Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Aðilar í ferðaþjónustu gætu þurft að sinna ferðamönnum í einangrun
Aðilar í ferðaþjónustunni þurfa að vera undir það búnir að senda ferðamenn sem koma hingað til lands í sýnatöku vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19 og jafnvel sinna þeim ef þeir þurfa að sæta sóttkví og/eða einangrun.

Egypskir læknar kenna stjórnvöldum um dauða félaga sinna
Dauði lækna í kórónuveirufaraldrinum er á ábyrgð egypskra heilbrigðisyfirvalda, að sögn þarlendra læknasamtaka. Þau saka yfirvöld um vanrækslu og vara við því að heilbrigðiskerfið gæti kiknað undan álagi.

Þurfi að vera skýrt hvað lögregla megi gera við óhlýðna ferðamenn
Verkefnastjórn um sýnatöku vegna kórónuveirunnar á landamærum Íslands telur að það þurfi að vera alveg skýrt hvaða heimildir lögreglan hafi til þess að bregðast við gagnvart þeim sem koma til landsins en ætla sér ekki að hlíta þeim sóttvarnarráðstöfunum sem í gildi eru á hverjum tíma

Skipta farþegum í fjórar raðir við komuna til landsins
Farþegum sem koma til landsins verður skipt upp í fjóra hópa á Keflavíkurflugvelli eftir því hvað þeir kjósa þegar opnað verður fyrir millilandaflug 15. júní. Af minnisblaði vinnuhóps um aðferðasvæði við skimun fyrir kórónuveiru á flugvellinum má ráða að mörgum spurningum sé enn ósvarað um hvernig fólki verður hleypt inn í landið.

Rof í geðlæknismeðferðum vegna heimsfaraldursins
Óttar Guðmundsson, formaður Geðlæknafélags Íslands, segir að ákveðið rof hafi komið í geðlæknismeðferð sjúklinga þegar faraldurinn og takmarkanir honum tengdar stóðu sem hæst. Komum á bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans fækkaði.

Geta í mesta lagi prófað 500 ferðamenn á dag
Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans er ekki í stakk búin til að taka sýni úr nema 500 farþegum sem koma til landsins á degi hverjum.

Minkar hafa smitað minnst tvo af veirunni í Hollandi
Að minnsta kosti tveir hafa smitast af kórónuveirunni eftir að hafa komist í nánd við smitaða minka í Hollandi. Eru þetta fyrstu tilfelli slíkrar smitleiðar svo vitað sé.

Leikmönnum á Íslandi ráðlagt að fagna mörkunum sínum án snertingar
Knattspyrnusamband Íslands hefur nú gefið út leiðbeiningar vegna framkvæmdar knattspyrnuleikja í meistaraflokkum vegna sóttvarnaraðgerða heilbrigðisyfirvalda og almannavarna.

Biður Twitter um að fjarlægja morðsamsærisóra Trump
Ekkill starfsmanns bandarísks fyrrverandi þingmanns sem Donald Trump forseta er í nöp við hefur beðið forstjóra Twitter um að fjarlægja tíst forsetans með samsæriskenningum um dauða konu sinnar. Trump forseti hefur ítrekað slengt fram rakalausum samsæriskenningum sem ýja að því að fyrrverandi þingmaðurinn hafi myrt konuna.

Íslendingar áætla að eyða ríflega 70 þúsund krónum í innanlandsferðalög
Stór hluti Íslendinga hyggst ferðast innanlands í sumar og áætlar að verja ríflega sjötíu þúsund krónum í ferðlögin. Næstum sex af hverjum tíu ætlar ekki til útlanda fyrr en eftir sex mánuði. Ferðagjöf, stafrænt gjafabréf stjórnvalda var kynnt í morgun

Aðeins tvö virk smit eftir í landinu
Tveir eru nú eftir í einangrun vegna kórónuveirusmits á Íslandi samkvæmt opinberum tölum. Enginn greindist með kórónuveiruna sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 síðasta sólarhringinn hér á landi. Staðfest smit eru því enn 1.804.

Tegnell ítrekað hótað lífláti
Lögregla í Svíþjóð reynir nú að hafa uppi á þeim sem hafa hótað sóttvarnalækni landsins, en í skilaboðum segir að hópur manna hafi sammælst um að ráðst gegn Tegnell og fjölskyldu hans.

Forsætisráðherrann fékk ekki að hitta móður sína fyrir andlátið
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hann hafi ekki fengið að hitta 96 ára gamla móður sína síðustu vikurnar sem hún lifði vegna heimsóknatakmarkana sem eru í gildi á hjúkrunarheimilum vegna kórónuveirufaraldursins.

