi við að bjóða öllum örvunarbólusetningu með bóluefni Pfizer segir sóttvarnalæknir í pistli sem hann birti á covid.is. Örvunarskammturinn verði veittur að minnsta kosti fimm til sex mánuðum eftir aðra bólusetningu.

Norðurlöndin hefðu getað unnið meira saman í faraldrinum
Sigurður Ingi Jóhannsson samstarfsráðherra Norðurlandanna segir að Norðurlöndin hefðu getað haft með sér meira samstarf á tímum covid faraldursins. Öryggis- og varnarmál hafi fengið aukna athygli í samstarfi Norðurlandanna á undanförnum árum.

GDRN greind með Covid og kemur ekki fram á Airwaves
Tónlistarkonan GDRN mun ekki koma fram á Airwaves - Live from Reykjavík um helgina líkt og auglýst hafði verið. Söngkonan smitaðist af kórónuveirunni og getur því ekki tekið þátt.

Færeyingar herða og takmarka samkomur við fimmtíu
Landsstjórn Færeyja hefur ákveðið að herða samkomutakmarkanir og munu þær nú miðast við fimmtíu. Næturklúbbum verður gert að loka, en veitingastaðir mega áfram hafa opið, með ákveðum takmörkunum þó.

91 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær
91 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær.

Ungbarn liggur á Landspítala með Covid-19
Nú liggja sextán sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19, þar af eitt ungbarn. Þar af eru átta sjúklingar óbólusettir.

Takmarkanir nauðsynlegar næstu mánuði eða ár
Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann vill hæfilegan milliveg til lengri tíma í stað þess að vera sífellt að herða og slaka á klónni.

Pfizer áætlar að selja bóluefni fyrir um 4.700 milljarða króna í ár
Lyfjarisinn Pfizer tilkynnti í dag að sölutekjur Covid-19 bóluefnisins, sem fyrirtækið þróaði með BioNTech, nemi 36 milljörðum Bandaríkjadala í ár. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri sem birt var í dag.

Farsóttarnefnd svarar Svanhildi vegna svínaflensusamanburðar
Farsóttarnefnd Landspítalans hefur birt útlistun á því hvað sé helst frábrugðið á milli svínaflensufaraldursins árið 2009 og kórónuveirufaraldursins sem geisað hefur hér frá síðasta ári, og viðbragða við þeim.

Mesti fjöldi smitaðra á einum degi síðan í janúar
Alls greindist 1.981 smitaður af kórónuveirunni í Danmörku síðasta sólarhringinn. Um er að ræða mesta fjöldann á einum degi síðan í byrjun janúar. Faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu síðustu daga.

Búa sig undir örtröð eftir 800 metra bílaröð um helgina
800 metra löng bílaröð myndaðist í sýnatöku á Selfossi um helgina og lögregla gerir ráð fyrir mikilli örtröð í dag. 85 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þeim fjölgar sem greinst hafa með veiruna eftir legu á hjartadeild.

85 greindust innanlands í gær
85 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 36 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 49 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent.

Skella í lás eftir fyrsta kórónuveirusmitið
Stjórnvöld á Tonga hafa ákveðið að skella nær öllu í lás eftir að fyrsta kórónuveirusmitið kom upp á eyjunum á laugardaginn.

Gera ráð fyrir miklum fjölda í sýnatökur á Selfossi
Lögreglan á Suðurlandi biðlar til íbúa á svæðinu að sýna tillitssemi og þolinmæði þegar þeir sækja sýnatöku í bílakjallara Krónunnar í dag. Vísar lögregla í upplýsingar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands um að búast megi við mikilli aðsókn.

Hjartavöðvabólga í kjölfar bólusetninga afar fátíð og yfirleitt mild
Nýjustu rannsóknir staðfesta það að hjartavöðvabólga hjá ungmennum í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19 er næstum alltaf mild og gengur til baka á skömmum tíma. Áhættan af því að fá Covid-19 er mun meiri.

Icelandair vill að sóttvarnalæknir losi ferðamenn við skyldubundið Covid-próf
Talsmaður Icelandair kallar eftir því að ferðamönnum hætti að vera gert að sýna fram á neikvætt Covid-próf við komu til landsins, eins og gildir víðast hvar á Norðurlöndunum. Sóttvarnalæknir er með tillögur í smíðum að breytingum á landamærunum.

Einn gesta Gísla kominn með Covid og hinir í sóttkví
Hallgrímur Helgason rithöfundur er kominn með Covid en hann var meðal gesta í Vikunni sjónvarpsþætti Gísla Marteins Baldurssonar á Ríkissjónvarpinu á föstudagskvöldið.

Samanburður Svanhildar ósanngjarn og ekki góður
Þórólfur Guðnason segir fólk tjá sig um getu Landspítalans án þess að kynna sér málið nægilega vel. Það er ekki sanngjarnt að sögn sóttvarnalæknis að bera Covid-19 saman við svínaflensuna, eins og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs gerði í viðtali í gær.