Innan við 200 manns fengu hýdroxíklórókín hér á landi
Landspítalinn hætti fyrir nokkru að gefa Covid-sjúklingum sýklalyfið hýdroxíklórókín. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur stöðvað tilraunir á notagildi lyfsins tímabundið því niðurstöður virðast benda til að það auki líkur á andláti sjúklinga. Innan við 200 manns fengu lyfið hér á landi undir eftirliti.

Markvörður Bournemouth með veiruna
Aaron Ramsdale er með kórónuveiruna. Nú hafa tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni hafa greinst með veiruna eftir að byrjað var að skima fyrir henni.

Manntjónið á Bretlandi nálgast verstu spár stjórnvalda
Tala látinna í kórónuveirufaraldrinum í Bretlandi er nú komin yfir 47.000 og nálgast svartsýnustu spár stjórnvalda. Aðstoðarráðherra í málefnum Skotlands sagði af sér í dag vegna viðbragða ríkisstjórnarinnar við uppljóstrunum um að nánasti ráðgjafi Boris Johnson forsætisráðherra hefði brotið gegn fyrirmælum yfirvalda um að fólk héldi sig heima.

Að borga próf, eða borga ekki próf
Í dag mælist atvinnuleysi í tveggja stafa tölu í nánast hverju einasta sveitarfélagi landsins.

Allt það helsta um fyrirkomulag Ferðagjafarinnar
Hægt verður að skipta ferðagjöf stjórnvalda niður og nýta hana innan fjölbreyttrar flóru ferðaþjónustufyrirtækja með sérstöku smáforriti sem hannað var til verksins.

Gert að draga úr útblæstri um 50 prósent í skiptum fyrir ríkisaðstoð
Stjórnvöld í Frakklandi hafa sett ströng skilyrði um að flugfélagið Air France dragi hressilega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, ætli það sér að fá ríkisaðstoð til að bjarga sér úr ástandinu vegna heimsfaraldursins.

Gylfi segist vera betur á sig kominn en þegar hann var tvítugur
Gylfi Þór Sigurðsson mætir aftur til æfinga hjá Everton í frábæru formi ef marka má viðtal hans við heimasíðu Everton. Hann hefur eytt tímanum meðal annars í að æfa sig á píanóið sitt.

Ekki benda á mig, segir forsetinn
Þrátt fyrir að Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hafi barist gegn aðgerðum ríkis- og borgarstjóra, segir hann sökina vera þeirra og sömuleiðis sé fyrrverandi heilbrigðisráðherra landsins og fjölmiðlum um að kenna.

Bein útsending: Svona verður Ferðagjöfin til Íslendinga útfærð
Kynningarfundur þar sem farið verður yfir útfærslu á Ferðagjöf, stafrænu gjafabréfi stjórnvalda, verður haldinn nú klukkan níu.

Sara byrjar óvenjulegu titilvörnina sína vel og er efst á Dúbaí netmótinu
Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir byrjaði vel á Dúbaí netmótinu en fyrsta vikan á mótinu er nú að baki.

Stærsta flugfélag Suður-Ameríku sækir um gjaldþrotavernd
Flugfélagið LATAM hefur sótt um gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum, en líkt og með önnur flugfélög hefur heimsfaraldur kórónuveirunnar leikið flugfélagið grátt.

Ungmenni aftur í neyslu vegna faraldursins
Um stóran og viðkvæman hóp ungmenna, 13 til 20 ára, er að ræða samkvæmt Berglind Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Foreldrahúss.

Göngustígar við Skógafoss lagðir ull af íslensku sauðfé
Ull íslensku sauðkindarinnar hefur fengið nýtt hlutverk, - sem undirlag á göngustíga sem verið er að leggja yfir mýrlendi ofan við Skógafoss. Ullinni þannig ætlað að verja ferðamenn frá því að blotna í fæturna.

WHO stöðvar rannsókn á notagildi malaríulyfs sem Trump segist taka gegn Covid
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur stöðvað rannsókn á notagildi malaríulyfsins Hydroxychloroquine gegn Covid-19 sýkingu vegna velferðarsjónarmiða.

Heilbrigði í forgangi varðandi opnun landsins
Heilsa þjóðarinnar er í forgangi hjá heilbrigðisráðherra og sóttvarnalækni vegna opnunar landsins fyrir ferðamenn.

Icelandair stefnir á að hefja flug 15. júní
„Við stefnum á að komast á flug upp úr 15. júní og ná sem fyrst að komast í daglega tíðni til okkar helstu áfangastaða til að byrja með og svo auðvitað fylgjumst við eins og allir aðrir með tilkynningum frá okkar nágrannalöndum um hvenær þau opna,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair.

Ráðgjafi Johnsons segist ekki sjá eftir neinu
Dominic Cummings, helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að um fjögur hundruð kílómetra langt ferðalag sitt, sem sagt er í trássi við kórónuveirutakmarkanir, hafi verið hugsað til þess að vernda fjölskyldu sína.